Harmoníkan - 01.03.1995, Qupperneq 15
Nokkrir formenn og fulltrúar Landsambandsfélaganna við hádegisverðarborð á
veitingastaðnum A rgentínu.
sjálfsögðu) léku þarna. Markmið N.F.
hefur verið „að stuðla að samstarfi milli
aðila á Norðurlöndunum sem iðka
þjóðlega tónlist og dans í víðum skiln-
ingi”. Það var kominn tími til að ná
sambandi við íslendinga, því það var
lítið fyrir.
Erlend heimsókn
- tónleikaferð
Asgeir vildi heyra viðhorf fundar-
manna til þess, að fá hingað nú í sumar
harmoníkuleikara, sem færi/færu um
landið og héldu tónleika og spiluðu
jafnvel fyrir dansi. Þetta var vel hægt
1952 þegar Toralf Tollefsen heimsótti
okkur sællar minningar. í viðtalsbók
sem gefin var út þegar hann varð
áttræður kemur fram, að á þessum rúma
mánuði sem hann var á Islandi hélt
hann 52 tónleika og þeir urðu flestir 3
sama daginn. Margir frægir harmon-
íkuleikarar hafa heimsótt okkur síðan.
Það voru nefnd mörg fræg nöfn í þessu
sambandi, en fyrir mörg okkar eru þau
framandi því Ríkisútvarpið hefur ekki
sinnt þeim málum. Það eru helst þeir
sem kaupa þetta blað eða erlend rit um
sama efni, sem þekkja deili á erlendum
harmoníkusnillingum. Það hefur sann-
að sig, að margir góðir vilja koma hing-
að ánægjunnar vegna og þurfum við
bara að greiða ferðimar og uppihaldið.
Meira að segja fimmtán manna harm-
oníkuhljómsveit hefur ritað hingað
bréf, því þá langar til að koma. Menn
voru á einu máli um ágæti þess að fá
hingað “frægt” fólk í harmoníkuleik og
við ættum kannski að fara að sýna
tvöföldu harmoníkunni meiri sóma,
stakk einn uppá. Samþykkt var að vísa
málinu til stjómar.
Næsta landsmót
Sigrún varaformaður hafði hér fram-
sögu. Næsta landsmót verður haldið í
Rangárvallasýslu, nánar tiltekið að
Laugalandi í Holtum. Þar eru t.d. til
staðar tveir danssalir í sama húsinu,
gistiaðstaða fyrir 30 manns (ennfremur
á Hellu), svefnpokapláss fyrir 200
manns og auk þess er umhverfið fallegt
með miklum gróðri og tjaldstæðum.
Eins og gefur að skilja er heilmikill
undirbúningur fyrir heilt landsmót og
að mörgu að hyggja. Dagskráin var
ekki enn fullmótuð og er spurning
hvort af lagakeppni verður eins og á
Egilsstöðum. Þeirri spumingu var líka
velt upp hvort ekki ætti að hafa keppni
í harmoníkuleik frekar en lagakeppni
og veita að sjálfsögðu verðlaun fyrir.
Fundarmönnum sýndist sitt hverjum
um lagakeppni á hverju landsmóti. það
er heldur ekkert því til fyrirstöðu ef
ekki er haldin lagakeppni, að félögin
hefðu haft lagakeppni og spiluðu svo
sigurlagið á efnisskrá sinni á landsmóti.
Allir fundarmenn vom þó sammála um,
að nú yrði að takast að gera gott mynd-
band af landsmótinu. Nú mætti þetta
ekki klikka! Sigrún taldi það kraftaverk
ef Ríkissjónvarpið eða Stöð 2 fengjust
til að taka þetta upp. Að mati
Héraðsbúa kostar að gera gott mynd-
band 400.000 til 1.000.000 krónur.
Þessi gífurlegi kostnaður stóð í mönn-
um, svo Stefán frá Hólkoti í Reykjadal
sagði, að litlar vélar tækju líka góðar
myndir og þetta þyrftu ekki endilega að
vera atvinnumenn - þetta var hans
reynsla. Það má þó segja, að mynd-
böndin frá landsmótunum hafa verið að
þróast í betri átt. Skv. rekstrarreikningi
nú voru seldar 192 myndbandsspólur
fyrir 442.400 krónur. Kostnaður vegna
myndbandagerðar kr. 450.087,-.
Blaðið Harmoníkan
Guðrún gjaldkeri lagði fram þá
tillögu, að styrkur til blaðsins Harm-
oníkunnar yrði hækkaður í 70.000
krónur. Menn töldu að peningum Sam-
bandsins yrði varla betur varið en í
þetta málefni, þar sem harmoníkublaðið
er okkar eini tengiliður í harmoníku-
málum ef svo má að orði komast.
Tillagan var samþykkt einróma.
Næsti haustfundur
Hann verður einhvers staðar í Borg-
arfirði
Önnur mál
Flest af því sem kom þar fram hefur
verið fléttað inní skrifin hér að framan,
beint eða óbeint. Ég tel samt rétt að
ítreka þá lítilsvirðingu sem fjölmiðlar
t.d. tónlistardeild Ríkisútvarpið hefur
sýnt málefnum harmoníkunnar, sérstak-
lega nú á síðustu misserum. Þrátt fyrir
öll þessi harmoníkumót á sumrin, líf-
lega starfsemi á vetrum og allt þetta,
sem dregur að sér fjölda fólks, skuli
nánast ekkert heyrast af þessu í
útvarpinu hvað þá í sjónvarpi. Hvað er
til ráða? Menn hafa verið að safna
undirskriftum í félögum, sem er gott
mál og það kemur vonandi til að hreyfa
við réttum aðilum. Stöndum saman og
skrifum okkur á listana.
Ásgeir S. Sigurðsson formaður
S.I.H.U. þakkaði að endingu Hilmari
og Sirrý fyrir heimboðið, svo og F.H.U.
í Reykjavík fyrir að sjá um skipu-
lagninguna og framkvæmdina á þessum
haustfundi sem tókst með mestu prýði.
Þessum haustfundi var svo raunveru-
lega slitið um kvöldið eftir mat, drykk
og dansleik á Hótel Lind og voru for-
svarsmenn félaganna leystir út með
gjöfum.F.H.U. í Reykjavík - hafið
mínar bestu þakkir fyrir höfðinglegar
móttökur.
Gunnar Gauti Gunnarsson
ritari S.Í.H.U.
15