Stígandi - 01.10.1944, Blaðsíða 72
310
Á FLEKA NIÐUR WAINDINAÁNA
STIGANDI
Innfæddur Fijieyingur.
Við förum fram úr fimm eða sex flekum, sem eins og við, eru
á leið niður ána, en nú hefir þeim verið lagt að landi og áhafnir
þeirra búið sér náttstað. Auk karlmanna eru á þeim konur og
börn, og flutningurinn, sem það Iiefir meðferðis, ber það með sér,
að það ætlar sér ekki að s\ elta á leiðinni. l’að hefir útbúiðsérskýli
úr pálmablöðum til þess að verjast sólarhitanum, og undir þessu
skýli sefur það á nóttunni, en karfa, sem er þéttuð með leir, er
notuð fyrir eldstæði. Þarna eru heilar fjölskyldur á skemmti-
ferðalagi og gefa sér góðan tíma. Þegar á endanum er komið
þangað, sem ferðinni er heitið, er flekinn hlutaður sundur og
viðirnir úr honum seldir til húsabygginga. Svo þegar öllum erind-
unt er lokið, er lagt af stað gangandi heimleiðis.
Myrkrið skellur á, og við sjáum ekki annað en glampana frá