Harmoníkan - 01.05.2001, Síða 5

Harmoníkan - 01.05.2001, Síða 5
Viðtalið: Ólafur B. Þorvaldsson Ólafur B. Þorvaldsson með sitt glœsilega konserthljóðfœri, á lieimili sínu Ég átti notalega kvöldstund hjá manninuni sem þetta viðtal fjallar um. Maðurinn er einn fárra eftir- lifandi stofnfélaga fyrsta harmon- ikufélags landsins, Félags harmon- ikuleikara í Reykjavík, en það var sett á stofn þann 22. nóvember 1936. Að mér vitandi eru stofnfé- Iagar á lífi, fyrir utan Olaf, ein- ungis Róbert Bjarnason sem bú- settur er í Reykjavík og Bragi Hlíðberg, búsettur í Garðabæ. Nú skulum við hörfa ein 65 ár aftur í tímann og hlýða á hvað Olafur hefur að segja um ýmsa hluti frá liðnum árum og setja okkur í viðeigandi fortíðarþanka. Ólafur er enn við ágæta heilsu og man vel atburði liðinna tíma. Ólafur B. Þorvaldsson er fæddur 17. maí 1914 í Keflavík en flutti þriggja vikna gamall til Reykjavík- ur. Nú býr hann við Laugaveginn. Eins og áður segir er Ólafur einn af stofnfélögum fyrrnefnds félags og segir hann að aðalmarkmið félagsins hafí verið að koma á kennslu í harm- onikuleik með nótnalestri. Einnig að þjóna sem stéttarfélag og stuðla að bættum launum harmonikuleikara. Þegar félagið var stofnað léku nánast allir á hnappaharmonikur með sænskum gripum. Félagsstarfið fór vel af stað og efnahagurinn vænkaðist. Félagsmenn voru styrktir til náms í nótnalestri. Ólafur sótti að auki nám í tónfræði hjá Alberti Klahn og Fritz Weishappel. Hann ætlaði sér að skipta frá hnappaborðinu í píanó- harmoniku en varð að hætta við vegna stuttra fingra. Fyrsta píanóharmonikan kom til lands- ins 1928. Ólafur byrjaði að leika á harm- oniku 1930 og síðar saxófón og trommur, lék stundum á öll hljóðfærin sama kvöld- ið. Þá spilaði hann með Ólafi Péturssyni á Kaffi Royal íTúngötunni og Stefáni Lyndal (Stebba í Rín). Þeir léku í Rauðu myllunni í Hafnarstrætinu og Kaffi Ramóna á Hverfisgötu heilan vetur hvert kvöld frá 21-23:30. Hann segir: „Við fengum 5 kr. hvor fyrir kvöldið, en dag- laun verkamanns voru þá 10 kr. Fyrst fékk ég lánaða harmoniku hjá föðurbróð- ur mínum Jóni Ólafssyni, en systir Jóns var móðir bræðrana Ólafs og Jóhannesar Péturssona. A þessum árum vildu allir hlusta á harmoniku, enda var hún algeng í Reykjavík þá, bætir hann við“. Kátir voru karlar í tvo vetur, 1937 og '38 lék Ólafur í hljómsveit sern hét Kátir voru karlar. í henni voru, ásamt honum, Jóhannes Jó- hannesson, Stefán S. Lyngdal og Jón S. Ólafsson. Þeir léku í Oddfellow húsinu fyrir dansklúbb sem Oddfellow félagar starfræktu. Kátir voru karlar léku gömlu dansana á efri hæðinni, en hljómsveit Aage Lorange niðri, nýju dansana. Kátir voru karlar drógu að sér múg og marg- menni. A aðgöngumiðunum voru myndir af harmonikuleikurunum í hljómsveit- inni, ein mynd á hverjum miða. Svo safn- aði fólkið á skemmtuninni myndum af ákveðnum harmonikuleikara og skipti miðum sín á milli, eftir því hver því þótti áhugaverðastur. Þetta var algjör nýjung á þessum tíma og vakti athygii. Fyrsta stóra harmonikuhljúm- sveitin Að sögn Ólafs var stofnuð stór harmonikuhljómsveit um 1936 og voru í henni sautján hljóðfæraleikar- ar og lék hún fyrir fyrir dansi í K.R. húsinu. „Þetta þótti nýstárlegt og fólk undraði sig á að svo margir nikkarar gætu spilað saman. Þá stóð K.R. húsið þar sem Ráðhús Reykja- víkur stendur núna. Aðgöngumiðinn kostaði tvær og fimmtíu. Þarna var spilað tvö kvöld í viku og húsið bók- staflega sprengt, enda alltaf uppselt. Spilaðir voru bæði nýju og gömlu dansarnir, án dansstjóra en þeir þekktist ekki þá. Fyrir utan seldist miðinn á svörtum markaði fyrir 15 kr. Fólkið klifraði upp á þak og reisti stiga við glugga til að komast inn. í húsinu var, án þess að ýkja, alger- lega stappað“. Ólafur minnist dansleikja frá 1934 sem haldnir voru á Alafossi. Sigur- jón Pétursson, sem kenndur var við Alafoss stóð fyrir þessum dansleikj- um, sem fóru fram í samkomutjaldi. Aðgöngumiðinn kostaði fimmtíu aura og gilti fyrir hálftíma í senn. Eftir hvern hálftíma voru allir reknir út og ef enginn fékkst inn aftur var kallað upp. „Næstu tuttugu mínútur verða á tuttugu og fimm aura „! Þá fyllt- ist allt á ný. Svona gekk þetta, Álafoss böllin urðu þekkt af þessu. Oftast léku tveir eða þrfr harmonikuleikarar saman á Álafossböllunum". Hinir gömlu góðu dagar Minningar um hina gömlu góðu daga vekja gleði í huga Ólafs. Þegar hann er inntur eftir eigin lagasmíðum segist hann hafa samið ein fjögur lög, gömludansa- lög sem Bragi Hlíðberg útsetti fyrir hann. Ólafur léði svo Svavari Gests þessi lög, en því miður hurfu þau með honum. í gegnum tíðina hefur Ólafur rekið sæl- gætisgerðina Pálmann og heildverslunina Vörudreifingu. Hann varð m.a. fyrstur til að flytja inn hið þekkta Machintosh sæl- gæti. í stríðbyrjun rak hann mótor- og reið- hjólaverkstæði hjá Þórði kaupmanni sem kallaður var. Þórður rak verslun á horni Frakkastígs og Laugarvegar og hafði 5

x

Harmoníkan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.