Harmonikublaðið - 01.09.2007, Síða 9

Harmonikublaðið - 01.09.2007, Síða 9
hljóma stanslaust frá föstudegi til sunnudags, dansleikur var gríðarlega vel sóttur og fundargerð sem rituð er fyrir hönd H.U.V. af Rafni Jónssyni lýkur á orðunum: “Harmónikan laðar fram það góða í manninum.”3 Þriðja Landsmót S.Í.H.U. fór fram að Laugalandi í Eyjafirði dagana 26. - 28. júní 1987. Mótið var með hefðbundu sniði, vel sóttu dansleikjahaldi og aðalfundi þar sem Sigurður Friðriksson, H.F.Þ. var kjörinn formaður. Á aðalfundi stjórnar og fulltrúa S.Í.H.U.sem var haldinn þann 7.10.1989 í Félagsheimili Húsavíkur var fyrsta mál fundarins að fjalla um og virða fyrir sér fimm tillögur að merki fyrir sambandið sem borist höfðu í samkeppni sem efnt hafði verið til og auglýst í tímaritinu Harmonikan. Verðlaun voru ákveðin 30.000 fyrir bestu tillöguna. Sú tillaga sem flest atkvæði hlaut fékk 5 stig og sú sem næstflest atkvæði hlaut fékk 4 þannigað mjóttvará munum. Höfundur merkisins sem vann reyndist vera Aðalsteinn ísfjörð frá Húsavík. Það má sjá á fundargerðum fyrstu áranna hvernig starf sambandins kemst í meiri skorður, hvernig reikningar verða nákvæmari og hvernig ýmsir fastir liðir öðlast traustari sess. Áþessum aðalfundi á Húsavíkertil dæmis mikið rætt um samskipti S.Í.H.U. við Ríkisútvarpið - sjónvarp um upptökur á landsmótum, ýmsa viðburði svo sem saumastofudansleiki og aðild að Harmónikusambandi Norðurlanda, 20 ára gamalt samband með 200 klúbba innan sinna vébanda. í norska félaginu eru 3.200 félagar en sem vilja ekki láta bendla sig við svokallaða Tftanóhátfð. “Að sögn leika menn þar oft æði drukknir.”4 Engin niðurstaða fékkst í þessu máli. Aðalfundurinn þann 22. júní 1990 sem haldinn var að Laugum f Reykjadal var sfðan stormasamur. FélagiðáSeyðisfirðivarúrskurðað óstarfandi. Þrjú félög urðu 10 ára á milli landsmóta (F.H.U.R. - H.F.Þ - H.U.V.) Eftir aðrar umræður sagði Sigurður formaður að hann vildi koma að leiðindamáli sem varðaði merki fyrir sambandið. Vandamál höfðu þá komið upp þegar farið hafði verið með merkið á teiknistofu, þar sem þau einkenni eða atriði sem þyrftu að koma fram, væri ekki hægt að sjá í barmmerki. Búið var að fara með merkið í forsætisráðuneytið og þaðan fyrir fánanefnd þar sem kom fram að ekki mætti nota íslenska fánann á þann hátt sem túlkaður væri í merkinu og þar með var framleiðslan bönnuð nema með miklum breytingum. Einnig greindi Sigurður frá þvf að merkismálið væri orðið sambandinu gríðarlega dýrt, útgjöldin orðin 80.000 krónur. Ekkertvar ákveðið varðandi merkið samkvæmt fundargerð. Aftur á móti bað gjaldkeri Harmonikufélags Reykjavíkur um að koma inn á fundinn og upphófust þá miklar umræður og umkvartanir H.R. fyrir að þurfa að greiða eins og aðrir inn á hverja tónleika. Gjaldkeri H.R. kvartaði undan fleiri málum þartil hann var beðinn um að víkja frá þessari umræðu og snúa sér til framkvæmdanefndar. Laga- breytingar tóku við, ný stjórn var kosin þar sem Sigurður Friðriksson gaf ekki kost á sér. Nýrformaðurvar kosinn Yngvi Jóhannsson, F.H.U.R. Fráfarandiformaður minnti á í lok fundar að brýnt væri að næsta stjórn drífi í að merki fyrir sambandið líti dagsins Ijós. Á Laugafundinum voru loks samþykkt lög sambandsins sem eru mjög sambærileg við uppkast til laga sem er í fyrstu fundargerð samtakanna nema hvað nú eru fimm manns í stjórn í stað þriggja; formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari ásamt meðstjórnanda. Einnig skal kjósa tvo menn til vara og tvo endurskoðendur reikninga. Haustfundur í Félagsborg, 5. 