Stígandi - 01.10.1944, Page 76

Stígandi - 01.10.1944, Page 76
314 Á FLEKA NIÐUR WAINDINAÁNA STIGANDI Fyrst töluðum t ið sarnan á ensku, en bráðléga fer ég að bregða fyrir mig dönsku til þess að vita, livort liann sé með öllu búinn að gleyma Norðurlandamálum. Lítið eitt man hann ennþá, og smám saman rifjast upp fyrir honum orð og setningar úr móður- máli lians. Yið þetta glaðnar yfir honum og liann fer að spyrja frétta að heiman Irá Noregi. Þegar ég segi honum, að Kristjanía og Þrándheimur hafi skipt um nöfn, hristir hann höfuðið og segir, að það sé þýðingarlaust fyrir sig að hugsa til heimferðar hér eftir, þegar hann veit ekki lengur hvað helztu borgirnar heita. Annars er hann fyrir löngu liættur að hugsa um slíkt. Af ættingjum sínum hefir ltann ekkert heyrt, síðan iiann fór frá Astralíu, og hefir ekki hugmynd um, livort þeir eru lifandi eða dánir. Nokkra stund situr hann þögull og pjakkar með stafnum sín- um í jörðina, svo segir liann ofboð kyrrlátlega: Well. Það er löng leið frá Guðbrandsdal til Fijieyja, en þó er leiðin þaðan og heim, mikið, mikið lengri. Sá, sem leitað hefir lengst um álfur eftir hamingjunni, og ekki fundið liana, getur ekki betur í jafnstuttu máli gert upp sakirnar. Það er þegar liðið langt á dag, og ennþá á ég langa leið fyrir höndum. Garnli maðurinn fylgir mér niður brattann, niður að bátnum, þó að honum sé örðugt utn gang. í bátnum á ég fullan kassa af nestisleifum, sem ég hefi ekki þörf fyrir hér eftir. Er það mest niðursoðinn matur af mörgum tegundum, og síðast, en ekki sízt, á ég þar ósnerta whiskyflösku. Allt eru þetta hlutir, sem geta glatt gatnlan, einmana mann, sem beðið hefir skipsbrot hamingju sinnar itér á bökkurn Waindina- árinnar, nrörg þtisund mílur frá ættlandi sínu. Allt þetta gef ég honum að skilnaði, og liann gleðst eins og barn. Vinir hans úr þorpinu bera þetta fyrir hann heim í kofa hans, nema whiskyflöskuna, hana ber hann sjálfur, t arlega, eins og um smábarn sé að ræða. Þar til við hverfum úr augsýn, stend- ur ltann á stéttinni fyrir framan kofa sinn og flaggar með trosn- uðum stráhatti á stafnum sínunt.

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.