Harmoníkan - 01.10.1997, Side 13
Hugleiðing að liðnum haustfundi
Haustfundur Landssambands harm-
oníkuunnenda var haldinn þ.27.september
s.l. eins og verið hefur síðastliðin 10 ár. Að
þessu sinni sáu Austfirðingar um skipulag
fundarins og móttöku formanna aðildarfé-
laganna og fulltrúa þeirra. Var móttaka og
skipulag H.F.H. með ágætum eins og vænta
mátti og ber að þakka þeim vel fyrir þá
vinnu.
Þessir haustfundir eru eitt það mikilvæg-
asta í starfi S.I. H.U. tel ég vera, þar sem
allir formenn og fulltrúar, koma saman til
skrafs og ráðagerða um væntanlegt starf á
komandi vetri og til framtíðar með það að
leiðarljósi að efla harmoníkuna sem hljóð-
færi alþýðunnar. Til að kenna ungum sem
öldnum að meta þetta hljóðfæri og þá fjöl-
breyttu tónlist sem hljóðfærið býður upp á
að leikin sé á það.
Þar sem ég gat ekki verið á fundinum
langar mig að fjalla um nokkur atriði sem
mér var tjáð að hefðu komið til umræðu á
fundinum.
Mér skilst að nokkurt orðaskak hafi far-
ið fram um lög félagsins en þau voru loks-
ins samþykkt á landsmótinu 1996 eftir
fjögurra ára starf mitt og núverandi for-
manns landssambandsins, Sigrúnar Bjarna-
dóttur. Þessi fjögur ár voru á hverjum
haustfundi lögð fram drög að lögum, til
umræðu og væntanlegrar samþykktar. Við
fórum af hverjum fundinum eftir annan
með veganesti til breytinga á því sem fram
var lagt, þar til að lokum þau voru sam-
þykkt í núverandi mynd. Það er von mín og
ósk að hægt verði að vinna eftir þeim í
nokkur ár án þess að eyða miklum tíma í
vangaveltur um að þetta eða hitt hefði átt
að vera öðruvísi. En að sjálfsögðu eru þau
ekki algóð frekar en önnur mannanna verk.
Einnig skilst mér að tillaga að árlegu að-
ildargjaldi sambandsins hafi verið til um-
ræðu og tillaga fulltrúa gjaldkera hafi ekki
verið samþykkt heldur vísað til stjómar.
Miklar vangaveltur hafa farið fram á
liðnum árum um þetta aðildargjald . Hvort
það ætti að vera samkvæmt höfðatölu eða
öðruvísi en niðurstaðan alltaf orðið sú að
hafa það mjög hóflegt þar sem félögin eru
með mismarga meðlimi og fjárhagsstöðu.
Hugmynd kom fram að mér skilst um að
aðildargjaldið yrði það hátt að það væri nóg
til að kosta rekstur sambandsins frá ári til
árs. Ef þessi tillaga yrði samþykkt þyrfti
gjaldið að vera samanlagt fyrir öll félögin
kr. 176.462,- í stað kr. 36.000,- miðað við
rekstrarárið 1996 til 1997. En auðvitað er
kostnaðurinn mismikill eftir árum. Þar
kemur til staðsetning stjórnarmanna og
haustfundanna o.fl.
Þriðja atriðið sem mig langar að setja á
Guðrún Jóhmmsdóttir
þetta blað er umræður um að haustfundirn-
ir verði gerðir að aðalfundi hvert ár. Ef það
yrði að veruleika þyrfti að sjálfsögðu að
breyta lögum landssambandsins á þann veg
að stjórnarkjör færi fram á þeim aðalfund-
um, með einhvers konar ákvæðum um
hverjir færu úr stjórn á hverjum aðalfundi.
Óæskilegt væri að mínu viti, að það gæti
komið fyrir að allir stjórnarmenn kæmu
nýir til starfa í einu. Því það tekur alla
nokkurn tíma að kynna sér hvernig stjórn-
arstörf fara fram í þessum félagsskap sem
og öðrum.
Að lokum langar mig að hvetja alla for-
menn félaganna og aðra velunnara sam-
bandsins að vera duglegir að safna áskrif-
endum að blaðinu Harmoníkan.
Þetta blað er nauðsýnlegasti vettvangur-
inn fyrir okkur öll sem viljurn efla tengsl
innan sambandsins og ekki síst til þess að
kynna starf félaganna vítt og breitt um
landið.
Það er aðeins Hilmar Hjartarson sem
hefur veg og vanda af útgáfunni og á ég
engin orð til að lýsa aðdáun minni á dugn-
aði hans og eljusemi við útgáfuna.
Með kveðju til allra harmoníkuunnenda.
Guðrún Jóhannsdóttir,
gjaldkeri S.Í.H. U.
A haustfundi í Hótel Svartaskógi
cAótartáfmr
Lög Valdimars J. Auðunssonar á geisladiski.
Öll helstu lög Valdimars á einum geisladiski s.s.
Ástartöfrar, Stjarna lífs míns, Vegna minninganna,
Nótt á fjöllum, Sunnudagskvöld, Kveöjustund og fleiri lög.
Meðal flytjenda eru Grettir Björnsson, Grétar Geirsson,
Gunnlaugur Briem, Þórður Högnason, Söngsystur,
Berglind Björk Árnadóttir og fleiri.
Tryggið ykkur eintak, nánari upplýsingar veittar í símum:
588 0858 - 557 4311 - 586 1539 eða 586 1737
13