Harmoníkan - 01.03.1995, Page 20
Allt fram til þessa hafði veðrið leikið
við leiðangursmenn og konur, sól og
hið fegursta haustveður, en þó jafnvel
hlýrra en vænta mátti á þessum árstíma.
Nú voru gestir og samferðamenn, sem
komið höfðu norður heiðar kvaddir
Lagið tekið í Klúkuskóla. Halli og Villi Valli eru
Messíana sluppu.
, nýklipptir ” en Óli Th og
að nýju og var túlkun Ásbjörns á
honum endurvakin og mjög aukin (en
ekki bætt)!
Næsti viðkomustaður var Drangsnes,
þar sem stóð yfir mikil afmælishátíð í
tilefni 50 ára afmælis skólans og kapel-
lunnar þar. Mættu harmoníkufélagar
þar mitt í hátíðarveisluna og tróðu upp
með nokkur vel valin lög við mjög
góðar undirtektir veislugesta. Síðan
röðuðu menn í sig kræsingum, þökkuðu
fyrir sig og kvöddu.
Eftir kvöldmatarveislu á Laugarhóli
fóru menn svo að tygja sig til har-
moníkudansleiks sem auglýstur hafði
verið í Félagsheimilinu á Hólmavík.
Forseti vor, Ásgeir S. tók nú við
akstri og var ekið mjög örugglega (en
hægt) til Hólmavíkur, þar sem ballið
hófst síðan á tilsettum tíma. Hólm-
víkingar og nágrannar þeirra mættu vel
til leiks, enda hafði þetta staðið til um
nokkurt skeið. Nú bættist liðsauki
óvænt í hópinn, þar sem var harðsnúin
sveit Dalamanna, með söngvara í liðinu
og var þeim vel fagnað. Dansleikurinn
tókst í alla staði vel og varð að öllu
samanlögðu hin ágætasta skemmtun og
stóð svo langt fram á nótt sem siðsemi
og löggæsla frekast leyfði. Eftir að öllu
þessu lauk var ekki annað að gera en
fara heim að Laugarhóli og rútan náði
þangað örugglega (en hægt) vel fyrir
birtingu. Flestir sofnuðu nokkuð fljót-
lega og allir sváfu (að sögn).
Sundlaugin var síðan notuð strax um
morguninn, enda heit og góð og auk
þess náttúrulegur hitapottur við hendina
fyrir þá sem sem þurftu að ná úr sér
strengjum eða öðrum ónotum.
með söknuði og fyrirheitum um endur-
fundi, og það heldur fyrr en síðar.
Þegar lagt var af stað heimleiðis fór
að þykkna í lofti og rigna nokkuð. Þetta
kom þó ekki að sök því bíllinn var bæði
hlýr og góður. Sungið var og kveðið á
heimleiðinni eftir því sem raddir
leyfðu, en því er ekki að neita að fyrr-
greindur Benni í Eyjum, þjóðsagnaper-
sóna Ásbjöms í Djúpuvík hafði leikið
raddbönd nokkurra grátt. Eftir viðkomu
í Djúpmannabúð og Súðavík rann upp
kveðjustund á Isafirði. Þar kvöddust
menn með nokkurri eftirsjá og héldu
hver til síns heima, en eftir lifir minn-
ingin um mjög vel heppnaða og
skemmtilega haustferð Harmoníku-
félags Vestfjarða 1994.
Séð til Djúpuvíkur. Verksmiðjan er til vinstri. Hluti hennar, m.a. síldarþrœr voru
byggðar neðanjarðar.
Munið
Þrastaskóg
4.-7. ágúst
1995
Um
verslunarmanna-
helgina
20