Harmoníkan - 01.10.2000, Síða 6
fi SEYÐISFIRÐI.
Kjetil Skaslien og Guttormur Sigfússon léku fyrir clansi á veitingastaðnum Skaftfelli. Þeir spil-
uðu eins og þetta vœri þeirra atvinna, enda undirtektir dansaranna eftirþví líflegar.
Seyðfirðingar héldu norska daga helg-
ina 21 .-23. júlí, í blíðskapar veðri í orðs-
ins fyllstu merkingu. Rjómalogn var og
fór hitinn upp í 24-25 gráður yfir daginn.
Hátíðar stemning ríkti í bænum og var
margt „A Seyði“ eins og heimamenn
kölluðu þessa helgi. Ekki nóg með að
tónleikar væru haldnir innandyra. Uti-
samkoma með tónlist og leikþætti með
meiru í miðbænum á laugardeginum, fór
ákaflega vel fram og má segja að bærinn
hafi hljómað af glaðværð og lífi alla
helgina. Börn og unglingar syntu eða
busluðu í Fjarðaránni sem sker bæinn í
tvo hluta, fólk sat við árbakkann í sólinni
að naut veðurblíðunnar. Það var ekki ein-
ungis Stefán í hljómsveitinni Sóldögg,
sem lét harmonikuna hljóma þarna, auk-
heldur kom sérstakur gestur frá Noregi,
harmonikuleikarinn Kjetil Skaslien.
Hann hélt tónleika á föstudagskvöldið í
Menningarmiðstöðinni Skaftfelli, sem á
síldarárunum kringum 1960 hét Norsk
Fiskerheim. Jafnframt fór dansleikurinn
fram þar á laugardagskvöldinu með Kjet-
il og Guttormi Sigfússyni úr Fellabæ.
Feikna fjör hélst fram eftir öllu og bætt-
ust ýmsir fleiri til liðs við dúett þeirra,
ásamt að firna góðir dansarar svifu um
salinn og sýndu afbragðs góða
danskænsku. En hver er þessi Kjetil
Skaslien? Til að geta kynnt þennan prýð-
is góða harmonikuleikara fyrir lesendum
Harmonikunnar brá ég mér í heimsókn,
þar sem hann dvaldi á Seyðisfirði hjá
Muff Warden tónlistarkennara við Ránar-
götuna.
Kjetil Skaslien fæddist 6. júlí 1939 í
Grue sem er í héraðinu Finnskogen í
Noregi nærri sænsku landamærunum um
140 km., norðaustur af Oslo. Faðir Kjetil,
Olav Skaslien, lék á tvöfalda harmoniku
og það hreint ekki lítið. Hann kenndi
mörgum að spila á sinni löngu æfi en
hann lést 92 ára gamall. Olav samdi
fjölda laga, og urðu mörg þeirra þekkt,
meðal annara „Merraflaern". Kjetil byrj-
aði að spila 4 ára gamall og þá strax á
krómatíska hnappaharmoniku. Héraðið
Finnskogen er þekkt fyrir harmonikuá-
huga. I héraðinu búa þrjú þjóðarbrot,
fínnskt, sænskt og norskt. I þeim blandast
saman tónlistarhefðir þessara þjóða. Af
öllu þessu smitaðist Kjetil strax í æsku
og annað hljóðfæri en harmonika kom
aldrei til greina. Ekki varð neitt úr tón-
listarskólanámi, en hann fór snemma að
starfa með ýmsum tónlistarmönnum og
hefur lært mest af þeim. Kjetil spilar
mikið með ýmsum söngvurum og hljóm-
sveitum og nefndi hann m.a. Bextil boys
frá Englandi, sænsku söngkonuna Elísa-
bet Andreasen, Noru Brokstet frá Noregi
og fyrir skömmu með hóp er lék tónlist
Evert Taube. Þá er honum í fersku minni
tónleikaferð um Afríku, þar sem hann
spilaði með stórkostlegum þarlendum
tónistarmönnum. Afríkumennirnir
Muff Warden er bandarískur tónlistar- og
söngkennari af skoskum œttum, og leikur á
mörg hljóðfœri. Hún mœtti með keltneska
hörpu (clarsach) á skemmtunina í Skaftfelli
og lékjyrir gesti lögfrá heimalandinu.
spreyttu sig lfka á norskum tónum undir
leiðsögn Kjetils. Kjetil Skaslien, sem er
atvinnutónlistarmaður hefur lengi látið
sig dreyma um Islandsför. Hann gat loks
látið drauminn rætast, með því að hafa
samband við norska sendiráðið, er leiddi
til þess að honum var boðið vegna
norsku daganna til Seyðisfjarðar. Kjetil
og kona hans Höge eiga fimm börn, hún
vinnur sem umboðsmaður fyrir tónlistar-
menn og nær starfsvið hennar um víða
veröld. Hún er tónlistarmenntuð, semur
tónlist fyrir kóra og hefur komið við sögu
í ýmisskonar tónlistarstefnum. Kjetil
tjáði mér að hann væri enn á fullu í spila-
mennskunni, og að harmonikan hans
væri með norsku kerfi. En hvað er það
óvenjulegasta á hans spilaferli ? Trúlega
að hafa spilað um borð í kafbát á 300
metra dýpi við Narvik, og að lenda í
þyrlu á hæsta fjalli Svíþjóðar, til að spila
við veisluhöld forstjóra skipafélaga. Víða
hefur hann komið við sögu, sem harmon-
ikuleikari á eigin hljómplötum og einnig
með öðrum. Islandsförinni lauk með tón-
leikum í Norrænahúsinu í Reykjavík fyr-
ir nær fullu húsi, þar sem Matthías Kor-
máksson kom einnig fram, og lék í um
hálfa klukkustund við mikla hrifningu
gesta. Einnig léku þeir kappar saman.
Kjetil lét óspart í ljós gleði sína með ís-
landsförina. Hann nefndi hinar hlýju og
góðu móttökur alsstaðar og lét í Ijós
ánægju með að hafa fengið tækifæri til
að fara í skoðunarferðir um hluta Aust-
fjarða og ekki síst að koma til Þingvalla
og að Geysi. Hann sagðist gjarnan vilja
koma aftur til landsins, „vandin er bara
að finna tíma“, sagði Kjetil Skaslien að
lokum.
H.H.
6