Harmoníkan - 01.03.1995, Qupperneq 10
það sem sjálfsagðan fordrykk fyrir
matinn. Ég ætla ekki að reyna að lýsa
öllu því góðgæti sem á borð var borið,
en fínustu hótel hérlendis hefðu getað
verið stolt af, enda sýnilegt að matnum
voru gerð góð skil á öllum borðum.
Stjórn félagsins sem sat borðhaldið
með okkur og eigendur staðarins eiga
mikið lof skilið fyrir þessar höfðing-
legu móttökur. Ég fæ því ekki lýst með
orðum. Eftir að staðareigendur höfðu
verið kvaddir héldum við að Breiðu-
mýri og var rétt tími að leggja sig og
slappa af í klukkustund, því að dans-
leikurinn átti að byrja kl. 22.00 í hús-
inu. Þetta var hörku ball sem stóð til kl.
3.00 og eitt var víst að ekki vantaði
nikkara, en Þingeyingar og Rangæingar
skiptust á að spila og kom það létt
niður á hverjum og einum nema Grímur
bassaleikari á Rauðá tók sér aldrei hvíld
og sá honum enginn bregða. Það var
eftirtektarvert á þessu balli að varla sást
að Bakkus væri með í för hjá neinum
gesta og skemmti fólk sér konunglega
engu að síður og dansaði mikið. Ekki
var klukkan mikið yfir 8 á sunnu-
dagsmorgninum þegar þeir fyrstu
vöknuðu og lítill svefnfriður eftir það,
enda var áður búið að ákveða að leggja
af stað heimleiðis um kl. 10.00. Stefán
form. H.F.Þ. og kona hans mættu á
staðinn skömmu fyrir brottför, til að
kveðja mannskapinn og óska okkur
góðrar ferðar heim. Nú var komin sól
og blíðskaparveður eftir alla rigninguna
og þokuna sem við fengum tvo dagana
á undan, en Þingeyingar sögðu okkur
að það hefðu verið einu rigningamar í
langan tíma hjá þeim. Að lokinni
kveðjustund var haldið af stað sem leið
liggur að Fosshóli, en þar þurftu
konurnar endilega að stoppa til að líta
inn í markaðsverslun sem verslar með
þingeyskan heimilisiðnað og kannski
víðar að kominn. Ekki gerðist margt
næstu klukkustundirnar annað en það
að bílstjóri okkar hélt sig á þjóðvegi
eitt, og gaf okkur svo tíma í Varmahlíð
til að fá sér í svanginn. Var nú bollalagt
um hvort fara skyldi Kjalveg heim eða
halda sig á þjóðveginum og varð það úr
að athuga vel fjallasýn til suðurs þegar
kæmi upp á Vatnsskarð. Það reyndist
ágæt ákvörðun því að öllum sýndist
léttskýjað svo langt sem augað eygði
og þar að auki voru að minnsta kosti
sex úr hópnum sem aldrei höfðu farið
þessa leið. Við fengum ágætis veður og
útsýni, áðum nokkrum sinnum á leið-
inni og svo var að sjálfsögðu stansað
drjúgt og skoðað hverasvæðið á
Hveravöllum. Valur Haraldsson var nú
sem áður okkar aðal uppfræðandi um
kennileiti, fjöll, ár og jökla, og virðist
þekkja vel til á sunnlenskum öræfum í
gegnum æfingar hjá Flugbjörgunar-
sveitinni á Hellu sem ég held hann sé í
forsvari fyrir. Það var svo kl.20.30 sem
við komum á Selfoss, eftir vel heppn-
aða ferð, og nú var komið að kveðju-
stund. Allir voru ánægðir eftir góða og
vel heppnaða ferð, með skemmtilegar
minningar en kannski ofurlítið þreyttir.
Læt ég svo þessari ferðasögu lokið.
Fréttabréf Harmoníkufélags Þíngeyínga
Aðalfundur félagsins var 3. október
1993. Sameiginlegur dansleikur með
F.H.U.E. var haldinn í október.
Árshátíð félagsins var að Breiðumýri
13. nóvember. Fór hún hið besta fram
undir öruggri veislustjórn Stefáns
Leifssonar. Gestaspilari var Reynir
Jónasson og einnig lék Sigurður
Hallmarsson nokkur lög með honum.
Ýmis önnur ágæt skemmtiatriði voru,
m.a. gamanvísnasöngur og upplestur.
Veislugestir voru um 150. Félagar úr
H.F.Þ. léku svo fyrir dansi til kl. 3.30.
Á félagsfundi 5. desember var skipuð
fimm manna nefnd til að safna upp-
lýsingum um harmoníkuleik og spilara
í Þingeyjarsýslu fyrr og nú og ahuga
hvort gefa ætti út bók um þetta vel tæk-
ist til. Þann 19. febrúar fóru spilarar úr
H.F.Þ. að leika fyrir dansi, fyrir dans-
félagið „Líf og fjör“ á Akureyri.
Útbúið var lítið herbergi í kjallara
samkomuhússins á Breiðumýri, fyrir
muni og hljóðfæri félagsins og gekk
formaður síðan frá tryggingu á hljóð-
færunum gegn bruna og fl. Einnig
lagfærði húsvörður með formanni her-
bergið og gengið var frá ýmsum
munum á hillum og veggjum. Þá gekkst
félagið fyrir dansleik í bamaskólanum í
Bárðardal 26. febrúar. Var þar ma. tertu
og bögglauppboð, en félagið hefur í
nokkur ár haldið dansleiki í héraðinu
við miklar vinsældir. Sameiginlega
samkomu hélt H.F.Þ. með karlakómum
Hreim 18. mars, aðsókn var góð. Á
skemmtuninni var H.F.Þ. með einleik,
dúett, kvartett og sextett, auk þess spi-
laði Aðalsteinn Isfjörð og Inga
Hauksdóttir nokkur lög með karlakór-
num Hreim. Danstónlistina sá H.F.Þ.
um. Formaður ásamt konu sinni sat tíu
ára afmælishóf í boði Harmoníkufélags
Héraðsbúa níunda apríl síðastliðinn.
Afhenti hann afmælisgjöf til H.F.H. en
það var skjöldur úr birki með mynd-
verki unnið af Kristínu Þórðardóttur, en
hún er félagi í H.F.Þ. Kaffikvöld var
annan maí á veitingastaðnum „Bakk-
anum“ Húsavík en Sólrún Hansdóttir
og Sigurður Friðriksson eiga og reka
staðinn. Um Jónsmessuna var sam-
eiginleg sumarhátíð H.F.Þ. og F.H.U.E.,
og var hún að þessu sinni haldin að
Hrafnagili í Eyjafirði. Veður var fremur
leiðinlegt og aðsókn ekki góð. En þeir
sem mættu á staðinn skemmtu sér við
leiki og dans. Þann 13. ágúst spiluðu
félagar fyrir dansi á bændadansleik að
Breiðumýri. Föstudaginn 19. ágúst stóð
félagið fyrir skemmtiferð vestur í Dali
og Reykhólasveit. Farið var á rútu alls
40 félagar. Félagar Nikkólínu biðu
okkar með ágæta hressingu að Árbliki í
Dölum. Gist var að Laugum í
Sælingsdal. Um kvöldið var samkoma
að Staðarfelli í umsjá Dalamanna. Á
laugardagsmorgun héldu menn í
Reykhólasveit og að Bjarkarlundi og
þaðan í Reykhóla. Um kvöldið héldu
H.F.Þ, félagar harmoníkudansleik í
Vogalandi Króksfjarðamesi, aðsókn var
10