Fréttir - Eyjafréttir - 06.03.2008, Síða 4
I
Bloggneimar
Álsey VE:
Smá bras
og leiðindi
Komnir inn til Helguvíkur með
rifna nót. Vorum að skríða inn á
Helguvík um kl tvö. Vorum með
ansi myndarlegt kast í leiðinda
veðri þegar við rifum nótina þar
sem hún vafðist aðeins utan um
blýteininn. Smá bras og leiðindi
fylgdu þessu. Fengum þó sennilega
um 4-500 tonn úr þessu og erum
því komnir með 6-700 tonn. Þeir
komu hingað frá Veiðarfæra-
gerðinni Krosshúsum í Grindavík
til að gera við. Veðrið gengur
vonandi niður á meðan við klárum.
Fréttir / Fimmtudagur 6. mars 2008
Magnús Bragason:
Sveitaróman-
tík í hríðinni
Það er varla hægt að fara út úr húsi
og höfum við haft
það kósý í dag.
Manni líður eins
og maður sé upp í
sveit og hefur
bóndakonan í
Helli verið dugleg
í bakstri og mat-
seld. Þetta er eins
og á stórhátíðum.
Vorum með tvo peyja í gistingu og
hafa þeir og Friðrik verið duglegir
að leika sér í sköflunum seinnipart
dagsins.
Maður verður að fara snemma að
sofa. Verð sennilega að byrja að
moka upp bílinn klukkan sjö. Það
þýðir að maður verður að vera
sofnaður um tíuleytið.
Hvenær ætli bændur byrji að
mjólka á morgnana?
Tómas Sveinsson:
Dýpstu neðan-
sjávargöng í
heimi
Jæja þá er búið að opna ný neðan-
sjávargöng í Noregi
og er kostnaður
langt undir því sem
Vegagerðin hefur
verið að tala um að
kostnaður yrði við
gangagerð til Eyja,
en nálægt því sem
Árni Johnsen hefur
talað um.
Það er því spurning hvort stjórn-
völd ættu ekki frekar að ræða við
Norðmenn, eða þeirra vegagerð til
þess að losna við bæði spennu og
kergju sem virðist vera á sumum
bæjum í þessu máli.
Kirkjur bazjarins:
landa-
kirkja
Fimmtudagur 6. mars
Kl. 10.00. Mömmumorgunn.
Pálínuboð.
Kl. 20.00. Kaffihúsamessa í
Safnaðarheimili Landakirkju.
Kaffihúsakór Landakirkju syngur
undir stjóm Ósvalds Freys
Guðjónssonar.
Föstudagur 7. mars
Kl. 13.00. Æfing hjá Litlu læri-
sveinunum, yngri hópur.
Kl. 14.00. Æfing hjá Litlu læri-
sveinunum, eldri hópur.
Sunnudagur 9. mars
Kl. 11.00. Barnaguðsþjónusta með
miklum söng og gleði sem bama-
fræðarar og prestar Landakirkju sjá
um.
Kl. 13.00. NTT-9-10áraí
Safnaðarheimili Landakirkju
Kl. 14.00. Guðsþjónusta. Kór
Landakirkju syngur undir stjóm
Guðmundar H. Guðjónssonar. Sr.
Guðmundur Örn Jónsson prédikar
og þjónar fyrir altari. Kaffi og
spjall í Safnaðarheimilinu að athöfn
lokinni.
Kl. 16.00. ETT-11-12 áraí
KFUM&K-húsinu.
Kl. 20.30. Æskulýðsfélagsfundur í
Safnaðarheimili Landakirkju.
Mánudagur 10. mars
Kl. 16.00. Kirkjustarf fatlaðra,
yngri hópur.
Kl. 17.00. Kirkjustarf fatlaðra, eldri
hópur.
Kl. 19.30. Fundur í 12 spora
andlegu ferðalagi undir handleiðslu
Vina í Bata.
Þriðjudagur 11. mars
Kl. 14.20. og 15.10.
Fermingarfræðsla í fræðslustofunni.
Miðvikudagur 12. mars
Kl. 13.40. og 14.10.
