Harmoníkan - 01.10.2000, Blaðsíða 9
Óla. Á síðasta ári gerði CBC sjónvarps-
stöðin dagskrá um Óla og tónlist hans, í
tengslum við Country Canada-CBC, sem
eru þættir um lífið á landsbyggðinni.
Þátturinn heitir „Gjöfin frá Óla“. Sagan
hefst þegar Rick Lair, sem nýkominn er
í byggðina, kemst yfir handskrifaðar nót-
ur af Gimli valsinum á bókasafninu. Al-
gjörlega grunlaus um það sem á undan er
gengið fer hann, sér til gamans að æfa
lagið ásamt nokkrum fleiri áhugamönn-
um. I fyrsta skipti sem hljómsveitin kem-
ur fram, verða meðlimirnir sem þrumu
lostnir, því eitt parið fer að dansa og fljót-
lega rennur upp fyrir þeim að allir í hús-
inu virðast kunna lagið. Þar með er hafið
ferðalag á vængjum tónlistarinnar og í
leiðinni fræðst um sögu nýlendunnar.
Ferðinni lýkur með því að Rick Lair og
félagar leika valsinn í gamla danshúsinu
á Gimli, sögufrægum stað, sem byggður
var af trésmiðnum Óla Thorsteinson, en
tónlistarmaðurinn Óli Thorsteinson lék
þar oft sjálfur. Þar með lýkur þættinum,
en fráleitt sögunni
„Gjöfinnni frá Óla“ var sjónvarpað frá
CBC sjónvarpsstöðinni síðastliðinn vet-
ur og horfðu 260.000 manns á þáttinn.
Næstu daga tóku e-mail skilaboð og bréf
að streyma til stöðvarinnar frá hinum
ýmsu stöðum vítt og breitt um Kanada.
„Okkur finnst það mjög áhugavert, að
fjölskyldan skuli viðhalda þessari fiðlu-
hefð“, segir í bréfi frá áhorfanda í Carbo-
neau á Nýfundnalandi, „maðurinn minn
er að læra á fiðlu og mig langar að eign-
ast nóturnar.“ Kona í Haileybury í Ont-
ario skrifar. „Þið verðið að hjálpa mér. Eg
er með Gimli valsinn á heilanum. Getur
ekki einhver útvegað mér nótur af laginu
?“ Margir hafa fengið nóturnar sendar.
Við munum aldrei fá staðfestingu á,
hvort Óli leikur í himnaríki. Hinu má
treysta, að einhversstaðar í Kanada er nýr
áhugamaður að æfa Gimli valsinn og
þannig munu komandi kynslóðir geta
notið gjafarinnar frá Óla.
Greinin birtist í blaðinu „Gimli and
beaches adventure guide“, sem gefið er
út í Winnipeg í tengslum við Islendinga-
daginn í Manitoba og er eftir verðlauna-
höfundinn Andy Blicq, sem auk þess er
þáttaframleiðandi hjá sjónvarpsstöðinni
C.B.C. Country Canada. Fjölskylda hans
á sumarhús á Gimli.
Þýðing Friðjón Hallgrímsson
Skýring vegna heitisins Gimli ( Giinli-
valsinn) Gimli þýðir sœlubústaður rétt-
látra eftir ragnarök. Heimild Islensk
orðabók, Arni Böðvarsson.
Frosini Qrand Prix
2000. íslenskcir
keppandi atan!
Evrópumeistarakeppni í
Frosinitónlist fer að venju fram
í nóvember næstkomandi. Eins
og frá var skýrt í síðasta blaði
fer keppnin fram í Svíþjóð, í
bænum Hammarstrand.
Vinningshafi keppninar 1999
var sænskur og fer keppnin
fram í hans heimalandi
Enginn gaf sig fram hér fyrir
tilsettan tíma, sem getið var um í
síðasta blaði. Ljóst er að margir
efnilegir nemendur eru að koma
fram á sjónarsviðið sem vonandi
geta tekið þátt á næstu árum.
Ymsir standa frammi fyrir því að
skipta frá píanóborði í hnappa.
Það getur tekið tíma að vinna sig
fram úr því. Svo merkilegt sem
það er heyrast einnig efasemdar
raddir um gagnsemi þess að taka
þátt í keppnum. Undarlegt í hæsta
máta ef sama á ekki að gilda um
harmonikuleikara og ótalmargt
annað sem keppt er í. Þess var farið á leit
við Gretti Björnsson að keppa nú fyrir Is-
lands hönd. Hann tók umleitaninni mjög
vel enda engin aldursmörk um keppendur
í Evrópukeppninni í Frosinitónlist.Grett-
ir hefur nú ákveðið að taka þátt meðal
þeirra 6 þjóða sem senda keppanda.
Grettir hefur áður tekið þátt í alþjóðleg-
um keppnum m.a. í Brittish Columbia í
Kanada, þar sem hann hlaut 1. verðlaun
og verður skemmtilegt að fylgjast með
laugardaginn 18. nóvember, en við mun-
um halda utan 17. nóvember.
Þáttökulöndin nú eru Svíþjóð, Noregur,
Danmörk, Finnland, Rússland og ísland.
H.H.
Grettir Björnsson keppirfyrir Islands hönd á
Frosini Grand Prix 2000.
9