Harmoníkan - 30.05.1995, Blaðsíða 22
Fimm ár ab baki
Félag harmoníkuunnenda á Suður-
nesjum minntist 5 ára afmælis félagsins
26.febrúar síðastliðinn. Félagið var
stofnað 21. janúar 1990. Mjög var
vandað til afmælisins sem haldið var í
Flughótelinu í Keflavík, glæsilegu hót-
eli príddu fjölda listaverka og allsér-
stæðum skúlptúr verkum. Sýnilega
höfðu F.H.U.S. félagar ekki reiknað
með öllum þeim gestafjölda sem kom
við þetta tækifæri því bæta þurfti við
mörgum borðum. Ekki var að sjá að
þreifandi bylur drægi úr aðsókn. Þá
skorti ekki kræsingamar með kaffinu né
heldur fjölbreytta tónlistardagskrá.
Nemendur í harmoníkuleik úr fjórum
tónlistarskólum á Suðurnesjum komu
fram undir stjóm Guðmundar Samúels-
sonar úr Reykjavík, hann hefur annast
kennslu á harmoníkur Tónlistarskóla
Keflavíkur í vetur og leiðbeint hljóm-
sveit F.H.U.S. Margir heimamanna
drógu belginn, slógu gítarstrengi, léku á
trommur eða hljómborð á afmælishátíð-
inni. Þar mátti sjá formann félagsins
leika Hörð Jóhannsson, Kristin Kaldal,
Baldur Júlíusson, Ásgeir Gunnarsson,
Hafstein Snæland sem jafnframt var
kynnir, Þórólf Þorsteinsson, Guðmund
Ingólfsson og Gest Friðjónsson. Einnig
samglöddust Suðurnesjamönnum
nokkrir félagar úr F.H.U.R. og tóku
nokkur lög, Guðmundur Samúelsson
ásamt undirrituðum, Þorvaldur Bjöms-
son og Þorleifur Finnsson. Þá var og
hinn lauflétti Gísli Brynjólfsson fyrr-
verandi formaður Harmoníkuunnenda
Hveragerðis viðstaddur, og lét í sér
heyra í tali og tónum. Svæðisútvarp
þeirra Suðumesjamanna „Bros“ útvarp-
aði frá samkomuni í beinni útsendingu.
Fyrir hönd landssambandsins S.Í.H.U.
afhenti Guðmundur Samúelsson félag-
inu blómvönd. Frá F.H.U.R. var afhent-
ur fáni félagsins. Þegar svo heimamenn
og gestir höfðu nært sig á gómsætu
meðlætinu í tertum og tónum kom fyr-
irskipun um að allir sem dragspili gætu
valdið léku saman Jularbo valsinn
Drömmen om Elin. Þar með var dag-
skrá þessa tilefnis lokið. Úti gnauðaði
„Kári“ og hreytti úr sér dimmum éljum.
H.H.
Frá v. Baldur Júlíusson, Gestur Friðjóns-
son, Hafsteinn Snœland trommuleikari og
Guðmundur Ingólfsson á gítar.
Harmoníkuhljómsveit tónlistarskólanna á Suðumesjum; Tónlistarskólans Keflavík, Tónlistar-
skólans Grindavík og Tónlistarskólans Garði. Aftari röðfrá vinstri: Stefán Hjálmarsson,
Geirþrúður Bogadóttir, Þórunn Friðriksdóttir, Guðmundur Samúelsson stjórnandi og kennari,
Friðbjöm Bjömsson. Fremri röðfrá vinstri; Hlynur Snorrason, Sigurður Halldórsson,
Hrefna Magnúsdóttir. OlöfÖgn Ólafsdóttir og Svavar Magnús Einarsson.
Frá v. HörðurJóhanssonformaðurF.H.U.S. Guðmundur Ingólfsson gítarleikari, Jóhann
Guðmundsson hljómborð og Kristinn Kaldal.
22