Harmoníkan - 01.10.2000, Blaðsíða 10
Samspil í skjóli trjánna. Frá v. Bragi, Kristjón, Óli J. og Jóhann Bjarnason.
Framhaldsleikritið, samið af heimamönnum. Þarna er verið er að skíra barnið semfœddist á
mótinu ífyrra. Frá v. presturinn Ingólfur Ingólfsson nokkuð við skál, Emhild Olsen, barnið
Þorgrímur Björnsson og móðirin Saga Jónsdóttir. Athöfnin kitlaði verulega hláturtaugamar.
Nefndin sem stóð að skipulagningu liins stórskemmtilega móts að Breiðumýri. Frá v. Filippía
J. Sigurjónsdóttir, Emhild Olsen, Jón Jónsson, Rósa Þórðardóttir og Saga Jónsdóttir.
Tvö harmonikulelög standa að motinu
að Breiðamýri eða sumarútilegunni eins
og félögin kalla það. Unnendur við Eyja-
tjörð og Þingeyinga hafa staðið sameig-
inlega að þessu móti í nokkur ár og tekist
að koma því svo á kortið að aðsókn hefur
stóraukist með hverju árinu.
Að sögn mótshaldara varð veruleg
aukning í sumar hvað aðsókn varðaði.
Veðrið gat varla verið betra, hlýtt og sól-
ríkt. Mitt mat er að um stórgott mót hafi
verið að ræða, mikið lagt í það sem fram
fór og mótsgestir fengnir til að taka þátt
leikjum og allavega sprelli. Dansleikir
voru haldnir föstudags og laugardags-
kvöld. Þá var og leikrit sett á fjalirnar af
félagsmönnum er vakti mikla kátínu.
Verður það að teljast skrautfjöður í mót
þeirra norðanmanna. Það eina sem mér
fannst á vanta var smá bæklingur eða
veggspjald um hina ýmsu dagskrárliði.
Væntanlega fór ekki framhjá nokkrum
gesti að vinnuframlag nefndarinnar hef-
ur talið nokkra tímana fyrir og á mótinu
sjálfu. Mest undrandi varð ég þó er þvf
var lýst fyrir mér að félögin sjálf
högnuðust ekki á allri fyrirhöfnin, held-
ur rynni ágóðinn í rekstur félagsheimilis-
ins að öllu leiti. Stundum myndaðist
skemmtilegt samspil framan við sam-
komuhúsið. A sunnudagsmorguninn
hófst mikil spilagleði sem endra nær. Ut-
lendingur á klyfjuðu reiðhjóli sem átti
leið hjá snarstoppaði og renndi í hlað
framan við spilarana. Menn töldu hann
hafa setið á stéttinni í eina þrjá klukku-
tíma að hlusta og taka myndir, en svo
uppteknir voru allir að enginn ávarpaði
hann né hann aðra. Við skulum bara
nefna hann huldumanninn hjólandi.
Mér datt í hug að leita upplýsinga hjá
fyrrum húsverði og umsjónarmanni sam-
komuhússins að Breiðamýri, Jóni Jóns-
syni. Húsið er byggt 1904 en bætt hefur
verið við það í nokkrum áföngum. Fjöl-
margir viðburðir hafa farið fram í þessu
húsi á langri ævi. Héraðssamkomur, leik-
listarstarfsemi og tónleikahald. Aður var
hér rekinn vísir að skóla, forveri Lauga-
skóla. Trjágróðurinn við húsið er frá
1912-1915 og í honum eru birki og
reynitré. 1 þeim lundi er aðaltjaldsvæðið
nú. . Garðurinn er hlýlegur og dregur að .
Að líkindum muna margir enn stórmeist-
ara á borð við Toralf Tollefsen og John
Molinari, þó langt sé liðið, en þeir léku
einmitt á Breiðamýri. Margir aðrir hafa
teygt belginn á þessum stað, auk þess
fjölda sem bætist í hópinn meðan harm-
onikumótin standa yfir. Fyrr á þessu ári
var hér á fjölunum leikritið Síldin kenrur
síldin fer. Verkið fór suður í Þjóðleik-
húsið og var valið þar athyglisverðasta
verk áhugahópa. Félagsmenn F.H.U.E.
og H.F.Þ. geta borið höfuðið hátt eftir
þetta mót..
H.H.
10