Harmoníkan - 01.10.2000, Blaðsíða 3
0 FRÆÐSLU, UPPLYSINGA OG
HEIMILDARIT FELAGA S.I.H.U.
frft OG ANNARRA AHUGAMANNA JIM ° / //f°o/ (/f° o/
"Ht STOFNAÐ 14. APRIL 1986
Ábyrgð:
Hilmar Hjartarson,
Ásbúð 17,
210 Garðabæ,
símar 565 6385 & 896 5440
netfang: harmonikan@simnet.is
Ritvinnsla: Hjörtur E. Hilmarsson
Prentvinnsla: Prenttækni ehf.
Blaðið kemur út þrisvar á ári.
(október, febrúar og maí.
Gíróreikningur nr. 61090-9.
Meðal innihalds
blaðsins:
Tuttugu ára afmæli........4
FormaðurS.f.H.U............5
Á Seyðisfirði..............6
Evrópumeistari.............7
Himnesk tónlist............8
Frosini Grand Prix 2000 .... 9
Á Breiðamýri..............10
Rússneskur kennari......11
Færeyingar í heimsókn ... 12
Hátíð harmonikunnar...13-14
Þau kynntust á
sundlaugarballi.........15
Handrit fyrir næsta blað
þurfa að berast fyrir
1. febrúar 2001.
Auglýsingaverð:
Baksíða 1/1 síða kr. 12.500
1/2 síða kr. 6.250
Innsíður 1/1 síða kr. 10.500
1/2síðakr. 6.800
-“- 1/4síðakr. 3.800
1/8síðakr. 2.800
Smáauglýsing kr. 1.500
AUGLÝSIÐ í HARMONIKUNNI
ódýrasta auglýsingaverðið
Útilegumcnn á
faraldsfazti
Útilegumenn er orð sem landsmenn
þekkja vel og hefur staðið fyrir ólánsmenn
er flúðu til fjalla undan hörku laga fortíðar.
Samlíking við nútíma útilegumenn eða
öllu heldur ferðaglaða harmonikuunnendur
á því ekki við í þeim skilningi, þar sem
markmið útilegumanna nútímans eru reist á
heiðarlegum athöfnum. Með nokkurri vissu
má halda því fram að hérlendis sé til sérstök
menning stækkandi hóps, sem ferðast á milli
harmonikumóta og dansleikja, eftir að þau
byrja á sumrin, haldin á vegum einhvers
harmonikufélags. Þessi þróun er vissulega
áhugaverð, því hún þjappar en betur saman
fólki sem vill halda í vinskap og treysta
bönd þjóðlegrar hugsjónar.
Ef við lítum aðeins á þá umsögn sem
mótshaldarar láta falla um þetta fólk, er nán-
ast um eina lýsingu að ræða, en það er að-
dáunarverð hegðun og umgengni. Smá
pústrar eru tæpast til, en það er hugsanlega
helsta ástæðan fyrir athyglisskorti fjölmiðla
á þessu fólki. Það hefur flögrað að mér að
kanski sé það best, því engin umræða er
skárri en rangtúlkuð umræða.
Einn góðan veðurdag uppgötvast þetta
samt! Skemmtilegt er að gæla við þá stað-
reynd að eftir að harmonikumót hófust hér-
lendis magnaðist fiðringur meðal manna og
kvenna sem annars voru heima, en tóku nú
að brenna í skinninu að komast á þessi
harmonikumót, sem lofuð voru í hástert.
Þeim fjölgar sem sækja mótin, og er núorðið
keppst um að komast á áfangastað sem allra
fyrst, enda betri bílar og ferðahýsi í eigu
þessara nútíma útilegu-
manna. Hlýtt og sólríkt
sumar í ár hefur líka
stuðlað að aukinni
ferðagleði. Harmoniku-
mót sumarsins voru
fimm. I Húnaveri, Þver-
rárrétt, Alfaskeiði,
Breiðamýri og Iðufelli.
Að auki var alþjóðleg
harmonikuhátíð f
Reykjavík. Þess utan voru víða harmoniku-
dansleikir, félagsferðir og heimsóknir, sem
umrætt fólk fjölmennti í. Mun ég leitast við,
eftir því sem kostur og færi gefst, að greina
frá þessu mótshaldi, meðal annars efnis í
blaðinu á komandi áskriftarári. Nú er vetr-
arstarfið framundan, sem óskandi tekur
stökk í þá veru, að skilgreina hvar aðaðalhá-
herslur skuli liggja í að styrkja harmonikuna
í sessi. Verður hægt að fullnægja námsþörf í
landinu á komandi vetrarönn? Þar liggur
knýjandi þörf sem margur nemandi bíður
eftir að verði leyst.
Með þessu blaði hefst fimmtánda áskrift-
arár harmonikunnar. Miki efnið liggur fyrir
að vinna úr og efast ég ekki um að margur
áskrifandinn muni einnig láta blekið flæða
úr penna sínum og senda tilskrif. Ef einhver
óskar svars við hugrenningum sínum mun
ég leitast við að afla þess. Þá er hægt að
senda tölvupóst. Vil ég eindregið beina ósk-
um mínum til unga fólkssins um að senda
línu. Netfangið er skráð við leiðara blaðsins!
Góðar stundir að sinni. H.H.
Forsíðumyndir:
Efri myitd: Kjetil Skaslien á Seyðisfirði. Hin glœsilega kirkja staðarins í baksýn. Kjetil
er frá Finnskogen í Noregi.
Neðri ntynd: Margrét Arnardóttir 15 ára gömul. Hún lék á hátíð harmonikunnar í
Glœsibœ 27. maí. Margrét lék lögin Jeg Itar boet ved en landvej og Serenata Prima-
verile eftir Pietro Frosini. Hún lagði nœmni og áhugaverða túlkun í verkin, endafékk
hún verðskuldað lof áheyrenda . Undirleikarar voru Örn Arason faðir hennar á
bassagítar og Sveinn Jóhannsson trommur.
3