Harmoníkan - 01.10.2000, Blaðsíða 7
Evrópcimeistarinn í Frosinitónlist 1999
Mikael Broberg heitir hinn ungi
sænski harmonikuleikari og Evrópu-
meistari í Frosinitónlist frá keppninni í
Helsinki 1999.
Eg náði tali af kappanum, þar sem
við vorum sessunautar í Iokahófinu
eftir keppnina, og bað um nokkrar
upplýsingar um hann sjálfan fyrir les-
endur blaðsins.
Mikael er fæddur í Skövde 1976 og
byrjaði kornungur að leika á einfalda
harmoniku. Það var ekki fyrr en Mikael
var 15 ára að hann fór að reyna sig á
krómatíska píanóharmoniku. Þá seldi
kappinn einnarraða nikkuna, enda þurfti
óhemju mikið að æfa sig á þá nýju. Fyrir
skömmu fór hann að glíma við bassa, en
veit ekki ennþá hvort eitthvað að viti
verður úr því. Vegna þess að Mikael líkar
gömul harmonikutónlist keypti hann sér
gamla Skandia harmoniku, frá 1935. Hún
hefur rétta tóninn frá því tímabili þegar
harmonikutónlist var mest lifandi og
gleðin kringum hljóðfærið hvað mest.
A þessa harmoniku keppti hann í
Mikael Broberg Evrópumeistari í Frosinitón-
list árið 1999
Helsinki, og sagði yfirdómari keppninnar
að Mikael hefði tæpast getað túlkað betur
þau verk sem hann lék. Hann hefði nán-
ast leikið sem sjálfur Frosini. Mikael
sagðist mikið hafa æft sig vikuna fyrir
keppnina. En hefur meistarinn önnur
áhugamál ? Jú. hann safnar gömlum 78
snúninga hljómplötum, og segir að mikið
megi af þeim læra. Sjálfur hafi hann ekki
gengið í tónlistarskóla og þekki því ekki
nótur, en er ekki í vafa að slíkur lærdóm-
ur mundi borga sig. „Kanski seinna“,
segir hann.
Hvernig lærðir þú að leika verk Fros-
ini svona vel ? „Með því að hlusta á
þessar gömlu plötur, diska og hljóm-
snældur, ásamt því að taka eftir öðrum er
leika slíka tónlist, og að sjáfsögðu að æfa
og æfa“. Mikael er 24 ára, ógiftur og
barnlaus. Hans atvinna er að leika á
harmonikuna, „koma fram og spila hvar
sem færi gefst", sagði þessi ungi sænski
evrópumeistari um leið og hann skolaði
niður steikinni með fersku finnsku blá-
vatni í lok þessarar yfirheyrslu
H.H.
BORSINI
MERKIÐ TRYGGIR GÆÐIN
Super Star 2000
Super Star 2000 Dömumódel
SS.OI«fKKOII & Co. cllf. Símar: 587 1304 & 896 5055
heimasíða: \v\v\v.islandia.is/s-olafsson e-mail: s-olafsson@islandia.is
7