Harmoníkan - 01.03.1995, Page 21
Minning
Ingibjörg Kristinsdóttir
Ingibjörg K. Kristinsdóttir er fædd
að Skarði á Skarðströnd 7. febrúar
1924. Hún lést á heimili sínu Skarði
þann 29. október í haust. Ingibjörg var
yngst þriggja systra. Eftirlifandi eigin-
maður Ingibjargar er Jón G. Jónsson.
Þeim varð tveggja bama auðið.
Inga á Skarði eins og hún var jafnan
kölluð í daglegu tali var aðsópsmikill
persónuleiki og fór ekki leynt með
skoðanir sínar. Ég kynntist Ingu fyrir
allmörgum árum er ég við annan mann
kom að Skarði í þeim erindagjörðum að
skoða hina sögufrægu Skarðskirkju.
Heimsóknin að Skarði varð óvenju
minnisstæð og tók aðra stefnu en ætlað
var. Skarðsfólkið bauð okkur í siglingu
í gullfallegu veðri út í Rauðsey á
Breiðafirði í eigu Skarðs með Kristni
bónda, syni Ingu og fleiri aðilum.
Veðrið breyttist á leiðinni í land, eins
og hendi væri veifað skall á rok og ólgu
sjór, þannig að við vorum tvímælalaust
í lífshættu. Að auki var stríður straumur
á móti. En Kristinn stýrði fleyi sínu af
kænsku og kunnáttu og bjargaði okkur í
land. Þessi 10 mínútna sigling við
eðlilegar aðstæður tók á aðra klukku-
stund. Inga og hennar heimafólk tók
svo eftirminnilega á móti okkur hund-
blautum og gegnköldum að ekki líður
úr minni, kunningsskapur hélst æ síðan.
Inga unni tónlist og harmoníkan var
hennar hljóðfæri. Harmoníkufélagið
Nikkólínu í Dalasýslu bar oft á góma,
hún lék í hljómsveit félagsins við ýmis
tækifæri. Inga minntist oft hljómsveit-
arinnar Frostrósa sem eingöngu var
skipuð konum og hún var einn stofn-
enda að. Þær léku á dansleikjum víða
um Vesturland. Fleiri listrænum hæfi-
leikum bjó Inga yfir, málaði og saum-
aði af miklum áhuga. I júnímánuði
komum við að Skarði og hittum Ingu
að störfum í litlu húsi er staðsett var á
hlaði Skarðs. Hún vann þar að sínum
áhugamálum og seldi vöru sína. Það
leyndi sér ekki að heilsan var ekki upp
á það besta, en ekki mátti heyrast neinn
barlómur um þá hluti. Inga var hrein-
skilin að vanda og margt bar á góma.
Hún var stolt af uppruna sínum og hinu
fornar ættaróðali Skarði, en þar hefur
sama ættin sannanlega búið allar götur
frá því fyrir 1100, og að auki haldið
kirkju í einkaeign með merkum gripum
og sögu. Að Skarði var og hin þekkta
Skarðsbók rituð. Merk persóna er fallin
frá, en eftir sitja sterkar minningar um
glaðværan og hreinskiptinn persónulei-
ka sem þorði að segja meiningu sína og
vera hún sjálf. Við viljum senda eftirli-
fandi eiginmanni, syni og öðrum
ættingjum dýpstu samúðarkveðjur.
Hilmar Hjartarson.
yerðlaunagetraun k
wti/ Harmoníkunnar 1994-1995 (Seinni hluti)
Nú er komið að öðrum kafla verðlaunagetraun-
ar blaðsins (fyrri hluti keppninnar birtist í 1. tbi.
9. árg. 1994-95)
Alls verður að svara 8 spurningum rétt, nú
koma spurningarnar frá nr. 5-8 sem þátttakandi
skráir á svarseðilinn. Eins og áður hefur verið
skýrt frá um reglur keppninnar munum við
draga úr réttum lausnum 14. apríl 1995.
Áskrifandi þarf að hafa gert skil á áskriftar-
gjaldinu fyrir 1. apríl '95.
Svörin verða birt í síðasta tölublaði árgangsins
(maí 1995) ásamt nöfnum vinningshafa.
1 .verölaun:
Boösmiöi fyrirtvoámót
Harmoníkunnar í Þrastaskógi
1995 (Mótsgjald og tjaldsvæöi
alla helgina).
2. verölaun:
Nýútkomin geislaplata Braga
Hlíöbergs.
3. verölaun:
Frí áskrift blaösins 1995-1996.
4. verölaun: Sænskur pakki:
(Ný smáskífa frá Lars Ek + ný
14 laga snælda með Anniku og
Anders Larson).
Spurningar:
1. Jóhann K. Pétursson
(Svarfdælingur) lét sér-
smíöa fyrir sig harmoniku.
Hvaöategund erhún?
2. Gefin hefur veriö út ein stór
hljómplata meö leik tvöfal-
drar harmoníku og fiölu.
Hver lék á harmoníkuna?
3. Bragi Hlíöberg efndi til
harmoníkutónleika á unga
aldri í Gamla Bíó. Hversu
gamall var hann þá?
4. Hvaö nefnist hiö venjulega
6 raöa bassakerfi á harm-
oníku?
Sendu blaðinu svarseðilinn í lokuðu umslagi
og mundu eftir að skrifa nafn, heimilisfang og
síma aftan á seðilinn. Góða skemmtun
Ásbúð 17
Harmoníkan
210 Garðabær • Sími 91-656385
21