Fréttir - Eyjafréttir - 20.03.2008, Qupperneq 1
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMimimn
Bílaverkstæðið BrAGGINN sf. Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð - Réttingar og sprautun - Sími 481 3235 Sími 481 1535
35. árg. I 12. tbl. I Vestmannaeyjum 20. mars 2008 I Verð kr. 200 1 Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMU
netáhamar
VÉLA-OG BÍLAVERKSTÆÐI
Mismæli
hjá
ráðherra
Hanna Bima Jóhannsdóttir, vara-
þingmaður Frjálslynda flokksins,
tók sæti á þingi í febrúar og
spurði samgönguráðherra m.a. um
samgöngumál. Hanna Birna var í
viðtali við Vaktina í síðustu viku
og sagði það hafa vakið athygli
hennar að í svari ráðherra kvaðst
hann vonast til að höfnin yrði
tilbúin í júlí árið 2011.
Róbert Marshall, aðstoðarmaður
samgönguráðherra situr í stýrihóp
vegna undirbúnings hönnunar og
framkvæmda við gerð Landeyja-
hafnar. Hann var spurður út þessi
ummæli og hvort seinkun yrði á
því að höfnin yrði tilbúin. „Þetta
eru mismæli hjá ráðherra," sagði
Róbert og taldi ekkert í spilunum
sem kæmi í veg fyrir að höfnin
yrði tilbúin 2010. Hann sagði
tilboð um smíði ferjunnar verða
opnuð í byrjun apríl og þar væri
lagt upp úr þjónustustigi, ferjunni
sjálfri og afhendingunni.
Stýrihópurinn færi yflr þessa
þætti og þeir yrðu vegnir við mat
á tilboðunum.
í Páskahelli
á páskadag
Náttúrgripasafnið stendur fyrir
fjölskyldugöngu í Páskahelli á
páskadag eins og undanfarin ár.
Kristján Egilsson, forstöðumaður
safnsins leiðir gönguna en hún
hefst klukkan 14.00 við útsýnis-
pallinn neðan við Sorpu.
„Við göngum frá útsýnispallinum
að Páskahelli með viðkomu við
Pompei norðursins þar sem
Kristfn Jóhannsdóttir, menningar-
fulltrúi fræðir göngufólkið um
verkefnið. Göngunni lýkur við
Krossinn þar sem Rut Zohlen
hefur bakað eldfjallabrauð fyrir
okkur og allir fá svaladrykk með í
boði Heildverslunar Karls
Kristmannssonar. Gangan tekur
um klukkutíma og hentar flestum
og litlir krakkar geta gengið þetta
með fullorðnum. Hún hefur verið
vel sótt undanfarin ár eða milli 50
til 60 manns að jafnaði á ári,“
sagði Kristján.
Fermingarblað
Með Fréttum í dag fylgir myndar-
legt fermingarblað. Er það fjöl-
breytt og skemmtilegt að efni en
fyrsta fermingin verður 29. mars.
Tíðindamaður Frétta hreifst með á frumsýningu Leikfélagsins á söngleiknum Hárinu. Segir hann þetta hafi verið skemmtilegt kvöld
þar sem leikglcðin skein úr hverju andliti sem þarna steig á svið. Nánar á bls. 12.
-Ekki tókst að stofna sameiginlegan hafnarsjóð í eigu
Vestmannaeyjabæjar og Rangárþings Eystra um Landeyjahöfn
Samstaóa fyrir bí
- Eyjamenn vilja annast reksturinn og gera samkomulag við
samgönguráðuneytið um landshöfn í eigu ríkisins
Ekki tókst að stofna sameiginlegan
hafnarsjóð um Landeyjahöfn í eigu
Vestmannaeyjabæjar og Rangár-
þings Eystra en búið var að semja
um að höfnin yrði opinbert hluta-
félag. Þar sem samningar tókust
ekki hefur framkvæmda- og hafnar-
ráð lýst yfir fullum vilja Vest-
mannaeyjahafnar til að annast rekst-
ur Landeyjahafnar og gera sam-
komulag við samgönguráðuneytið
um Landeyjahöfn sem verður lands-
höfn í eigu ríkisins.
Arnar Sigurmundsson, formaður
framkvæmda- og hafnarráðs sagði
að samningaviðræður um stofnun
sameiginlegs hafnarsjóðs hafi staðið
með hléum í rúmt eitt ár. Ljóst hefði
verið að samgönguyfirvöld myndu
byggja öll hafnarmannvirki og halda
þeim við en búið var að semja um
að höfnin yrði opinbert hlutafélag
þar sem hlutur Vestmannaeyjabæjar
yrði 60% og Rangárþings Eystra
40%.
Þrír fulltrúar af fimm í hafnarstjóm
kæmu frá Vestmannaeyjabæ og tveir
frá Rangárþingi Eystra.
I fyrrahaust óskaði sveitarstjórn
Rangárþings Eystra eftir því að
málið yrði tekið upp aftur og
eignarskipting yrði 50% hjá hvomm
aðila og meirihluti stjómar víxlast á
milli áðila. Reynt var fram í síðustu
viku að lenda málinu þó þannig að
Vestmannaeyjabær ætti 60% og
Rangárþing Eystra 40% en að tveir
stjómarmenn myndu koma frá
hvorum aðila, sá fimmti t.d. frá Sigl-
ingastofnun. Búið var að semja um
að formennskan yrði í höndum
Eyjamanna til 2011, en eftir það
myndi hún færast á tveggja ára fresti
á milli fulltrúa sveitarfélaganna.
Til þess að gera skuldbindingar eða
taka meiriháttar ákvarðanir hefði
þurft samþykki meirihluta stjómar
með fulltrúum beggja sveitarfé-
laganna.
Amar segir að fulltrúar Eyjamanna
hafi verið tilbúnir að samþykkja
slíka málamiðlun á fundi með
samgönguráðherra og fjármála-
ráðherra í síðustu viku.
Þetta dugði ekki til og braut á því
að fulltrúar Rangárþings Eystra
töldu að með þessu væri ávallt
neitunarvald hjá fulltrúum
Vestmannaeyjabæjar og myndi slfkt
geta komið í veg fyrir eðlilega upp-
byggingu hafnarinnar til lengri tíma.
Fulltrúar Vestmannaeyjabæjar
sögðu að rekstur Landeyjahafnar
væri samstarfsverkefni beggja sveit-
arfélaganna og þyrfti að reka höfn-
ina í góðri sátt. Landeyjahöfn er
fyrst og fremst ætlað að vera ferju-
höfn vegna samganga á sjó við
Vestmannaeyjar og tekur uppbygg-
ing hafnarinnar mið af þessari
staðreynd. Eftir fundinn í
samgönguráðuneytinu var ákveðið
að leggja fram ríkisstjórnarfrumvarp
um Landeyjahöfn sem kveður á um
byggingu ferjuhafnar í Bakkafjöru,
ásamt því að taka land eignamámi
undir hafnarsvæði og grjótnám
ásamt uppgræðslu á svæðinu.
Nánar á bls. 2.
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / ÞJÓNUSTUAÐILI ,'OTA í EYJUM
FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM.864-4616