Harmonikublaðið - 01.09.2007, Page 13

Harmonikublaðið - 01.09.2007, Page 13
Sumarferd Harmonikufélags Vestfjarða 2007 Leikid á dansleikííþróttahúsinu á Tálknaprdi: VilliValliharmonika, HólmgeirBaldursson trommur, Karl Geirmundsson söngur, Magnús Reynir Guðmundsson bassi, Baldur Geirmundsson harmonika. (Ljósm. Ásgeir S. Sigurdsson) Harmonikufélag Vestfjarða hefur á undanförnum árum farið í sumarferðir, sem hafa alltaf verið vel sóttar og notið mikilla vinsælda. Að þessusinnivarfariðtilTálknafjarðar daganna 24 til 27 ágúst. Farið var frá ísafirði kl. 15.00 á rútu með viðkomu á Þingeyri þar sem í hópinn bættust Dýrfirðingar. Síðan var ekið áleiðis til Arnarfjarðar með viðdvöl í Dynjandisvogi, þeim einstaklega fallega stað. Þaðan var ekið áleiðis til Tálknafjarðar þar sem gist var í sumarhúsum og gistiheimilinu Bjarmalandi. Eftir að kvöldverður hafði verið snæddur voru hljóðfærin tekin upp og upphófst söngur og gamanmál, þá bættust í hópinn gestir frá Reykjavík og Blönduósi. Klukkan tólf á laugardag var farinn skoðunarferð um Arnarfjörð, á Benedikt G. Benediktsson spilará díatóniska harmoniku í Hópinu á Tálknafirdi (Ljósm. Ásgeir S,Sigurdsson) Bíldudal bættist í hópinn Benedikt G. Benediktssonogvarhann leiðsögumaður f ferðinni ásamt Pétri Bjarnasyni. Ekið var áleiðis í Selárdal en komið var við í Hringsdal þar sem nú fara fram fornleifarannsóknir. í Selárdal voru skoðuð merkileg listaverk Samúels Jónssonar sem verið er að gera upp. Benedikt fara rstjóri bauð okkur í samkomuhús þar í dalnum sem hann hefur verið að gera upp ásamt öðrum. Þar lék hann ásamt þremur öðrum félögum nokkur lög á dfatónískar harmonikur á meðan snæddar voru veitingar i boði félagsins. Á heimleiðinni virtum við fyrir okkur landsvæðið í Hvestu þarsem komið hefur til álita að reistverði olíuhreinsunarstöð. Klukkan sex hófst hátfðarkvöldverður í veitingarstaðnum Hópinu á Tálknafirði. Veislustjóri var Magnús Reynir Guðmundsson, sem fór á kostum. Við þetta tækifæri var Benedikt G. Benediktsson gerður að heiðursfélaga Hamonikufélagsins en hann hafði orðið áttræður þann 23.ágúst s.l. Flutt voru gamanmál, sungið var við harmoniku- undirleik Péturs Bjarnasonar og Benedikt nýkjörinn heiðursfélagi lék nokkur lög á díatónisku harmonikuna sfna sem er „einföld harmonika", þ.e. aðeins ein takkaröð fyrir hægri hönd. Harmonikudansleikur í íþróttahúsinu hófst kl. 22.00 og hinarýmsu hljómsveitir félagsins léku fyrir dansi. Mikið fjör var á dansleiknum sem 150 manns á öllum aldri sóttu, Eftir hádegi á sunnudag var haldið heimleiðis. Komiðvarvið f Mjólkárvirkjun og þegnar veitingar í tilefni af 30 ára afmæli Orkubús Vestfjarða. Almenn ánægja var hjá þátttakendum með þessa ferð sem þótti takast mjög vel. Ferðanefndinni sem var skipuð þeim Karitas Pálsdóttur, Björgu Hansdóttur og Inga Jóhannessyni eru færðar sérstakar þakkir fyrir sitt góða starf. Sömuleiðis voru heimamenn ánægðir með komu hópsinsog þótti dansleikurinn á laugardagskvöldið hafa tekist með miklum ágætum. Nokkrir þeirra komu að máli við harmonikumenn og óskuðu eftir því að þetta yrði gert að árlegum viðburði. ÁsgeirS. Sigurðsson Höfundur lagsins Tangó í G-moll, Baldur Björn Geirmundsson, er fæddur 15. október 1937 á Látrum í Aðalvík, en er búsettur á ísafirði. Hann fór ungur að spila á harmoniku eða 11 til 12 ára og þegar hann var 14 ára hóf hann að spila á dansleikjum ýmist einn eða ásamt öðrum harmonikuleikara og léku þeir þá oftast til skiptis. Árið 1958 stofnaði hann hljómsveitina B.G, en með henni hafa sungið nokkrir söngvararognöfnum þeirra þá bættaftan við, bar þá hljómsveitin nöfnin B.G og p LAG BLAÐSINS -------------------- Gunnar Hólm, B.G. og Árni, en þekktust er hljómsveitin undir nafninu B.G. og Ingibjörg en á þeim tíma ferðaðist hljómsveitin víða um landið sem frægt er og einnig gaf hún út nokkrar hljómplötur. Þrátt fyrir mannabreytingar á þessum árum lék Karl bróðir Baldurs með hljómsveitinni frá upphafi. Nokkur undanfarin ár hefur Baldur fengið til liðs við sig söngkonuna Margréti Geirsdóttur og hafa þau komið fram undir nafninu Baldur og Margrét og leikið við miklar v i n s æ l d i r víða um land. Einnig er Baldur mjög virkur í starfi Harmoniku- félags Vest- fjarða og hefur meðal annars æft og stjórnað hljómsveitum félagsins. Ásgeir S. Sigurðsson

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.