10. 1990 tók einnig á merkjamálinu, ásamt með því að heitar umræður spunnust um upptökumál. Flestir voru á því máli að merkjamálið einkenndi ótrúlegt klúður og kostnaður. Ákveðið var að halda aðra samkeppni sem yrði auglýst í Harmonikunni og einu sinni í DV. Besta tillagan fengi 50.000 krónur í verðlaun. Einnig var ákveðið að allar tillögur verði sendar til hvers félags innan S.Í.H.U. og að hvert félag velji að sínu mati áhugaverðasta merkið. Útkomunni verði síðan skilað til sambandsstjórnarinna 3 Rafn Jónsson. Annad Landsmót S.Í.H.U 22. - 24. júní 1984. Fundargerdabók S.Í.H.U. frá 1981 - 2006. 4 Hilmar Hjartarson. Haustfundur stjórnar og fulltrúa S. í. H. U. 7.10.1989, Félagsheimili Húsavíkur, Fundargerdabók S.Í.H.U. frá 1981 - 2006. SÁsgeirS. Sigurdsson. Haustfundurad Varmalandi í Borgarfirdi laugardaginn 7. október 1995. Fundargerdabók S.Í.H.U. frá 1981. fyrir mánaðarmót janúar-febrúar 1991. Áhersla er lögð á að hraða frágangi fána og barmmerkisgerðar svo því geti verið lokið fyrir afmælið þann 3. maí 1991. Síðasta mál á dagskránni var ráðstöfun Landsmótsins. Eftir allnokkrar umræður var tillaga samþykkt um að næsta landsmótyrði íhöndum H.F. Héraðsbúa. Á Hótel Stefaníu, sama ár, var haldinn stjórnarfundur S.Í.H.U. þann 6. október. Þarhófstfundurinn á þvíað ræðatónleika Nils Fláecke á Laugum: “sprellið og geibblurnar meðan á þeim stóð sem mörgum fannst nóg um, en flestum það hafa verið nokkuð skemmtilegt svona í eitt skipti.”5 Enn var haldið áfram að ræða merkið og ákveðið að merkið yrði að vera einfaldleikinn uppmálaður. Á haustráðstefnu S.Í.H.U. á ísafirði 21.9. 1991 var enn haldið áfram að ræða um merki félagsins. Félögin skiluðu gögnum á tilsettum tíma og eitt merki hafði verulega yfir í stigagjöf og önnur tvö voru nokkuð há. Þessi þrjú merki reyndust ölt vera eftir sama höfund, Ólaf Th, Ólafsson frá Selfossi. Öllum leist mjögvelá merkið ogeftirafgreiðslu var þetta mál tekið af dagskrá. Á sama fundi var rætt um heimsókn sænskra harmonikuleikara í tilefni I andssambandssafmælisins, þeirra Anders Larsson, Anniku Andersson, Conny Báeckström og Sigrin Ojefeldt, en þau eru á næstu mynd á ferðalagi um ísland. Þau standa við Ratsjárstöðina á Bolafjalli við Bolungarvík. Þétur Bjarna- son tók myndina. Þessir listamenn héldu sjö tónleika frá 17. - 26. júní vfðs vegar um landið. Nokkuðvardeiltum reikninga og tilhögun funda og einnig um upprennandi Landsmót á Héraði. Eitt af því sem skemmtilegast hefur verið á þessum fundi er væntanlega eftirfarandi sem snýr að slæmri fjárhagsstöðu blaðsins Harmonikan: 9

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.