Harmonikublaðið - 01.09.2007, Page 4

Harmonikublaðið - 01.09.2007, Page 4
Frá formanni Ágætu harmonikuunnendur. Þegar þetta er skrifað er haustið farið að nálgast, sumarstarf félaganna og samkomuhald því tengt að mestu tokið. Sá sem hér skrifar hefur ekki heyrt annað en að þar hafi vel til tekist þó að undirritðum hafi ekki tekist það ætlunarverk að heimsækja fleiri mót harmonikufélaga en raun varð á. Þann 22. september verður haldinn aðalfundur S.Í.H.U að Steinsstöðum í Skagafirði í umsjón Félags Harmoniku- unnenda í Skagafirði ogá ég von á að þar verði einnig tónleikar og master dass námskeið fyrir kennara og fleiri með harmonikusnillingnum Lars Holm ásamt annarri skemmtan sem skagfirskir harm- onikufélagar standa fyrir. Á þessum aðalfundi verða til umræðu mörg mál sem tengjast starfi félaganna og kynnt þau málefni sem stjórnin hefur unnið að á síðasta ári. Einnig verður tekin ákvörðum um framtíð blaðsins okkar en framtíð þess var mjögtil umræðu á síðasta aðalfundi. Enn hefur orðið dráttur á að koma nýrri heimasíðu í gagnið en vonandi stendur það til bóta. Framtíðarnefnd skipuð ungum harm- onikuleikurum hefur starfað á árinu og munu tillöguroghugmyndir nefndarinnar verða kynntar á fundinum. Á sama hátt verðurkynntLandsmótsem haldiðverður á Suðurnesjum næsta vor og ungl- ingalandsmót sem haldið verður í október. Aðalfundur Landsambandsins er sá tímapunktur sem við förum yfir liðið starfsár og þann árangur sem náðst hefur. Ég hvet fulltrúa til að mæta til fundarins með opnu hugarfari og segja sína skoðun á starfinu og sömuleiðs að koma með hugmyndir til úrbóta. Á fundinum verður væntanlega stutt mál- þing þar sem valdir aðilar halda framsögu um málefni harmonikunnar og sitja síðan fyrir svörum fundarmanna þarum. Fagna ber því að í sumar hefur verið á dagskrá harmonikuþáttur í RUV rás 1. í umsjón Friðjóns Hallgrímssonar og hef ég ekki heyrt annað en það hafi skapað áheyrendum gleði og ánægju. Ekki er fyrirséð hvortáframhald verðurá þessum þætti en auðvitað vonum við að þátturinn sé kominn til að vera. Landssambandið varð 25 ára á sfðasta ári og tók stjórn S.Í.H.U þá ákvörðun að fá óháðann fræðimann Dr Sigurð Ingólfssontilað lesayfirfundargerðarbók sambandsins og skrifa grein um það og birtist hún í þessu blaði. Eg vonast til að sjá fulltrúa og formenn sem flestra harmonikufélaga á aðal- fundinumogóska þess aðstarffélaganna verði gott á komandi hausti og vetri. Jónas Þór Jóhannsson formaðurS.Í.H.U. Bréf til ritstjóra srNc a?Nc|| Ágæti ritstjóri, Hreinn Halldórsson! Þegar ég sendi þér efni í seinasta Harmonikublað hafði ég á orði að frá fleiru væri að segja. Ég ætlaði svo sem að koma einhverju á blað, en einhvern veginn er það nú svo að þegar ekkert þrýstir á vill oft verða minna úr framkvæmdum. Nú þegar þú falast eftir meira efni, næ ég ekki þræðinum þar sem frá var horfið og afræð því að láta það bíða þar til dag fer að stytta. í staðinn sendi ég Ijóð og einnig minningabrot frá söngferli mínum. Þar er um að ræða frásögn af innkomu minni í Karlakór Selfoss á sínum tíma, sem ég flutti á samkomu hjá umræddum kór. Ég var ekki fyrr laus við kýrnar haustið 1983, en farið var að hvetja mig til að ganga f Karlakórinn. Ég tók því nú ekkert líklega f fyrstu.sagði sem satt var að ég kynni eiginlega ekkert að syngja. Að vísu hafði ég hér á árum áður verið að reyna að skemmta fólki með því að kyrja gamanbragi á samkomum en er nú löngu hættur öllu slíku. Seinna reyndi ég að syngja börnin mín í svefn á kvöldin. Svo var það eitt kvöld að konan varað reynaað koma börnunum író.þauvoruóvenju háværogærslafengin og heyrði ég að engar umvandanir dugðu þar til hún brýndi röddina og sagði :”Krakkar !Ef þið ekki steinhættið þessum hávaða og farið strax að sofa, læt ég hann pabba ykkar barasta koma og syngja fyrir ykkur. Með það sama datt allt í dúnalogn. Síðan hef ég lítið gert af þvf að reyna að syngja börn í svefn. Eða syngja yfirleitt. Þetta allt sagði ég nú erindrekum kórsins og lét f Ijós áhyggjur af að það gæti virkað neikvætt á aðsókn að söngskemmtunum kórsins ef ég færi að syngja með.” Nei, nei ! Engin hætta. Það kemur hvort sem er aldrei nokkur maður að hlusta á kórinn syngja.” Sögðu þeir. Svo ég sló til og mætti á æfingu. Þegar ég mætti þarna á æfinguna voru þeir sem ég kannaðist við svo uppteknir við að rifja upp kórfyllirí frá f fyrra og reyna að muna hvað gerst hefði að enginn virtist mega vera að því að sinna mér en sögðu.:“þú verður að tala við hann Hermann, það er þessi aulalegi þarna með gleraugun.” Ég sá náttúrlega strax á lýsingunni hver Hermann var, fór til hans og sagðist vera kominn íkórinn ."Nújæja” sagði Hermann . Svo var það ekki meira. .Mér þótti hann

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.