Fréttir - Eyjafréttir - 24.01.2008, Blaðsíða 1
35. árg. I 4. tbl. I Vestmannaeyjum 24. janúar 2008 I Verð kr. 200 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
Snjótittlingarnir hafa átt nokkuð erfitt í þeirri tíð sem verið hefur að undanförnu. Margir hafa þó að fastri siðvenju að gefa þeim og
til að mynda seldist allt fuglafóður upp í bænum um síðustu helgi. Þessa fallegu mynd tók Sigríður Högnadóttir frá Vatnsdal.
Stofnun Þekkingarseturs Vestmannaeyja:
Framfaraspor fyrir atvinnulíf
og þróun byggðar í Eyjum
í gær, 23. janúar, fór fram stofnun
Þekkingarseturs Vestmannaeyja í
Alþýðuhúsinu. í mars á síðasta ári
hófst undirbúningur að endurskipu-
lagningu rannsókna- og háskóla-
starfsemi í Vestmannaeyjum og var
starfshópi, skipuðum fulltrúum
Vestmannaeyjabæjar, Menntamála-
ráðuneytis, Rannsókna- og fræða-
setursins og atvinnulífsins, falið
verkefnið.
Eftir að verkið var komið nokkuð
áleiðis á miðju síðasta ári var ráðinn
sérstakur verkefnisstjóri, Ingibjörg
Þórhallsdóttir, til þess að fylgja því
eftir með starfshópnum. Rætt hefur
verið við fjölmarga aðila en allt
starfið hefur miðað að því að stór-
efla rannsókna- og háskólastarfsemi
í Vestmannaeyjum með nýjum verk-
efnum og fjölgun sérhæfðs starfs-
fólks.
Auk þess að vinna að stofnun
Þekkingarseturs sem mun meðal
í starfshóp áttu sæti, Þorsteinn Ingi Sigfússon, Rögnvaldur Ólafsson,
Páll Marvin Jónsson , Guðrún Marteinsdóttir, Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson og Arnar Sigurmundsson var formaður hópsins, Þá
störfuðu með hópnum, Hrafn Sævaldsson, Elliði Vignisson, og síðar
Ingibjörg Þórhallsdóttir en hún var ráðin verkefnisstjóri í júlí 2007.
F.v. Arnar, Ingibjörg, Páll, Elliiði, Hrafn og Rögnvaldur.
annars yfirtaka starfsemi Rann-
sókna- og fræðaseturs Vestmanna-
eyja hefur mikil vinna farið í þarfa-
greiningu vegna framtíðarhúsnæðis
fyrir starfsemina og undirbúnings-
vinnu að stofnun Sjávarrann-
sóknamiðstöðvar í Eyjum sem mun
starfa í mjög nánum tengslum við
ÞSV.
Stofnaðilar að Þekkingarsetrinu
verða liðlega 30 talsins og koma
þeir úr hópi mennta- og rannsókna-
stofnana, félaga og atvinnufyrir-
tækja innanbæjar og utan.
Að sögn Amars Sigurmundssonar
formanns undirbúningsnefndar er
stofnun Þekkingarseturs Vestmanna-
eyja rökrétt framhald af því mikil-
væga starfi sem unnið hefur verið í
Rannsókna- og fræðasetrinu frá
stofnun þess 1994 en starfsemi ÞSV
verður mun víðtækari í framlíðinni
að mati Arnars.
Blysförin klukkan 18.45
Fréttir og
Kastljós í
beinni
Þakkargjörð fer fram í dag,
miðvikudag 23. janúar, og litið til
þess að allir íbúar Heimaeyjar
björguðust þegar eldgos hófst á
Heimaey fyrir 35 árum. Blysför
hefst klukkan 18.45 stundvíslega
frá Ráðhúsinu, ekki klukkan
19.00 eins og áður var auglýst, og
fólk beðið um að mæta klukkan
18.30 til að undirbúa blys.
Gengið verður sem leið liggur upp
Kirkjuveg og áð við Landakirkju.
Gangan heldur svo áfram upp í
Höll þar sem vönduð dagskrá
verður í boði. Flutt verður tónlist
og frásagnir sem tengjast gos-
tímanum og öllum gestum verður
boðið upp á brauð og súpu í
Höllinni.
Þegar dagskrá lýkur í Höllinni
hefst bein útsending í Ríkis-
sjónvarpinu. Fréttir hefjast kl.
21.00, vegna útsendingar lands-
leiks í handbolta og fréttir og
Kastljós sjónvarpsins verða í
beinni útsendingu fá Höllinni.
Eyjamenn eru því hvattir til að
sitja áfram og fylgjast með út-
sendingunni en allt efni Kast-
ljóssins verður tengt Eyjum.
Flytja á
Reynistað
Volare, Barnaborg og Fasteigna-
salan Heimaey hafa keypt versl-
unarhúsnæði við Vesturveg þar
sem húsgagnaverslunin Reyni-
staður hefur verið starfrækt til
margra ára.
„Við erum að kaupa 75% af
verslunarhúsnæði Reynistaðar á
móti Heimaey fasteignasölu sem
kaupir 25%,“ sagði Sigursveinn
Þórðarson, framkvæmdastjóri
Volare og Bamaborgar.
„Við höfum haft augastað á
þessu húsnæði í nokkum tíma og
hugsum þetta þannig að Volare og
Barnaborg verði á sama stað.
Bamaborg er í leiguhúsnæði og
við emm með vörulager í húsnæði
niðri á bryggju. Við náum hag-
ræðingu með alla starfsemina á
einum stað bæði fjárhagslega og
með betri vinnuaðstöðu og nýtin-
gu á mannskap. Auk þess gefur
þetta okkur tækifæri til að auka
vömframboðið.
Heimaey verður alveg sér með
sinn rekstur. Mér finnst við vera
að fá einn besta verslunarstað í
bænum sérstaklega með tilliti til
nýbyggingar á Baldurshaga-
lóðinni. Við teljum að þama sé að
myndast miðbæjarkjami sem við
viljum vera hluti af,“ sagði
Sigursveinn.
VIÐ LÁTUM BÍLINN GANGA...
...SVO ÞÚ ÞURFIR ÞESS EKKI
nelÉhamar
VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / <vf' ÞJÓNUSTUAÐIU IOYOTA í EYJUM
FLATIR 21 / S.481 -1216 / GSM. 864-4616