Fermingarfræðsla í fræðslustofunni.
Viðtalstímar prestanna eru á
mánudögum til föstudaga milli
11.00 og 12.00.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur 6. mars
Kl. 20:30 Biblíulestur
Laugardagur 8. mars
Kl. 20:30 Bænastund
Sunnudagur 9. mars
Kl.13 Samkoma.
Bamastarf á sama tíma
Allir hjartanlega velkomnir
Bœnastundir virka daga kl. 7:30.
Aðventkirkian
Laugardagur 8. mars
Við bjóðum þér til að rannsaka með
okkur Ritninguna kl. 10:30 og njóta
guðþjónustu kl.l 1:30. Eric Guð-
mundsson, prestur okkar, mun
stjóma umræðum og prédika.
Sjáumst!
Eigðu góðan dag.
Eyjamaður vikunnar:
Matgozðingur vikunnar:
Mangókjúklingur og litla syndin góða
Mango-kjúklingur
5-6 bringur
salt/pipar
4 rif hvítlaukur
1 peli rjómi
ló krukka Mangochutney
1 msk. karrí
Kjúklingurinn skorinn niður í litla
bita, kryddaður með salti og pipar,
steiktur á pönnu. Þegar kjúkling-
urinn er alveg að verða steiktur er
lauknum og öllu dótinu hellt út á
og hrært saman. Látið malla í
svona 15 mín. Borið fram með með
hrísgrjónum og brauði.
Eftirréttur:
Litla syndin ljúfa
Uppskrift fyrir sex.
140 gr smjör
140 gr 70% súkkulaði
2egg
3 eggjarauður
140 gr flórsykur
60 gr hveiti
Smjör og súkkulaði brætt saman
Egg og eggjarauður þeytt saman,
bætt í flórsykri og þeytt áfram,
súkkulaðiblöndu hrært saman við
Matgœðingurinn er
Ragnar Grétarsson.
(má ekki vera heitt) og hveiti í lok-
in. Deigið geymist í 2-3 daga í
ísskáp. Notið álform, setjið í
formin, má ekki fylla alveg, bakið í
9 mín við 220° , sett í heitan ofn,
ekki blástur. Þarf að standa í þrjár
mín.
Áður en hvolft er úr mótunum
þarf að renna hnífsblaði hringinn
áður en hvolft er yfir diskinn.
Eg þakka Heiðari fyrir áskorunina
og skora á Ágúst Guðmundsson,
Sóleyjargötu 8 að gefa næstu upp-
skrift.
Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar,
íslenska Gámafélagsins og Gröfu-
þjónustu Brinks hafa haft nóg að
gera við snjómokstur undanfama
daga. Ekki hefur snjóað eins mikið
í Eyjum í heil fjörutíu ár og bærinn
nánast á kafi í snjó á sunnudags-
morgun. Þar af leiðandi var tölu-
verður handleggur að koma götum í
það horf að hægt væri að ganga um
þær hvað þá aka. Starfsmennirnir
eru allir Eyjamenn vikunnar að
þessu sinni. Guðmundur Þ.B.
Ólafsson, forstöðumaður Þjónustu-
miðstöðvar, lagði ríka áherslu á að
hann kæmi fram sem fulltrúi þeirra
sem hafa unnið við snjómokstur
bæði hjá Þjónustumiðstöð
Vestmannaeyja sem og Islenska
Gámafélaginu og Gröfuþjónustu
Brinks.
Nafn: Guðmundur Þorlákur Bjarni
Ólafsson.
Fæðingardagur: 27. nóvember
1947.
Fæðingarstaður: Reykjavík,
uppalinn vestast í vesturbænum á
Bræðraborgarstíg 10.
Fjölskylda: Eiginkona mín er
Þuríður Kristín Kristleifsdóttir og
eigum við fjögur böm, Jónu Sig-
ríði, Kristleif, Sigþóru og Ólaf
Kristján. Bamabömin em ellefu.
Draumabíllinn: Mercedes Benz
Uppáhaldsmatur: Nánast allur
matur, naut, humar, ítalskur matur
svo eitthvað sé nefnt, einhver ítali í
mér.
