Harmoníkan - 01.02.2001, Qupperneq 11
Gm Frosinikeppnina
og framkvazmd hennar
Dómur Grettis Björnssonar
Ég er mjög ánægður með að hafa drifið
mig. Reyndar vissi ég að þarna voru stór-
spilarar á ferðinni sem gerði þátttökuna
bara meira spennandi og ég varð heldur
ekki fyrir vonbrigðum ineð keppendurna.
Ég var svolítið áhyggjufullur þegar ég
dró númer fyrir keppnina en heilladísirn-
ar studdu mig því upp kom númer fimm.
Ég kyssti jörðina í alvöru fyrir að velja
mér þetta númer og tárin runnu, ég segi
það satt.
Dómararnir í keppninni eru allir stór-
meistarar og þessir menn leggja allt á sig
fyrir Lars Ek. Við Lars erum miklir vinir
frá fyrri kynnum nn'num við hann. Þetta
eru allt stórmenni með ótrúlega stórt
hjarta, fyrir svo utan hvílíkir snillingar
þeir eru.
Vinningshafinn, og þar með Evrópu-
meistarinn alveg frábær og aðeins 16 ára.
Sænski strákurinn Magnus Jonsson kunni
líka sitt fag. Þessir strákar báru af þó aðr-
ir væru miklar persónur á þessu sviði, og
auðvitað vorum við allir stressaðir.
Ég upplifði það að hlusta á alla kepp-
endurna fyrir keppnina þegar þeir voru
að æfa sig í næstu herbergjum á hótelinu.
Þá sá ég mig lítinn karl, ofurlítinn. Belg-
hristingur sem hefði getað hrist allt ís-
land fyrir fegurð. Bassi sem kom undan
gólfinu í djúpri tilfinningu og öryggi.
Rússneski bæjan bassinn steig þó uppí
hæstu hæðir. Snilld! Það stafar neista-
Grettir Leikttr hér Olivublóm Frosinis
í keppninni.
flugi frá þessum meisturum.
Einhver vonbrigði?
Ekki eitt einasta atriði, allt stóðst eins
og sagt var, hundrað prósent; tímasetn-
ing, matur, tónleikar, að ógleymdum frí-
tímanum. Að spila með öllum þessum
mönnum, gestum sem meisturum var al-
veg frábært.
Ef Hilmar hefði ekki talað við mig
hefði ég ekki átt neina möguleika. Lars
stakk upp á þessu en Hilmar sá um fram-
kvæmdina. Hilmar Hjartarson er miðdep-
illinn, það er meistaralega staðið að blað-
inu Harmonikan. Að halda úti slíku blaði
lýsir víðsýni og skilningi á því sem lítur
að harmonikunni og harmonikuunendum
og miklu meira en það. Fréttir koma frá
víðri veröld. fróðleikur, minningargreinar
og auglýsingar. Blaðið er ómissandi. Ég
ætla seinna að auglýsa sjálfan mig í
Harmonikublaðinu, bara til að enginn
gleymi mér!
Ef aldrei neitt er ákveðið gerist heldur
ekki neitt. Það verður að taka þátt í
keppnum sem þessari. Lars Ek beindi
hvössum augum á mig í Hammarstrand.
„Af hverju koma ekki ungir harmoniku-
leikarar frá íslandi?. Þetta þarf að breyt-
ast,“ sagði hann.
Lars er ekki einungis að vinna fyrir
sjálfan sig, hann er að vinna fyrir fram-
tíðina. Hann er fallegur engill sem hvetur
fólk til að vera lifandi í harmonikuheim-
inum. Hann er besta hvatning sem hugs-
ast getur, burt séð frá öllum öðrum. Hann
hefur einhvern ótrúlegan neista sem
kveikir líf. Hann er gulldrengurinn minn,
eins og Sigfús frá Gunnarsstöðum sagði
hér um árið er hann kom á landsmótið á
Egilsstöðum. Hann vildi ekki missa af
Gretti því hann væri gulldrengurinn sinn.
Og þú Hilmar, þér tókst að kveikja neista
í minni gömlu sál með þessu öllu saman.
En svona f lokin, þegar á allt er litið, þá
er Toralv Tollevsen enn efstur í huga
mínum, hann skóp mig sem harmoiku-
leikara, þó ég hafi aldrei séð hann.
Skráð H.H
Árshétíð
Felags harmonikuunnenda í Reykjavík og ÞjóSdansafélags Reykjavíkur
verður haldin f Brei&fir&ingabúft laugardaginn 10. mars n.k.
Hótfoin hefst meS borShaldi kl. 20.00 Husfo opnab kl. 19.00.
Sérstakir gestir fré Stavanger íNoregi, danshljómsveitin „ Geitungen ", ( Ki&lingurinn), sem leikur stutta tén-
leika, en sér auk þess um að halda gélfinu heitu ésamt félögum ér F.H.U.R.
HefSbundin skemmtiatriði verSa síSan framreidd af félagsmönnum.
Veislustjori: Hjólmar Arnason alþingisma&ur.
VerS a&göngumi&a kr. 4.000.— VerS aSgöngumi&a ó dansleik, sem hefst kl. 23.00 kr. 1.200.-
Allir harmonikuunnendur velkomnir meSan hésrum leyfir.
Mi&apantanir: 568 6422 FriSjón - 566 6660 GuSmundur - 587 3179 Elfsabet
11