Harmonikublaðið - 01.09.2007, Side 8
W MW MW M.W JILW M.W JILW M.
m
SIHU
Samband íslenskra harmonikuunnenda
Fundargerðir og framtíðin
Tildrög þessarar greinar er 25 ára afmæli S.I.H.U. )ónas Þór, núverandi formaður kom
að máli við undirritaðan og spurði hvort hann treysti sér til þess að koma saman
einhverju læsilegu upp úrfundargerðabókfélagsins. Það er ósk mín að það hap tekist.
Þetta varskemmtilegt verkefni enda ýmislegt óhefðbundið fært á blað ífundargerðum
harmonikuunnenda. Ýmsar kítur og væringar en þó fyrst og fremst ríkulegt
skemmtanahald, einkum á fyrstu árum félagsins. Sú ákvörðun var tekin að fjalla
mestmegnis um upphafsár og tilurð félagsins enda er mest kjöt á beinunum í
fundargerðum frá þeim tfma. Það er ósk mín að eitthvart gaman megi hafa afþessari
grein og að einhverfróðleikursé þar finnanlegur. Viðameiri saga Harmonikuunnenda
gæti síðan verið verðugt viðfangsefni seinna meir, jafnvel á þrítugsafmælinu.
Sigurður Ingólfsson
„Þegar maður lítur á þennan aldurshóp
sem er í þessum harmonikkufélögum
eins og á ísafirði, þá eru þeir fáir undir
fertugu en flestir yfir fimmtugt. Hvar er
það fólksem á að taka við afokkurþessum
gömlu? Þetta verða gamalmennafélög. í
tónlistarskólum landsins er fullt af ungu
fólki. Hvernig getum við laðað fólk inn í
félögin? Hvernig getum við gert ásýnd
félaganna unglegri? Mér finnst samt
staða harmonikunnar fara batnandi frá
því sem hún var bara fyrir nokkrum
árum...“
Ásgeir S. Sigurðsson 1
Þegar lesið er yfir fundargerðir félaga-
samtaka er þar margt keimlíkt. Iðulegast
eru þar yfirlit um útgjöld og eignir og
minnst um það sem máli skiptir í
félagasamtökum. Samt eru alltaf einhver
gullkorn þar innanum eins og má finna
hér fyrir ofan og hægt að rekja sig í
gegnum sögu samtakanna, þróun og
breytingar. í þessari grein verður rakin
samkvæmt fundargerðum á lauslegan
hátt saga Samtaka íslenskra Harmóniku-
unnenda með sérstakri áherslu á fyrstu
ár samtakanna.
Þann 3. maí árið 1981 var Samband
íslenskra Harmónikuunnenda formlega
1 ÁsgeirS. Sigurðsson. Haustfundurad Varmalandi í
Borgarfirdi laugardaginn 7. október 1995.
Fundargerdabók S.ÍH.U. frá 1981
2 Ingvar Hólmgeirsson. Húsavík/j. maí 1981.
Fundargerdabók S.Í.H.U. frá 1981 - 2006.
stofnað á Akureyri. Daginn eftir, þann 4.
maí, er rituð fyrsta fundargerð S.Í.H.U. Þá
fundargerð ritar Ingvar Hólmgeirsson á
Húsavík. Hann lýsir þar stofnun þessa
merka félags sem greinilega hefur haft
skemmtan sína og annarra að leiðarljósi
frá upphafi. Ingvar skrifar:
Klukkan 7 síðdegis var ákveðið að
fresta fundi til næsta dags, en nota
kvöldið til að skreppa í Sjálfstæðishúsið
og skemmta sér og njóta matar og
drykkjarfanga fram eftir kvöldi og síðast
en ekki síst dansa eins og orkan leyfði
hverjum og einum.
Ingvar Hólmgeirsson2
Eftir þessa kvöldstund var hist klukkan
10 morguninn eftir á heimili Karls
Jónatanssonar þar sem voru dregnar upp
nokkrar reglur sem væntanlegt samband
skyldi starfa eftir en með þeim fyrirvara
að um drög væri að ræða þar til næsti
aðalfundur sambandsins yrði haldinn.
Einnig var ákveðið að fyrsta landsmót
félagsins yrði haldið í Reykjavík í júní
1982 og að framvegis yrði höfð sú regla
að framkvæmd landsmóta skyldi vera hjá
því félagi sem gjaldkeri S.Í.H.Ú yrði hjá
hverju sinni. Ennfremur var ákveðið að
öll starfandi íslensk harmónikufélög
gætu orðið sambandsfélög. Fyrsti
formaður S.Í.H.U. var kjörinn Karl
Jónatansson á Akureyri. Eftir fundinn var
haldið til skemmtunar sálarinnar á Hótel
KEA þar sem harmónikkur voru þandar af
gestgjöfum ogfulltrúum.
Fyrsta landsmót S.Í.H.U. var haldið í
Reykjavík dagana 4. - 7. júní ári eftir
stofnun félagsins. Fyrsta harmónikufélag
landsins, F.H.U.R. stóð fyrir mótinu.
Útitónleikar voru haldnir á Lækjartorgi
þar sem Þingeyingarnir eru sagðir hafa
stolið nánast senunni. Um kvöldið var
svo dansleikur í Sigtúni sem var mjög vel
sóttur, fjöldi spilara kom fram, bæði
einstaklingar og hópar. Kvöldið eftir,
laugardagskvöldið var svo dansleikur í
Festi f Grindavík og svo skemmtifundur í
Glæsibæ sem var mjög vel sóttur. Þar
vöktu börn undir stjórn Karls Jónatans-
sonar mikla hrifningu en Karl hefur í
fjöldamörg ár kennt fólki á öllum aldri
harmónikuleik. Einnig vakti athygli að
Grettir Björnsson og Bragi Hlíðberg
spiluðu saman í fyrsta sinn á þessum
vettvangi.
Tvö ár liðu þar til annað landsmót S.
Í.H.U. var haldið að Varmalandi í
Borgarfirði dagana 22. - 24. júní 1984.
Þar var sameiginlegt borðhald á
föstudagskvöldinu og svo slegið upp
dansleik í Félagsheimilinu Þinghamri
klukkan 20:30. Á aðalfundi á laugar-
dagskvöldinu var ákveðið að landsmót
skyldu haldin á þriggja ára fresti í stað
tveggja og að næsta landsmót yrði á
Akureyri 1987. Stjórnarkosning fór á þá
leið að Ingvar Hólmgeirsson var kjörinn
formaður. Harmónikur mátti heyra