Versti matur: Selskjöt.
Uppáhalds vefsíða: Þær eru margar,
helst fréttasíður, fer oft á dag inn á
Eyjasíðurnar eyjafrettir.is og
eyjar.net.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Bítlarnir em efstir á blaði, en
tónlist almennt höfðar mikið til mín
og spannar sú flóra nokkuð vítt
svið.
Aðaláhugamál: Það er fjölskyldan,
og svo auðvitað íþróttimar.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Frelsarann Jesú Krist, vonandi
gerist það samt ekki á næstunni.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Það er Heimaey, kom í
heimsókn 1965 og hef nánast ekki
farið síðan. Féll bæði fyrir konunni
og eyjunum.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Þeir eru margir, þar á
Guðmundur Þ.B. Ólafsson er Eyjamaður vikunnar
meðal vinur minn Palli Almars og
svo auðvitað öll barnabörnin sem
stunda íþróttir. ÍBV er mitt félag og
svo auðvitað Wolverhampton
Wanderers. Meðan þeir eru ekki í
efstu deild læt ég Liverpool hrella
mig með mjög misjöfnum leikjum.
Ertu hjátrúarfullur: Það örlar á
því.
Stundar þú einhverja íþrótt:
Nei, en ég tek einn og einn leik í
snóker.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
Spennumyndir, fréttir, fræðslu-
myndir og íþróttir.
Hefur ekki verið brjálað að gera
við mokstur: Jú, allur mannskap-
urinn á fullu og öll tæki bæjarins
notuð
Hvernig hefur vinnufyrirkomu-
lagið verið: Við reynum að halda
stofnleiðum opnum og vinnum
okkur svo inn í íbúðarhverfin.
Hvað hefur verið erfiðast: Fyrir
uta allan þennan snjó, þá hefur það
ekki hjálpað okkur hversu margir
reyna að vera á ferðinni á bílum
sínum í þessari ófærð. Svo hefur
álagið á mannskapnum verið mikið
og stundum lítinn svefn að hafa.
Er mikið hringt í ykkur/ kvartað:
Það er mikið hringt í okkur, sumir
kvarta, aðrir biðja um upplýsingar
um hvenær rutt verði hjá þeim og
svo þau símtöl sem okkur þykir
vænst um, þeir sem hrósa okkur, og
þeir hafa verið nokkrir. Það er líka
ágætt að fá upplýsingar um hvað
við getum gert betur, en það tekur
mikinn tíma þegar sömu aðilar
hringja margoft inn, eiga að vita að
við erum bara að gera okkar besta.
Vil minna á upplýsingar um
snjómokstur á vefsíðu bæjarins
vestmannaeyjar.is
Hvernig bregðist þið við þegar
hlánar: Við erum að hreinsa neðst í
bænum þar sem við búumst við
mesta álaginu og fylgjumst með
þar sem opna þarf fyrir niðurföll.
Annars vil ég hvetja fólk til að
gæta vel að niðurföllum við hús sín
og vera á varðbergi á hverjum tíma
þegar von er á asahláku.
Einhver skilaboð að lokum: Allir
starfsmenn, bæði frá Þjónustu-
miðstöð Vestmannaeyja, Islenska
Gámafélaginu og Gröfuþjónustu
Brinks, sem komið hafa að snjó-
ruðningunum, bæði þeir sem vinna
á tækjum sem og þeir sem eru í
handmokstrinum, eiga miklar
þakkir skilið fyrir fórnfúst starf, þar
sem þeir hafa lagt sig alla fram.
Þeir eru menn vikunnar. Því miður
er starf þeirra stundum vanmetið.
Eg vil benda bæjarbúum á að sýna
okkur þolinmæði og gera sér grein
fyrir því að ástandið hefur ekki
verið eðlilegt.
Bendi á að heimurinn ferst ekki
þó svo að við þessar aðstæður haldi
þeir sig heima sem það geta og í
það minnsta að skilja vanbúinn
bílinn eftir heima.
Ey|a-
fréttirJs
-fréttir millí Frctta
Skiljum vanbúna bíla eftir heima