Harmoníkan - 01.02.2001, Qupperneq 14
Harmonikcileikari aldarinnar hylltur
Rozða ritstjóra Harmonikunnar
Við hafhendingu viðurkenninarinnar „Harmonikuleikari aldarinnar á Islandi “ að Iðufelli.
Frá v. liragi Hlíðberg, Ingrid Hlíðberg, sem tekur á móti blómium af þessu tilefni úr höndum
Nóttar Jónsdóttur. Lengst til hœgri er Utgefandi Harmonikunnar.
Bragi Hlíðberg og frú.
Ég vil byrja á að bjóða ykkur öll vel-
komin í tilefni afhendingar viðurkenning-
ar til harmonikuleikara aldarinnar (1900-
2000) hér á harmonikumótinu að Iðufelli.
Það hefur löngum verið mín skoðun að
þakka skuli þeim sem unnið hafa til þess
að verðskulda viðurkenningu fyrir störf
sín eða áhugamál er verða öðrum eða
þjóðinni til góðs. Þegar ég lét mér detta í
hug að kanna hver gæti orðið tilnefndur
harmonikuleikari aldarinnar á Islandi sá
ég fljótt framá hversu ég einn yrði lítils
megnugur í svo viðamikilli ákvörðun.
Mér kom því til hugar að beina spurn-
ingu minni til áskrifenda Harmonikunn-
ar í formi skoðanakönnunar um hvaða ís-
lenskan harmonikuleikara þeir teldu
verðugan að eiga þann titil, og hvort
harmonikan gæti talist hljóðfæri aldar-
innar. Ekki stóð á svörum og ætla ég ekki
að lýsa gleði minni yfir því, og voru þá
bæði nefndir til lífs sem liðnir harmon-
ikuleikarar, eins og sjá má í síöasta tölu-
blaði. Sá sem hlaut yfirburðasigur í þess-
ari könnun var Bragi Hlíðberg úr Garða-
bæ. Það kom kannski heldur ekki mjög á
óvart þrátt fyrir að við eigum og höfum
átt marga afbragðs harmonikuleikara á
liðinni öld. Bragi hefur svo um munar
greypt nafn sitt í íslenska tónlistarsögu,
mun dýpra en innan harmonikugeirans
einvörðungu og verður ekki burtu máð
um ókomna framtíð. Ég tel ekki mögu-
legt hér, að lýsa afrekskrá Braga að ráði,
en bendi þess í stað á blaðið, þar sem
byrji hefur m.a. viðtal við hann ásamt
tónskáldakynningu um íslenska dans og
dægurlagahöfunda sem oft er í blaðinu.
Bragi hefur einnig skrifað greinar í blað-
ið um ýmislegt varðandi harmonikuna
m.a. um bassanotkun hljóðfærisins. Ég
hitti ókunnugan rnann um daginn á Eg-
ilsstöðuin þar sem við lentum í að spila
svolítið saman, ég tók eftir hve leikinn
hann var á bassana og spurði hver hefði
kennt honum. Hann sagðist mikið hafa
lært af öðrum en eftir að lesa grein um
þetta efni eftir Braga í blaðinu hafi hann
einbeitt sér að enn meiri nákvæmni að
bössunum. Þessi sami maður spurði mig
þá reyndar hvort ég væri ekki áskrifandi
að harmonikublaðinu. Já harmonikuleik-
arar taka mark á þessum meistara harm-
onikunnar, það erenginn vafi. Bragi hef-
ur rfkt sem harmonikuleikari mestan
hluta aldarinnar, allt frá því að vera
14
barnastjarna, hélt t.d einleikstónleika 14
ára gamall, og lét ekki stöðva sig við að
þurfa að glíma við þrjár gerðir harmon-
ikuhljómborða. Ég vil líka geta þess hér
að 15 ára vann hann fyrstu verðlaun í
keppninni besti harmonikuleikari lands-
ins. Síðar í kosningu á vegum ríkisút-
varpsins vann hann titilinn besti hljóð-
færaleikari landsins, og var þar ofar
manni sem Páli Isólfssyni dómorganista.
Þá vil ég ekki gleyma að minna á
tónskáldið Braga Hlíðberg, þar hefur
hann einnig afrekað stóra hluti. Þetta er í
fyrsta skipti sem harmonikuleikari hér á
landi hlotnast slíkur titill sem Bragi öðl-
ast nú, og er hann valinn af þeim sem
fylgst hafa grant með málefnum harmon-
ikunnar. Ég tel þetta tímamótaatburð í
sögu harmonikunnar hérlendis og langar
nú að biðja þig Bragi Hlíðberg að koma
hingað til mín og taka við viðurkenning-
unni til staðfestingar titlinum, „ Harmon-
ikuleikari aldarinnar á Islandi „ Við erum
öll stolt af þér. Til hamingju. H.H
JLðaCsteinn ísfjörð m.
Ijls6yrgi
'Jfrifandi
söng ocj
fiarmoniítn
tóníist
Geisladiskur
með 14 sungnum og
leiknum lögum
TSfrfTífl kom út 25.nóv.2000
Upplýsingar og
pantanir hjá útgefanda
í síma 464 1541 og
853 8398
Með hannonikukveðju
ýtðafsteinn ísfjörð