Fréttir - Eyjafréttir - 14.02.2008, Side 1
Mynd: Oskar Friðrik Pétursson
FRÉTTIR
\
y
Bílaverkstæðið
BrAGGINN sf.
Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð - Sími 481 3235
Réttingar og sprautun - Sími 481 1535
VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI.J Il€ it^hamar
VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI
SMURSTÖÐ 0G ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / 6£> ÞJÓNUSTUAÐILIT0Y0TA í EYJUM FLATIR 21 / S.48M216 / GSM. 864-4616
35. árg. I 7. tbl. I Vestmannaeyjum 14. febrúar 2008 I Verð kr. 200 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
MIKIÐ gekk á í veðrinu á föstudagskvöldið og höfðu lögreglumenn og Björgunarfélagsmenn í nógu að snúast. Hér eru
Björgunarfélagsmenn að reyna að ná tökum á stórri járnplötu sem var að fjúka af húsinu númer 53 við Heiðarveg. Víðar varð tjón í
bænum en ekki urðu slys á fólki. Nánar á bls. 2.
Ennþá lítið sést af loðnunni - Hefur gerst áður:
Spurning um verðmæti
Lítið er að frétta af loðnu og bíða
menn nú í ofvæni eftir því að hún
láti sjá sig og eiginleg vertíð hefjist.
Sighvatur Bjarnason VE var á
leiðinni á miðin á miðvikudag og
var eina Eyjaskipið á slóðum loð-
nunnar. Skip Isfélagsins hafa hætt
veiðum í bili og vilja ná betri loðnu
í frystingu og hrognatöku. Þó lítið
hafi sést af loðnu ennþá eru menn
ekki úrkula vonar því þetta hefur
gerst áður.
Bjami Harðarson, alþingismaður
spurði Steinunni Valdísi Oskars-
dóttur, formann samgöngunefndar,
um stefnu stjórnarflokkanna í sam-
göngumálum Vestmannaeyinga í
fyrirspumatíma til alþingismanna á
þriðjudag.
„Eg vildi vita hvort einhverra
breytinga væri að vænta vegna
nýlegrar yfirlýsingar fjármálaráð-
Mikið er í húfi fyrir Eyjamenn því
þeir hafa yfir að ráða um fjórðungi
aflaheimilda Islendinga í loðnu.
Þrátt fyrir að tiltölulega lítili kvóti
hafi verið gefinn út undanfarin tvö
ár náðu bæði Vinnslustöð og ísfélag
að skapa mikil verðmæti úr tak-
mörkuðum afla. Náðist að frysta
mikið magn og hrognataka gekk vel.
Nutu Eyjamenn þess að loðnan er
best til manneldis þá daga sem hún
gengur hér fram hjá.
herra á fundi í Vestmannaeyjum um
að ljúka þyrfti rannsóknum vegna
jarðgangagerðar. I framhaldinu
mættu fulltrúar Ægisdyra á fund
samgöngunefndar þar sem þeir
kynntu sín sjónarmið og ég vildi
vita hvar málið stæði.
Steinunn sagði að ekkert væri á
borði samgöngunefndar um að
ljúka þessum rannsóknum þannig
Guðni Ingvar Ingvarsson, útgerð-
arstjóri Vinnslustöðvarinnar, sagði
að þar á bæ vildu menn ná í loðnu til
að keyra í gegnum frystinguna í
frystihúsinu og sjá hvort allt virkaði
og væri í lagi. Það sé merki um að
menn séu ekki búnir að gefa upp
vonina um að loðnan finnist og
Guðni Ingvar sagði loðnuna koma
sífellt á óvart og erfitt að reikna
hana út. „Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem loðna hefur ekki verið farin að
að þetta hefur ekkert verið rætt
milli stjómarflokkanna. I um-
ræðunum kom fram að menn
ætluðu að halda ótrauðir áfram með
Bakkafjöruhöfn og stjómarliðar
telja mikilvægt að framkvæmdum
þar ljúki á áætluðum tíma,“ sagði
Bjami þegar hann var spurður út í
málið.
veiðast á þessum tíma. Hins vegar
snúast verðmætin fyrst og fremst
um frystingu á loðnu og loðnu-
hrognum og í því liggur pening-
urinn,“ sagði Guðni Ingvar, hinn
rólegasti.
Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri
Isfélagsins, sagði að þar biðu menn
átekta meðan ekki veiddist meira af
loðnu. Þegar fréttir um að norsk skip
hefðu fundið loðnu við Reyðar-
fjarðardýpi á miðvikudagsmorgun
voru bornar undir hann sagði hann
um 25 norsk skip vera á miðunum
fyrir austan.
„Þeir mega vera á miðunum til 15.
febrúar og eru að reyna við þetta. Eg
held þetta sé samt ekki í meira
magni en verið hefur undanfama
daga því við emm sjálfir búnir að ná
í 6.000 tonn. Við höfum hins vegar
stoppað veiðarnar í bili því við
höfum takmarkaðan kvóta og
viljum ná í betri loðnu til frystingar
og hrognatöku. Vonandi fínnst
meiri loðna og mælist í meira magni
sem gefur tilefni til kvóta-
aukningar," sagði Eyþór.
Bjarni Harðarson, alþingismaður:
Ekkert um gangarannsóknir á borði
samgöngunefndar
Óskar Sigurðsson í
Stórhöfða segir óveð-
urskaflann búinn að
vera óvenju langan:
Minnir á
árin í
kringum
1990
-Mesta vindhviðan 50,3
metrar
Mesti meðalvindhraði á Stór-
höfða í tíu mínútur var 41
metri á sekúndu á föstudags-
kvöldið sem jafnaði mesta
meðalvindinn í vetur. Mesta
vindhviðan var 50,3 metrar á
sekúndu en sú mesta sem
mælst hefur í vetur var 51,5
metrar.
Þetta kom fram hjá Óskari
Sigurðssyni í Stórhöfða sem
sagði að fara yrði aftur til
ársins 2004 til að finna jafn
mikinn vind. „Annars hafa
undanfarin ár verið veðurlítil
og hlý. Veturinn núna minnir
frekar á hvernig þetta var fyrir
20 til 30 árum. Þá var meiri
snjór, hvassviðri og Ieiðindi,“
sagði Óskar.
Hann sagði að mikil átök fylgi
svona veðrum, ekki síst í suð-
vestan áttinni en þá fylgir
mikið brim. „Ölduduflið við
Surtsey er bilað en það voru
upp í 14 metrar á dufli við
Grindavík sem er mjög mikið.“
Þegar Óskar er spurður hvort
honum íinnist veturinn að ein-
hverju leyti óvenjulegur, segir
hann það helst vera hvað óveð-
urskaflinn hefur staðið lengi.
„Það hafa oft komið svona
kaflar en þessi hefur staðið
nokkuð lengi.“
Mikið frost gerði 1. febrúar
og komst frostið mest í 11,2
gráður á Stórhöfða. „Ég hef
ekki athugað hvað langt er
síðan svona mikið frost hefur
komið hérna. Það hefur gerst
áður en allan þennan dag var
frostið yfir tíu gráður.“
Þegar Óskar var spurður
hvort hann sjái breytingar á
veðrinu framundan sagði hann
að það eigi að mildast seinni
part vikunnar. „Það gæti verið
upphafið að nýjum og betri
kafla. Annars hefur ekki verið
mikið um rok af háaustri í
vetur sem getur verið mjög
slæmt hér við Suðurströndina.
Það kemst ekki oft í fjölmiðla
en í sunnan og suðvestan áttum
skellur veðrið af meiri þunga á
höfuðborgarsvæðið og þá er
það orðið fréttnæmt,“ sagði
Óskar að lokum.