Harmoníkan - 01.03.1995, Side 14
Af haustfundi
S.Í.H.U.
Haustfundur Sambands Islenskra
Harmoníkuunnenda var að þessu sinni í
boði F.H.U. í Reykjavík og var hann
haldinn á Hótel Lind laugardaginn 8.
október s.l. Þarna voru saman komnir
formenn og fulltrúar harmoníkuféla-
ganna af öllu landinu rúmlega 20
manns auk stjórnar S.I.H.U.A föstu-
dagskvöldið var þessu fólki auk maka
boðið í veislu að Ásbúð 17 í Garðabæ
til Hilmars og Sirrýar og stóð gleðskap-
urinn fram á nótt. Nú verður stiklað á
stóru varðandi hvað fram fór á fund-
inum.
Úr skýrslu stjórnar:
Ásgeir formaður.
Fyrir nokkrum árum var tekinn af
dagskrá Ríkisútvarpsins harmoníku-
þáttur þrátt fyrir að hann ætti sér stóran
hlustendahóp í öllum byggðum lands-
ins samkvæmt hlustendakönnun.
Saumastofugleðin getur á engan hátt
komið í staðinn fyrir þennan þátt enda
er hún meira miðuð við óskir eldri
borgara. Þrátt fyrir hringingar og bréf
hafa stjórn ekki borist nein viðbrögð af
hálfu R.Ú.V.
Þau lög sem unnu til verðlauna á
síðasta landsmóti stóð til að gefa út t.d.
á geisladisk. Þegar síðast fréttist höfðu
því miður ekki enn borist öll lögin. Er
það ósk okkar, að þeir sem enn eiga
eftir að senda inn sín lög (og nótur) á
hljóðsnældu geri það hið fyrsta. Fyrr
getur þessi útgáfustarfsemi ekki farið af
stað. Mælst er til að senda þetta til
Ásgeirs á ísafirði.Þegar undirritaður
skrifaði um síðasta haustfund í þetta
blað í október 1993 kom fram að Tatu
og Daniel höfðu sótt um styrk til
S.Í.H.U. til að gefa út geisladisk. Fyrir
hönd félagsins ritaði Ásgeir bréf, þar
sem harmað var að þurfa að tilkynna
þeim, að þeir gætu ekki fengið þá
fjárhagsaðstoð frá okkur sem þeir
óskuðu eftir og ástæðurnar fyrir því
raktar. S.Í.H.U. mun mjög gjarnan sjá
um dreifingu á slíkri plötu ef eftir því
yrði leitað. Jafnframt er sambandið
reiðubúið að veita alla aðstoð sína ef af
tónleikaför þeirra yrði til íslands. Þetta
var úr bréfinu til Tatu og Daniels.
Messíana hefur unnið að því, að sam-
ræma kennsluefni fyrir harmoníku á
landinu öllu. Hún hefur fengið til liðs
við sig aðra harmoníkukennara, en auk
þeirra leitað fanga á Norðurlöndunum
og hjá Hrólfi Vagnssyni í Þýskalandi.
Þótt undarlegt megi virðast hefur þetta
námsefni aldrei verið til í námsskrám
hér á landi fyrir tónlistarskóla og þar af
leiðandi engin samræmd stigspróf til.
Ötult fólk sem þekkir þetta af biturri
reynslu er að vinna í þessu fyrir okkur
undir stjórn Messíönu.
Lög S.Í.H.U. hafa verið í endur-
skoðun hjá tveimur röggsömum kon-
um, sem til starfsins voru ráðnar. Þær
eru Sigrún varaformaður og Guðrún
gjaldkeri báðar í S.Í.H.U. Áætlanir gera
ráð fyrir að tillögur frá þeirra hendi líti
dagsins ljós á næsta haustfundi og
forsvarsmenn félaganna hafi þær með
sér heim í hérað til umfjöllunar. Síðan
verði til svokallaðar „fullmótaðar
tillögur" sem bomar verða upp á aðal-
fundi sem alltaf er í tengslum við
landsmót. Lagabreytingar ná aðeins
fram á aðalfundi. Forsvarsmenn félag-
anna fengu í hendur nýútkomna geisla-
diska og hljóðsnældur með leik Braga
Hlíðberg. Ætlast er til að menn selji
þetta í sinni heimabyggð. Ásgeir for-
maður tók það fram, að margir hringdu
í sig út af málefnum harmoníkunnar og
væri það vel og hann áréttaði, „að rnenn
mættu hringja á öllum tímum sólar-
hrings, ef um væri að ræða mál har-
moníkunnar,” þá vitum við það.
Reikningar
Guðrún Jóhannsdóttir gjaldkeri lagði
fram endurskoðaðan rekstrar- og efna-
hagsreikning eins og venja er fyrir
hvern haustfund. Tekjuafgangur varð
upp á rúmar 360.000 krónur og
höfuðstóll upp á rúmar 1.300.000
krónur. Því miður eru
ennþá örfá félög sem eiga
eftir að greiða árgjaldið
fyrir 1993 kr. 2.000,- fyrir
hvert félag. Ennþá eru til
videospólur frá landsmót-
unum í Eyjafirði og á
Laugum á 1.000 kr.
stykkið. Spólan frá Egils-
stöðum er líka til á lager.
Reikningarnir voru sam-
þykktir mótatkvæðalaust.
íslensku
alþýðutónlistar-
samtökin (ÍSAT)
Bréf barst til formanns
okkar frá Sigurði Rúnari
Jónssyni (Didda fiðlu).
Það átti að hittast og reifa þá hugmynd,
að íslenskir „hópar” gengju til liðs við
norrænu alþýðutónlistarsamtökin (Nor-
disk folkemusikkkommité, skamm-
stafað N.F.), sem hafa verið starfrækt á
Norðurlöndunum frá 1982. Sigrún
Bjarnadóttir varaformaður var ráðin til
þess verks. I þessum ÍSAT flokki eru
auk S.Í.H.U.: Þjóðdansafélag Reykja-
víkur, Kvæðamannafélag Hafnarfjarðar,
Vísnavinir og Kvæðamannafélagið
Iðunn. Ákveðið var á fyrsta fundi 28/2,
að sækja um aðild að N.F. og þau félög
sem áður voru nefnd skipuðu með sér
stjórn og síðan gerðust nú hlutirnir
hratt, því að ársþing N.F. var haldið hér
á landi í ágúst s.l. og stóð í 3 daga.
Fjögur harmoníkufélög (íslensk að
Á heimili formanns F.H.U.R. kvöldið fyrir landsfundinn.
14