Harmoníkan - 01.05.2001, Qupperneq 15

Harmoníkan - 01.05.2001, Qupperneq 15
9-10 ára. Fjórtán ára gamall fór hann til Grímseyjar og keypti þar litla Hohner pí- anóharmoniku á 500 krónur. Að loknu sumri náði hann orðið að spila þó nokk- uð. I Grímsey kynntist hann Ragnari Víkingssyni sem þótti afbragðs harmon- ikuleikari. A síldarárunum voru böll í Grímsey á hverju kvöldi og tók Guð- mann oft í belginn við slík tækifæri með Ragnari. Fyrsta alvöru hljómsveitin sem Guðmann spilaði í frá 1955 var hljóm- sveitin Nautabanarnir frá Olafsfirði. Það rifjaðist upp þegar litið var yfir safn Guð- manns að þar nrátti líta grip sem við köll- um harmonikubelginn, en það voru verð- laun veitt á harmonikumótum á vegunt Harmonikublaðsins fyrir sigur í spurn- ingakepni. Þessi verðlaun vann Guð- rnann í Þrastaskógi 1995. Blaðið óskar Guðmanni velfarnaðar ineð safnið á komandi árum sem vonandi tekst að auðga og þróa enn frekar. Hljómsveitin Nautabanarnirfrá Ólafsfirði. Fyrsta hljómsveitin sem Guðmann lék í 1955. Frcí v. Guðmann Jóhannsson harmonika, Einar Gestsson gítar og ágást Sigurlaugsson saxófónn. Myndin er tekin í Tjarnarborg á Ólafsfirði. Samband íslenskra harmonikuunnenda 20 dra Núverandi stjórn S.I.H.U. Frá v. Ólafur Th. Óláfsson ritari, Stefán Leifsson meðstjómandi, Jóhannes Jónsson formaður, Gunnar Agústsson gjaldkeri og Guðrún Guðjónsdóttir varaformaður Afstofnun Sambands íslenskra harmonikuunn- enda, 3. maí 1981. Upphafið að stofnun Sambands ís- lenskra harmonikuunnenda var að Ingvari Hólmgeirssyni, þá búandi á Húsavík, barst bréf frá stjórn Félags harmonikuunnenda við Eyjafjörð, undir- ritað af þáverandi formanni félagsins Karli Jónatanssyni. Auk hans voru í stjórn Eyjafjarðarfélagsins Hannes Ara- son, Jóhann Sigurðsson, Kjartan Sigurðs- son og Guðni Friðriksson. 1 bréfinu er fyrst hreyft þeirri hugmynd að stofna samtök harmonikuunnenda á landsvísu. Fundur var síðan haldinn á Akureyri 2. maí. 1981 og voru á þeim fundi auk fyrr- greindrar stjórnar: Þórir Jóhannesson Blönduósi, Aðalsteinn Símonarson Borg- arfirði, Agúst Pétursson Kópavogi, Jónas Bjarnason Neskaupsstað og Ingvar Hólntgeirsson Húsavík. Daginn eftir 3. ntaí var komið saman að nýju, lögð fram drög að lögum sam- bandsins og fyrsta stjórn þess kosin. Hana skipuðu eftirtaldir: Karl Jónatans- son formaður, Ingvar Hólmgeirsson ritari og Agúst Pétursson gjaldkeri. Meðstjóm- endur: Aðalsteinn Símonarson, Þórir Jó- hannesson og Jónas Bjarnason. Þriðji ntaí 1981 telst því stofndagur S.Í.H.U. Á þessum stofnfundi var ákveðið að halda fyrsta landsmót sambandsins sumarið 1982 í Reykjavík. Landsmótið var síðan haldið í einhverju besta veðri sem komið hafði það vor. Fyrsta daginn, 4. júní voru haldnir tónleikar á Lækjartorgi að við- stöddu fjölmenni. Dansleikir voru svo bæði á föstudags- og laugardagskvöld og skemmtifundur var á sunnudeginum í Glæsibæ. Þar var spilað við mikla hrifn- ingu, m.a. nemendahópur undir stjórn Karls Jónatanssonar, en þar léku einnig saman Bragi Hlíðberg og Grettir Björns- son, og eins og segir orðrétt í fundargerð- inni frá þessum tíma: „vöktu þeir mikla hrifningu og mun þetta í fyrsta sinn sem þessir yfirburðanikkarar spila saman á þessum vettvangi“. Næsta landsmót var síðan haldið 1984 að Varmalandi í Borgarfirði, en síðan hafa mótin verið haldin á þriggja ára fresti, allt til dagsins í dag, á ýmsum stöðum á landinu. Innan sambandsins eru nú nítján félög. (Heimild: Fundargerðarbók SÍHU, 1981 til 2000). Selfossi, 6. maí 2001 Ólafur Th. Ólafsson, ritari SÍHU 15

x

Harmoníkan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.