Harmoníkan - 01.03.1995, Side 9
'J* J
Síefán Ármann Þórðarson, Sólvöllum 6, Selfossi:
Lítil ferðasaga
Það mun hafa verið í vor síðast liðið
að Harmoníkufélag Rangæinga fékk
boð frá Harmoníkufélagi Þingeyinga
um að koma í heimsókn norður í land.
Þetta féll í góðan jarðveg hjá okkur
spilafélögum og var í fyrstu um það
rætt að komast fyrir heyannir, helst um
Jónsmessuna, en af því gat ekki orðið
og ferðin því ákveðin dagana 26.-28.
ágúst s.l. í byrjun ágúst sendi for-
maðurinn Sigrún Bjamadóttir út frétta-
bréf til allra félagsmanna, þar sem m.a.
þessi ferð var kynnt og félögum gefinn
kostur á að komast með. Við höfum
undanfarin ár átt ágæt samskipti við
Guðmund Tyrfingsson á Selfossi, sem
gerir út hópferðabíla, og var samið við
hann um bíl í þessa ferð á sömu nótum
og áður hefur verið, þ.e. að einn spila-
félaginn Jóhann Bjarnason skyldi aka.
Á föstudagsmorgni kl. 11.00 þann 26.
ágúst var svo haldið af stað frá
Skeiðavegamótum og ferðinni heitið á
Sprengisandsleið, en ekki höfðu verið
farnir nema svo sem 10-15 km, þegar
framrúðuþurrkurnar neituðu að vinna
og var ekki efnilegt að halda þannig
áfram, þar sem rigning var nokkur og
spáin ekki góð fyrir daginn. Það kom
sér vel nú að hafa farsíma í bílnum, í
gegnum hann var ákveðið að skipta um
bíl og koma með hann til móts við
okkur. Ekki tafði þetta meir en klukkus-
tund, því að lagt var af stað aftur frá
Skeiðavegamótunum kl.rúml. 12.00.
Þessi bíll reyndist okkur vel í allri fer-
ðinni og fór vel með farþegana. Við
vorum 19 félagar úr H.F.R. og að auki
Gísli Brynjólfsson í Hveragerði og
kona hans svo að alls vorum við 21
sem fórum í þessa ferð. Ferðin upp úr
byggð gekk að óskum og þegar kom
upp fyrir Búrfell sá meira að segja til
sólar smástund, en dökkt var í lofti að
sjá til norðurs. Við Hrauneyjafoss-
virkjun var áð í smástund en síðan
haldið áfram sem leið liggur vestan
Þórisvatns og komið í Versali um kl
14.30. Við höfðum ágæta fjallasýn þan-
gað inn eftir og góða leiðsögn Vals
Haraldssonar sem gjörþekkir flest öll ef
ekki öll kennileiti á þessum slóðum í
það minnsta þau sem tilheyra
Suðurlandi. f Versölum var tekið upp
nesti og borðað vel en að því loknu
voru hljóðfærin dregin fram og spiluð
nokkur lög fyrir heimafólk og gesti. Úr
Versölum var haldið eftir u.þ.b.
klukkustundar dvöl og haldið sem leið
liggur yfir Þveröldu á leið F 28. Aðeins
var stansað í Svartárbotnum, en veðrið
var að verða leiðinlegt og því fljótlega
haldið af stað aftur. í Nýjadal komum
við kl. 17.00, þá var komið talsvert rok
og rigning. Þarna er leiðin frá
Hrauneyjum að Mýri í Bárðardal
nálægt því hálfnuð, svo ekki dugði að
doka lengi við. Bar fátt til tíðinda næstu
þrjár klukkustundirnar. Eftir því sem
norðar dró varð þokan svartari og þó
sennilega mest í Kiðagilsdrögum,
útsýni varla meir en bfllengd. Ekki var
um annað að gera en stytta leiðina með
söng og harmoníkuspili sem Grétar
Geirsson sá um. Eftir smá viðkomu í
verslun að Fosshóli var dagleiðin senn
á enda. Nú var stutt að Breiðumýri í
Reykjadal þar sem við skyldum hafa
aðsetur meðan á ferðalaginu stæði, en
þangað komum við kl.21.00. Hér
verður vart með orðum lýst þeim mót-
tökum sem við fengum hjá
Harmoníkufélagi Þingeyinga. Það var
eins og allir hefðu verið kunningjar frá
æskuárum og inn í sal höfðu eiginkonur
félaganna lagt á borð með góðum
málsverði og kaffi á eftir. Stefán
Þórisson formaður H.F.Þ. bauð gesti
velkomna og útskýrði það helsta um
fyrirkomulag heimsóknarinnar og
Hákon Jónsson flutti gamanmál. Sigrún
Bjarnadóttir formaður H.F.R. þakkaði
móttökumar fyrir okkar hönd. Var svo
tekið við að spjalla saman og auðvitað
vom nikkumar teknar upp og meira að
segja dansað smávegis. Þessu lauk svo
um miðnættið og vom flestir hvfldinni
fegnir. Á laugardeginum var ákveðið að
fara í ferð til Mývatns og var lagt upp
frá Breiðumýri rétt fyrir hádegi undir
stjóm Stefáns Þórissonar. Ekki er hægt
að segja að veðurguðimir væru okkur
hliðhollir þennan dag fremur en daginn
áður. Þó ekki rigndi mikið á sunnlensk-
an mælikvarða var skyggni ekki gott,
og þar af leiðandi nutum við ekki alls
þess fróðleiks sem Stefán Þórisson býr
yfir. Hann gjörþekkir öll fjöll og kenni-
leiti, kann sögur því til stuðnings og
hefur góða og mjög skemmtilega
frásagnarhæfileika. Það væri vel til
vinnandi að endurtaka þessa ferð að
Mývatni með Stefáni í góðu og fögru
veðri. Eftir ferðina sunnan Mývatns og
að Kröfluvirkjun var stansað við Hótel
Reynihlíð og tekið fram nesti, en síðan
haldið sem leið liggur Kísilveginn til
Húsavíkur. Á Húsavík var opið
Safnahúsið og dvöldum við þar við
skoðun og fróðleiksfrásögn safnvarðar
dágóðan tíma, en þegar því lauk var
óráðið hvað gera skyldi við tímann,
vorum rétt komin af stað á rútunni
þegar jeppabifreið stöðvaði allt í einu
fyrir framan okkur. Þarna reyndist
kominn einn úr stjórn H.F.Þ. Þorgrímur
Björnsson, hann bauð öllum mann-
skapnum heim í kaffi. Ekki verður á þá
Þingeyinga logið, að þeir eru miklir
höfðingjar heim að sækja og sannaðist
það svo sannarlega nú, því ekki var
kaffið bara eitt og sér heldur nokkrar
líkjörstegundir og koníak fyrir þá sem
vildu. Hjá Þorgrími og konu hans hefði
verið hægt að stoppa miklu lengur við
spjall og glens, en klukkan gekk og við
áttum að mæta í kvöldverðarboð á
veitingahúsið „Bakkanum" kl 18.00 í
boði H.F.Þ. Þetta veitingahús rekur
Sigurður Friðriksson félagi og harm-
oníkuleikari í H.F.Þ. ásamt konu sinni
Sólrúnu og var mikið innilega tekið á
móti okkur. Auðvitað voru nikkurnar
teknar upp úr töskunum og spilað áður
en sest var að borðum, og mátti líta á
9