Fréttir - Eyjafréttir - 06.03.2008, Qupperneq 16
(FRÉTTIRl /’ Sun investmencs S.L
FASTEIGNASALA Á SPÁNI LINDA RÓS
Frétta- og auglýsingasími: 481-1300 / Fax 481-1293 | (0034) 646 930 757 lindarosg@hotmail.com www.suninvestmentsl.com
piús j/W &
™ iSÍS
UMEJOÐJS'YiUM
rÆ)njmíij‘
'\66J
Kirkjuvegi 10
Sími: 481-3666
HJARTAHEILL Vestmannaeyjum afhenti Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyjum hjartastuðtæki af gerðinni
Medtroonic Lifepak 20 og fylgihluti að gjöf síðasta föstudag. Hjörtur Kristjánsson, yfirlæknir, tók við
gjöfinni og tekur hann hér í hönd nafna síns Hermannsonar, formanns Hjartaheilla. Með eru Guðjón Olafs-
son, t.v. og Leifur Gunnarsson t.h.
Uppstokkun í yfirmannaliði Herjólfs:
Fjórir lækkaðir í tign
-Þriðji skipstjórinn kemur úr röðum Eimskipsmanna -Eðlilegt
að færa menn milli skipa segir framkvæmdastjóri hjá Eimskip
Það virðist hafa komið flatt upp á
yfirmenn Herjólfs þegar nýr skip-
stjóri var kynntur fyrir þeim á
mánudaginn. Er það þriðji skip-
stjórinn sem kemur úr röðum
Eimskipsmanna. Um leið færðust
fjórir yfirmenn, sem allir eru úr
Eyjum, niður í starfl. Framkvæmda-
stjóri hjá Eimskip segir að Herjólfur
sé nú hluti af stærri heild og að
eðlilegt sé að menn færist milli
skipa. Það sé alls ekki verið að sýna
þessum starfsmönnum vantraust
Fréttir leituðu upplýsinga hjá þeim
sem þetta bitnar á en enginn vildi tjá
sig um málið. Eftir því sem næst
verður komist kom það þeim algjör-
lega í opna skjöldu þegar nýr skip-
stjóri, Hafsteinn Hafsteinsson, var
kynntur fyrir þeim. Hann hefur
unnið hjá Eimskip í áratugi, var m.a.
á Brúarfossi.
Eðlilega eru menn ekki sáttir við
breytingar á sínum högum. Þær eru
helstar að sá sem verið hefur skip-
stjóri í rúmt ár verður yfirstýri-
ntaður. Annar missir tvo til þrjá
mánuði á ári sem yfirstýrimaður og
verður stýrimaður hina mánuðina.
Sá þriðji verður stýrimaður í um þrjá
mánuði og hinn tímann verður hann
á dekki. Sá sem gegnt hefur starfi
stýrimanns í afleysingum í einn til
tvo mánuði á ári verður háseti. Þeir
tveir stýrimenn, sem eru með
lengstan starfsaldur, halda sínu.
Þetta mun hafa haft einhvern
aðdraganda og höfðu Fréttir haft af
þessu spurnir. Fjórmenningarnir
fengu ekkert að vita fyrr en á mánu-
daginn. Finnst þeim þar illa að sér
vegið því fregnir af breytingunum
voru komnar á kreik viku fyrr að
minnsta kosti.
Þeim var tilkynnt að um skamm-
tímaráðstöfun væri að ræða.
Hluti af stærri heild
Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri hjá Eimskip, sagði almenna
reglu hjá félaginu að ræða ekki
málefni einstakra starfsmanna.
Herjólfur sé í dag ekki rekinn einn
og sér heldur sé hann hluti af stærri
heild hjá Eimskip. Rétt eins og í
öðrum deildum innan félagsins sé
stundum nauðsynlegt að færa fólk
til í störfum.
„Hjá Eimskip er mjög mikið af
mjög góðu fólki og það sama á við
áhöfnina á Herjólfi,“ sagði Heiðrún.
„Við lendum í að þurfa að færa
menn á milli skipa og það getur átt
við Herjólf eins og önnur skip hjá
okkur. Það er reynt að taka tillit til
óska fólks og í þessu tilfelli var þetta
gert í samráði við viðkomandi. Eg
vil leggja áherslu á að þetta snýr á
engan hátt að persónum eða að við
treystum þeim ekki. Þeir aðilar sem
nú koma að Herjólfi eru afbragðs-
menn og hafa áratugalanga reynslu á
sjó. Það sama má segja um þá sem
hafa verið á Herjólfi og þessar
breytingar má á engan hátt líta á sem
vantraust á þá,“ sagði Heiðrún.
Söngkeppni Framhaldsskólans:
Silja Elsabet sigraði
-Árshátíðin verður annað kvöld í Týsheimilinu
VSV kaupir
hlut í
Gullbergi
Vinnslustöðin hf. hefur undirritað
samning um kaup á 35% hlutafjár í
Ufsabergi-útgerð ehf. sem gerir út
Gullberg VE.
Kaupin eru gerð með fyrirvara um
samþykki stjórnar Vinnslu-
stöðvarinnar og fjármögnun. Gangi
kaupin í gegn mun Vinnslustöðin
taka yfir rekstur skipsins síðar á
árinu. Kaupverð hlutafjárins er trú-
naðarmál.
Ufsaberg-útgerð ehf. rekur tog-
skipið Gullberg VE-292, en skipið
var keypt til landsins á vormánuðum
2007. Skipið er öflugt togskip,
smíðað í Noregi árið 2000.
Undankeppni Söngkeppni Fram-
haldsskólanna fór fram í sal FÍV á
föstudaginn. Þrír keppendur tóku
þátt, þær Dagmar Héðinsdóttir sem
flutti Traustur Vinur, Fanndfs Fjóla
Friðriksdóttir sem tók Cancer með
My Chemical Romance og svo
Silja Elsabet sem tók lagið Dear Mr.
President með Pink.
Keppnin var fámenn en hörð og
sungu allar söngkonurnar til sigurs
en það var Silja Elsabet sem bar
sigur úr býtum. Hún flutti frábæra
útgáfu af sínu lagi þar sem Hjálmar
Ragnar Agnarsson spilaði undir á
kassagítar. Verður sannarlega gott
framlag frá skólanum í keppnina.
Á föstudaginn 7. mars fer árshátíð
framhaldsskólans fram í Týsheim-
ilinu og verður mikið um dýrðir.
Gunnar úr Strákunum á Stöð 2
verður kynnir og Land og Synir
munu leika fyrir dansi, hver veit
nema að Silja taki lagið með þeim.
Better Choice 3009
verð nú kr 239/-
verð úður kr 289,-
SS Cordon Bleu
VIKUTILB0Ð
6. - 12. mars
SS Grand Orange helgarst.
verð nú kr/kg 1398,-
verð óður kr/kg 1868,-
SS Soltkjöt blondoð
verð nú kr/kg 699,-
verð dður kr/kg 938,-
oodmMnÆxwfcmiúÆ