Harmonikublaðið - 01.09.2007, Side 12

Harmonikublaðið - 01.09.2007, Side 12
Dalaferð F.H.U.E. ÍO. MARS 2007 yNe <Jv'jy yrn Nú er hin langþráða Dalaferð að hefjast. Það hefur verið toppurinn á hinum vinsælu rútubílaferðum okkartil annarra félaga um landið og ekki klikkuðu Dalamenn. Lagt var af stað frá Akureyri kl. 10. Fjörutíumanna rúta var þéttsetin og mikill hugur í fólkinu enda beið okkar mikil dagskrá með síðdegiskaffi, óvissuferð, kvöldverði og svo dansi þar sem heima- menn og gestir skiptust á að spila og að lokum spiluðu allir saman. Einar Guðmundsson. Komið var í Þrándargil, sem er veiðihús neðarlega í Laxárdal, en þar skyldum við hafa næturstað, (en vegna mikillar þátttöku þurftu sumir að gista f Búðardal.) Þar beið okkar sfðdegiskaffi kleinur, kökur og flatbrauð með heimareyktu hangikjöti og laxi. Síðan hófst óvissu- ferðin, sem var rútuferð um sveitina, skipulögð af jóni Ben. Fararstjórinn Melkorka lýsti byggðinni og búhögum fólks af mikilli list. Ekið var í Eiríksstaði í Haukadal þar sem Eiríkur okkar rauði landnámsmaður hafði komið sér fyrir og er þarna mikið langhús með tilheyrandi langeldi. Staðarhaldarar, þau Sigurður og Helga, lýstu staðnum og sögðu sögu hans af mikilli kunnáttu og leikni, lífsvökvi veittur eins og hver vildi. Að lokum var formanni Þrándvgfl k\-eoju stund Ognu Kvedjustund: og nú þarfad vanda sig! okkarfenginnstríðshjálmuroglátinnskála við staðarhaldara og drekka guðaveigar úr drykkjarhorni miklu, var hann rjóður og brosmildur það sem eftir var óvissuferðar. Þá var haldið til Þrándargils þar sem þessar elskur okkar fyrir vestan voru búnar að útbúaþvílíkankvöldverðsemvarlambakjöt af öllum gerðum ásamt meðlæti. Deginum lauk með dansleik í Dalabúð í Búðardal kl. 2:30. Á sunnudagsmorguninn beið okkar svo morgunmatur í Þrándargili að hætti Dalamanna. Síðan voru Dalamenn Fyrirhugaðir dansleikir F.H.U.E. 2007 - 2008 Laugardaginn 29. september 2007 Laugardaginn 27. október 2007 - fyrsti vetrardagur Laugardaginn 24. nóvember 2007 Laugardaginn 29. desember 2007 - Jólaball Laugardaginn 26. janúar 2008 - Laugardaginn 23. febrúar 2008 Laugardaginn 29. mars 2008 Miðvikudaginn 23. apríl 2008 Laugardaginn 17. maí 2008 Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð kvaddir og haldið norður. Heimferðin gekkhægaren vesturferðin vegna mikillar hláku og rigningar um nóttina en allur snjór sem var frosinn á vesturleiðinni var Frð vinstri: Ragnheiður Jónsdóttir, Asgerður lónsdóttir, Fjóia Benediktsdðttir og Melkorka Benediktsdóttir. nú krapi einn, en bílstjórinn okkar, Kjartan frá Grfmstöðum í Mývatnssveit, sýndi leikni sína bæði við bíl og menn. Margar sögur og brandarar voru sagðir ogekki klikkaðiSigurðurlndriðason með frásagnarsnilldina, svo var getraun, spilað lag og spurt um höfundinn, margir voru sleipir að svara, hvort svörin voru öll rétt veit ég ekki. Komið heim kl 17:30 eftir vel heppnaða ferð. Erfitt verður að toppa móttökur Dalamanna. Númi Adolfsson Nikkur í Svíþjóð frh.

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.