Harmonikublaðið - 01.09.2007, Page 11
r
Þau vöktu verðskuldaða athygli á landsmótinu
Oddný Björgumsdóttir frá Akranesi, HUV.
Lék einleik. Woshington Post, mars eftir
John Phihn Sousa.
V _________________
Suanur Bjarki Úlfarsson fró Stóru Mörk
leikur i HFR. Hann lék Serenata Prima-
verile eflirPietro Frosim.
Sólberg Valdimarsson frá Akranesi félagi
f HLW bauð einnig áheyrcndum upp á
einleik Dorn Marsttrka eftir Pietro Dero
um það rætt hvort að færa skyldi
fréttaflutning sambandsins yfir á
internetið alfarið. í fundargerð aðal-
fundar S.Í.H.U. á Hótel Örk í Hveragerði,
laugardaginn 30. september 2006 er
þetta mál reifað:
Fundarstjóri Gunnar Kvaran kailaði nú
tilstarfavaramann sinn Jóhann Bjarnason
til að stjórna fundinum... Gunnar vill hætta
útgáfu á Harmonikublaðinu og telur
kostnað þvf samfara vera allt of mikinn.
Hann vill þess í stað nota tölvutæknina og
nýta heimasíðu sambandsins til að koma
fréttum á framfæri og ráða aðila til að sjá
um heimasíðuna. Einnig vill hann nota
dagblöðin meira, kaupa jafnvel heilsíðu í
dagblöðum tvisvar til þrisvar á ári og koma
þar á framfæri fréttum og öðrum
upplýsingum... Jóhann Sigurðsson tók til
máls og sagðist sleginn yfir ræðu Gunnars
Kvaran. Hann vill halda áfram blaða-
útgáfunni og vill a.m.k. eitt blað á ári...
Hreinn Halldórsson tók nú til máls og fór
yfir stöðuna í blaðaútgáfunni. Til þess að
þetta geti gengið áfram þarf að fjölga
áskrifendum og auka upplagið og ekki er
heldur hægt að öll vinna við blaðið sé
sjálfboðavinna heldur þarf að greiða fyrir
þá vinnu. 9
Þaðergreinilegtáöllumfundargerðum
og samtölum við fyrrverandi og
núverandi formenn að eftir 25 ára starf
er enn tekist á um hluti sem menn verða
seint ef nokkurn tfmann sammála um.
Samband ólíkra einstaklinga með sama
áhugamál og ástríðu getur aldrei verið
annað en stormasamt en þó fyrst og
fremst skemmtilegt. Slíkt er eitt af því
sem einkennir lifandi félagsskap
tónlistarmanna þar sem skoðanir fá að
koma fram, þar sem tekist er á um grund-
vallaratriði en undir kraumar tónlistin
sem helduröllu saman. Þannigeralvöru
samband. Tilhamingju meðafmælið.
Sigurður Ingólfsson
Stjórnendur S.Í.H.U. frá upphafi:
Karl Jónatansson 1981 - 1987
Ingvar Hólmgeirsson 1984 -1987
Sigurður Friðriksson 1987 - 1990
Yngvi Jóhannsson 1990 - 1993
Ásgeir S. Sigurðsson 1993 - 1996
Sigrún Bjarnadóttir 1996 - 1999
JóhannesJónsson1999- 2004
Jónas Þór Jóhannsson 2004 -
9 Egilljónsson fundarritari. Adalfundur Sambands íslenskra
harmonikuunnenda, Hótel örk Hveragerdi, laugardag 30.
september 2006. Fundargerðarbók S.Í.H.U. frá 1981-2006.
Nikkur í Svíþjóð sumarið 2007
Hér eru skemmtilegar myndir frá Svíþjóðarferð Hreins Halldórssonar sl. sumar þar sem hann kíkti m.a. í flotta nikkuverslun.