Harmoníkan - 01.03.1995, Síða 16
Nvir vendir
sópa best
Snjallar hugmyndir eiga ávallt rétt á
sér, sumar verða bara bóla en aðrar að
veruleika. Góð og framsýn hugmynd
sem kom fram á sjónarsviðið 1986 og
komst í framkvæmd, hefur án efa
þokað mörgum málefnum Sambands
íslenskra Harmoníkuunnenda áfram
hraðar og skilvirkar en ef aldrei hefði af
orðið. En hver var nú þessi hugmynd
og hver stóð að baki henni. Ingvar
Hólmgeirsson heitir maðurinn, hann er
annar formaður S.f.H.U. (1984-1987 )
og jafnframt fyrsti ritari sambandsins
frá stofnun þess 3/5 1981.
Ingvar lýsir hugmynd sinni svo.
Miðað við yfirsýn um starfsemi aðild-
arfélaga sambandsins 1984 þóttist ég
fljótlega sjá að meira þyrfti til að
treysta kynni fólksins sem var í forsvari
félaganna á landinu, því afréð ég að
kalla saman alla fulltrúa starfandi har-
moníkufélaga sem þá voru orðin um tíu
talsins og bera undir þá hugmyndina
um að halda árlega ráðstefnu innan
sambandsins. Hugmyndin fékk góðar
undirtektir enda félögin dreifð um
landið þvert og endilangt og símtöl
þjónuðu ekki þeirri kynningarstarfsemi
er þurfti til. Árleg ráðstefna væri kann-
ski lausnin. Tímabilin milli landsmóta
og þar með taldar haustráðstefnurnar
marka stefnuna til endanlegrar ákvörð-
unar á sjálfum aðalfundum S.Í.H.U.
Samkvæmt fenginni reynslu nú er
öllum ljóst mikilvægi þessa þáttar í
starfi sambandsins og hann með öllu
ómissandi og áhugaverður fyrir sam-
starf harmoníkuunnenda. Ráðstefnumar
eru haldnar í september eða október ár
hvert. Engum dytti til hugar nú að gera
tillögu um að slá þær út af borðinu.
Eins og áður sagði var Ingvar annar
formaður S.Í.H.U, tók við af Karli
Jónatanssyni. Ingvar var kosinn í þetta
veigamikla embætti á aðalfundi sam-
bandsins að Varmalandi í Borgarfirði
1984. Hann mat landssambandsfor-
mennskuna á þessum þremur árum svo
að eðlilegast væri fyrir slíkan formann
að sinna embættinu aðeins eitt
kjörtímabil, milli landsmóta og sinna
því þá vel. Hans skoðun er sú að nýir
Ingvar Hólmgeirsson.
vendir sópi alltaf best. Þá vill Ingvar
bæta því við, ef litið sé til baka hafi haft
mikið að segja fyrir starfið, heimsóknir
og samstarf við hina fjölmörgu erlendu
harmoníkuleikara og hljómsveitir, þær
hafi kveikt verulegan áhuga hérlendis,
margs sé að minnast í þeim efnum. Eins
sé notaleg tilfinning að hafa ýtt undir
þróun harmoníkustarfsins hér innan
lands. Fyrsta haustráðstefna sem haldin
var að frumkvæði Ingvars Hólmgeirs-
sonar fór fram 26. september 1986 í
Lundarskóla á Akureyri. Til gamans
fylgir hér að neðan fyrsta fundargerð
haustráðstefnunnar þar sem fram kemur
hvaða félög sendu fulltrúa og hvert var
aðalmál fundarins. Ekki verður annað
séð en tilhögun ráðstefnanna fari enn
þann dag í dag fram með líku sniði og
sú fyrsta. H.H
Fyrsta fundargerð haustráð-
stefnu.
Ráðstefna S.Í.H.U. var haldin 26.
sept. 1986 í Lundarskóla á Akureyri,
eftirtalin félög sendu fulltrúa:
Harmoníkufélag Þingeyinga, Harm-
oníkufélag Héraðsbúa, Harmoníku-
félag Rangæinga, Harmoníkufélag
Hveragerðis, Félag Harmoníkuunn-
enda Reykjavík, Félag Harmoníku-
unnenda við Eyjafjörð, Harmoníku-
félagið Blönduósi og Harmoníku-
unnendur Vesturlands. Formaður
setti ráðstefnuna og bauð fulltrúa
velkomna. Fulltrúar gerðu grein fyrir
starfsemi félaga sinna og virtist
mikil gróska vera í starfseminni. Þá
vatt formaður sér í aðalmál ráðstefn-
unnar, sem var væntanlegt landsmót
á komandi sumri, en Eyfirðingar
eiga að hafa veg og vanda af því.
Nokkrar umræður urðu um móts-
daga og var sæst á dagana 26.-28.
júní 1987. Sigurður Indriðason gerði
grein fyrir könnun nefndar sem hann
veitti forstöðu. Nefndin lagði fram
tvo valkosti: Að hafa mótið í Lund-
arskóla, tónleika og dansleiki í í-
þróttaskemmunni. Síðari kosturinn:
Að mótið yrði haldið á Laugalandi í
Eyjafirði, tónleikar og dansleikir í
Freyvangi og Laugaborg. Talsverðar
umræður urðu um tillögumar og var
síðari kosturinn valinn.
Hannes Arason ritari.
RS. Síðar um kvöldið nutu full-
trúar svo og makar sameiginlegs
kvöldverðar, að honum loknum var
svo stiginn dans fram eftir nóttu.
f desemberblaði Gammeldans í
Noregi mátti reka augun í bréf frá les-
endum „Kontaktannonser", eins konar
einkamálaauglýsingar, þar sem óskað er
eftir (nánum) kynnum við aðra. I formála
efst á síðunni er þess getið að þarna sé
pláss í blaðinu fyrir þá sem eru að leita
eftir vinskap fólks með áþekk áhugamál.
Svör eiga að vera merkt sérhverri aug-
lýsingu, og verða send viðkomandi óop-
nuð. Ekki er minnst á neina gjaldtöku af
hálfu blaðsins fyrir þjónustuna. Þ.Þ.
Athugull maður við sorpeyðingu á
ísafirði, fann á síðasta ári kassa með
nokkrum 78 snúninga hljómplötum sem
hann tók til handargagns og færði plö-
tusafnaranum Sigurjóni Samúelssyni
þær. Á plötunum voru m.a. lög með leik
Tollefsen, sem Sigurjón átti ekki í safni
sínu og þóttist því heldur hafa komist í
feitt. Því má segja, að það sem einum
finnst vera bara eintómt drasl, getur verið
gullmoli í augum annars. Þ.Þ.
16