Harmoníkan - 01.03.1995, Blaðsíða 23
Þrasta-
skógur '95
Þátttakendur á mótinu í Þrastaskógi. Myndin erfrá 1993 og búið er að leggja inn
beiðni um jafngott veður nœsta sumar.
Eins og undanfarin tvö ár verður
Harmoníkan í Þrastaskógi um verslun-
armannahelgina, sem í ár verður 4,- 7.
ágúst. Mót þetta er orðinn fastur punkt-
ur hjá mörgum harmoníkuunnendum
og leggja margir á sig langferðir ár eftir
ár, sem sjá má á fólki sem kemur bæði
austan og vestan af fjörðum til að taka
þátt í gleðinni. Margir hafa eignast kun-
ningja sem þeir hafa hitt á mótinu og
eignast nýja vini. Að öllu jöfnu höfum
við verið heppin með veður þó svo að
það hafi brugðist á síðasta ári. Þrátt
fyrir það gerðu allir sitt besta til að
skemmta sér og þrátt fyrir að him-
inninn hafi verið hriplekur lét fólk það
ekki á sig fá. En undantekningin sannar
regluna og við eigum bágt með að trúa
því að ekki verði búið að setja bót á
greyið (himininn). Við erum því búnir
að leggja inn pöntun á góðu veðri og
fengið all góðar undirtektir sem lofa
góðu. Að sjálfsögðu munum við gera
okkur ýmislegt til gamans eins og ven-
julega og munum við greina nánar frá
því í næsta blaði. En fyrir alla muni -
standið klár af því að koma.
Þ.Þ.
MOIAR
Alþjóðlegt mót harmoníkuhljómsveita,
hið 5. í röðinni, verður haldið 4.-7. maí n.k.
í Innsbruck í Austurríki. Búist er við fjölda
hljómsveita þar á meðal nokkrum frá
Norðurlöndunum.
Þ.Þ.
* * *
Aðalfundur CIA og heimsmeist-
arakeppni voru haldin í Munster, í Asac í
Frakklandi. Kosin var ný stjórn, og er hún
þannig skipuð: Forseti: Ove Hahn
(Svíþjóð), aðalritari Walter Maurer (Aust-
urríki), meðstjórnendur: John Leslie (Eng-
landi), Kevin Fredricks (U.S.A.) og Paul
Marchetti (Frakklandi). I keppninni voru
það Spánverjar sem unnu fyrstu þrjú sætin,
nr. 1 - Alberti Inaki, nr 2 - Aizpiola Inigo
og nr 3 - Dieguez Inaki.
Næsta þing og heimsmeistarakeppni
verða 18. - 25. október 1995, í Svíþjóð.
Þ.Þ.
* * *
f sumar er væntanlegur 17 manna hópur
frá Norður-Sjálandi í Danmörku og dvelur
hér í um vikutíma. Fyrir þeim er Gitte
Rödkjær en hún er gamall nemandi Jeanette
Dyremose sem m.a. hefur um árabil stjóm-
að danskri harmoníkuhljómsveit sem er
eingöngu skipuð kvenfólki. Tengiliður Gitte
Rödkjær og félaga hér á landi er Karl
Jónatansson.
Þ.Þ.
Vigfús Sigurðsson frá Brúnum
Ort í Borgarfiröi
25.-26. júní 1994.
Hress er ég í huganum
hér er ei neitt til baga.
Sigmar hefur samið um
sólskin þessa daga.
Rakel heitir rauðhærð snót
röskari telpu enginn veit.
Hún lagði af stað, með fiman fót
að finna afa í Bæjarsveit.
Á heimleiö, viö
Nesjavelli:
Enn er Jói ekki seinn
að aka um móabörðin.
4-8-5 og einn
fóru í Borgarfjörðinn.
Harmoníkan í
Þrastaskógi 1994.
Ymis hljóð að eyrum bar
augu bama skinu.
Þegar saman safnast var
í sumar, í Gnmsnesinu.
Sólin fagra sést ei þar.
Seint trúi eg veðrið batni.
Gáttir himins gatslitnar
gusa á okkur vatni.
Innra sólskin eigum nóg
oss það gleði veki.
Harmoníkan hljómar þó
himinninn sífellt leki.
Vonlaus rosi virðist hér
vantar þurrk á heyið.
Himnafestingin hriplek er.
Hver á bót á greyið?
Vigfús frá Brúnum.
23