Harmoníkan - 01.02.2001, Qupperneq 15
Elín og Snorri leika á harmonikur. Þóra Elín Þorvaldsdóttir ( 9 ) Jón
Þór Þorvaldsson ( 7) syngja, móðir þeirra Kristín Snorradóttir lengst
til hœgri á myndinni
Bragi Hlíðberg og Einar Guðmundsson skiptu á
hannonikugerðum. Þeir brosa breitt yfir tiltœkinu.
Hin árleg fjölskylduhátíð harmoniku-
unnenda í Skagafirði og Húnavatnssýsl-
um var haldin um Jónsmessuhelgina 23.-
25. júni 2000 í Húnaveri. Hátíðin hófst
með upphitunardansleik á fösdudags-
kvöld. Á laugardag var dagskrá frá
14.00-17.00, þar sent Bragi Hlíðberg,
heiðursgestur hátíðarinnar, lék við góðar
undirtektir. Einnig komu fram harmon-
ikuleikararnir Þórdís Lúthersdóttir. 15 ára
og Gunnhildur Vil-
hjálms 16 ára. Þá lék
Linda Björk Guð-
laugsdóttir 13 ára á
píanó. Aðalsteinn Is-
fjörð lék frumsamin
lög og Kristján Sef-
ánsson frá Gilhaga
fór með pistil, sem
hann nefndi „sitt lítið
af hvoru um lífið í
landinu". Systkinin
Þóra Elín 9 ára og
Jón Þór 7 ára sungu
nokkur lög, með að-
stoð móður sinnar
Kristínar Snorradótt-
ur en afi þeirra Snorri
Jónsson og Elín Jó-
hannsdóttir léku und-
ir.
Kvenfélag Bólstað-
arhlíðarhrepps sá um
kaffihlaðborð. Frá
Akureyri kom Einar
Guðmundsson og
hélt sýningu á harm-
onikum og ýmsum
fylgihlutum. Að lokum ávarpaði Guð-
mundur Valtýsson frá Eiríksstöðum gesti
og þakkaði fyrir skemmtilega dagskrá og
félögunum fyrir að koma þessari árvissu
hátíð á.
Um sexleytið var farið að hitna í kol-
unum á útigrillunum, þar sem allir gátu
grillað sinn mat. Þeir sem vildu, gátu
snætt hann inn í félagsheimilinu. Það
gerðu hinsvegar allt of fáir, því þar léku
þeir óvænt saman, Bragi Hlíðberg á
hnappanikku og Einar Guðmundsson á
píanónikku og allir sungu og trölluðu.
Feikna fjörugur dansleikur var um
kvöldið. Harmonikuleikarar Húnvetninga
og Skagfirðinga léku með aðstoð bræðr-
anna Snorra og Egils Jónssona ásamt
Inga frá Siglfirðingi, að ógleymdum
Húnvetningunum Hauki trommuleikara,
Hjalta bassaleikara og Kristni gítarleik-
ara, sem spiluðu með nær hvíldarlaust
bæði kvöldin. Einnig spiluðu Einar Guð-
mundsson, Aðalsteinn Isfjörð, Eyfirðing-
urinn Númi Adólfsson og fleiri. Viljum
við þakka gestunum sérstaklega fyrir
þeirra frantlag við spilamennsku á dans-
leikjunum bæði kvöldin.
Sunnudagurinn rann upp bjartur og
fagur. Fólk fór að tínast út úr híbýlum
sínum, kveðja kunningja og vini, sem ár-
visst hittast á svona mótum. Síðan var að
tína saman pjönkur sínar og huga að
heimferð. Vonandi hafa allir farið ánægð-
ir heim, með góðar minningar.
Fjölskylduhátíð harmonikuunnenda
var nú haldin í þriðja sinn í Húnaveri.
Gestum hefur fjölgað frá ári til árs, sem
sýnir vaxandi áhuga þátttakenda. Nú
styttist í næstu Jónsmessuhelgi og að
sjálfsögðu mæta allir í Húnaver, til að
eiga enn eina góða helgi í góðra vina
hópi.
Að lokum viljum við þakka gott sam-
starf við húsverði og annað starfsfólk í
Húnaveri.
Kær kveðja,
Harmonikuunnendur í Skagafirði og
Húnavatnssýslum
Harmonikufélög Húnavatns- og
Skagafjarðarsýslu auglýsa
hina árlegu fjölskylduhátíð í Húnaveri um
Jónsmessuhelgina 22-24 júní næstkomandi.
Nánar auglýst í maíblaði Harmonikunnar.
H.U.H og F.H.S.
Hagyrðingakvöld og dansleikur
á vegum Félags harmonikuunnenda í Húnavatnssýslum
í Félagshcimilinu á Blönduósi síðasta vetrardag I8.apríl n.k.
Allir velkomnir,
H.U.H og Félagsheimilið á Blönduósi.
15