Harmoníkan - 01.02.1998, Blaðsíða 13

Harmoníkan - 01.02.1998, Blaðsíða 13
Harmoníkumót 1998 Harmoníkufélag Vestfjarða heldur harmoníkumót að Núpi í Dýrafirði dagana 19.- 21. júní n.k. Góð gistiaðstaða og tjald- stæði, fagurt umhverfi. Njótið Jónsmessu- helgarinnar í návist Vestfirsku Alpanna. Dagskrá nánar auglýst í næsta Harmoníkublaði. Sími 456 3485 Harmoníkufélag Vestfjaröa Helgarútilega Félags Harmoníkuunnenda við Eyjafjörð og Harmoníkufélags Þingeyinga verður haldin 24.-26. júlí í sumar að Breiðamýri. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir. Upplýsingasímar: F.H. U.E. sími: 462 1469 H.F.Þ. sími: 4641138 FHSN Félag Harmoníkuunnenda á Selfossi og nágrenni, heldur sitt árlega harmóníkumót að Alfaskeiði í Hrunamannahreppi helgina 17-19 júlí í sumar. Allir ávallt velkomnir. Símar 482 1048 og 482 1053 Harmoníkuunnendur Vesturlands. Utileguhelgi við Þverárrétt 19 - 21 júní „Jónsmessuhelgin“. Spilað, spjallað og dansað Allir velkomnir. Upplýsingar í síma 431 2140 HARMONÍKAN í ÞRASTARSKÓGI Mótið verður fellt niður í ár. NOREGUR - Titano hátíðin í Vinstra 7-12 júlí SVÍÞJÓÐ - Ransáter hátíðin 1 - 5 júlí Fréttir að vestan !!! Harmoníkufélag Vestfjarða afhenti Tónlistarskólan- um á Flateyri kennsluharmoníku í byrjun desember, en áður hafa verið gefnar harmoníkur til Tónlistaskól- anna á ísafirði, Bolungavík, og Þingeyri. Aðalfundur og árshátíð félagsins var haldin í nóvemberlok að Núpi í Dýrafirði. A félagsfundinum gengu 18 manns í félagið og eru félagar nú 59 talsins. AsgeirS. Sigurðsson, fonnaður Lars Ek fímmtugur Síðasliðið sumar varð harmoníkuleik- arinn Lars Ek fimmtugur. Ugglaust er óþarfi að fara mörgum orðum um heim- sóknir og vinsældir hans hér á landi svo mikið hefur birst um Lars hér í blaðinu. Lars Ek er fæddur í Stokkhólmi 10. júlí 1947 og byrjaði nám í harmoníkuleik að- eins fimm ára gamall. Hann hefur ferðast víða til tónleikahalds og aflað sér mikilla vinsælda. Hingað til lands hefur hann komið í ein fimm skipti þar af fjögur til tónleikahalds. Lars hefur og leikið inn á fjölda hljómplatna, sú nýjasta leit dagsins ljós fyrir skömmu. Er þar að finna eingöngu lög eftir hann sjálfan. Hann hefur og til- einkað íslandi lög sem sýna hve hlýtt hann hugsar til okkar hér. A afmælisdaginn var opið hús hjá meistaranum og konu hans Ann Marie. Fjöldi gesta sótti þau heim, vinir sem vandamenn og dragspilið óspart þanið af ýmsum meisturum í þeim bransa eins og vænta mátti. Lars er formaður Frosini fé- lagsins í Stokkhólmi til fjölda ára og um hann hefur verið stofnaður aðdáenda- klúbbur (Bergen í Noregi). Lars er þekkt- ur fyrir túlkun sína á tónlist Pietro Frosini eins og flestum ætti að vera í fersku minni hér, lifandi og gefandi framsetn- ingu, túlkun sem lyftir áheyrendum á flug. Eg vil óska Lars Ek til hamingju og fjölskyldu hans með þessi merku tíma- mót. H.H. 13

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.