Stígandi - 01.10.1944, Qupperneq 66
STÍGANDI
AAGE KRARUP NIELSEN:
Á FLEKA NIÐUR WAINDINAÁNA
(Sigurður Róbertsson þýddi.)
[Eftirfarandi kafli er tekinn upp nr bókinni Alolta eftir danska rithöfundinn
Aage Krarup Nielsen. í þeirri bók scgir hann frá ferð sinni um ýmsar af helztu
eyjum Kyrrahafsins. í þessum kafla segir ftá ferð hans um Viti Le\u, sem er stærst
af Fijieyjnm. Fijieyjar eru afar frjósamar, og náttúrufegurð er þar mikil, en
róstusamt hefir þar oft verið. Ekki eru margar kynslóðir gengnar síðan mannát
og aðrir blóðugir siðir voru þar í heiðri hafðir, en nú er slíkt liðið undir lok. Fiji-
eyingar eru friðsamir, sé vel að þeim farið, og gestrisni er þar mikil. — Myndirnar,
sem fylgja, gefa ofurlitla hugmynd um útlit þeirra. Þýðandi.]
Morguninn eftir byrjar lífið í Namosi aftur sinn jafna, hvers-
dagslega gang. Um sólaruppkotnu halda karlmennirnir upp í
hlíðarnar, jrar sem bananaekrurnar liggja, og síðari hluta dags-
ins koma jreir heim, tveir og tveir saman, og á langri stöng, senr
Jreir bera á öxlunum, hanga þungir, dökkgrænir klasar af ban-
önum.
Gömlu karlarnir gá til veðurs og spá góðu veðri næstu tvo
daga. Waindinaáin er fremur lítil, svo að ég hugsa, að það sé bezt
að nota tækifærið og komast eitthvað áleiðis til strandarinnar. Á
jDessum tíma árs er aldrei hægt að treysta góðu veðri deginum
lengur.
Ásamt gestgjafa mínum hefi ég santið lauslega ferðaáætlun, og
hann býður mér tvo af sínum beztu mönnum til fylgdar fyrsta
áfanga leiðarinnar. Waindinaáin er vatnsminni en Navuaáin, en
aftur á móti straumharðari, og í henni eru víða smáfossar og
flúðir, ófær venjulegum eintrjáningum og bátum. í stað þess
verður að nota bambusfleka f'yrir farkost, og þarf stærð þeirra og
lögun að fylga ákveðnum reglum, ef vel á að fara.
Morguninn eftir byrja tveir menn á flekasmíðinni. Langir og
sterkir bambusstofnar eru bundnir saman með Jrrælsterku reipi
úr kókostrefjum. Grennri endi stofnanna myndar framstafn