Fréttir - Eyjafréttir - 03.04.2008, Blaðsíða 19
Fréttir / Fimmtudagur 3. apríl 2008
19
Handboltj, karla: Fram ^,9 - ÍBV 34
Komu sjálfum sér ekki síst á óvart
Meistaraflokkslið ÍBV í handbolta
gerði sér lítið fyrir á laugardaginn
og sigraði sterkt lið Fram með
nokkrum yfirburðum 29:34. Má
segja að þama hafi Eyjamenn komið
bæði sjálfum sér og öðrum á óvart.
Þeir komu vel stemmdir í leikinn og
byrjuðu af ógnarkrafti og komust
strax yfir gegn andlausum Frömm-
urum. Eyjamenn héldu áfram að
keyra yfir Fram allan fyrri hálf-
leikinn og leiddu með sjö mörkum í
hálfleik 12:19.
Fyrri hálfleikur hjá Fram ein-
kenndist af slakri vörn og mark-
vörslu í samræmi við það. Það er
mjög skrýtið að lið eins og Fram,
sem er að berjast um annað sætið í
deildinni, spili svona hrikalega lé-
legan handbolta.
Flestir bjuggust við að sterkt lið
eins og Fram myndi rífa sig upp í
seinni hálfleik og einnig hélt blaða-
maður að Eyjamenn myndu tapa
forystunni hægt og rólega í seinni
hálfleik eins og hefur svo oft gerst í
vetur. Annað kom á daginn. Eyja-
menn komu tvíefldir til seinni
hálfleiks á móti enn andlausari
Frömurum. Eyjamenn héldu áfram
að bæta forskotið og komust mest
tíu mörkum yfir. Umdeilt atvik átti
Karfan
Komust
ekki upp
Meistaraflokkur karla í körfuknatt-
leik lék gegn UMFH á dsunnudag
um sæti í 1. deildinni á næsta tíma-
bili.
Leikurinn var mjög spennandi og
jafn og Eyjamenn leiddu í hálfleik
34:43 eftir mikla baráttu og góðan
leikkafla í lok annars leikhluta.
Eyjamenn komu ekki alveg jafn vel
stemmdir í þriðja leikhluta og var
mikið einbeitingarleysi í vöm IBV.
Hrunamenn leiddu þegar komið var
að seinasta leikhlutanum 62:59 og
byrjuðu leikhlutann betur og komust
í 74:62.
Þá spýttu Eyjamenn í lófana og
náðu að minnka muninn í tvö stig en
einbeitingarleysi í sókninni varð
þeim að falli og Hrunamenn tryggðu
sér sigurinn af vítalínunni. Loka-
staðan varð 79:74.
Þrátt fyrir tapið geta leikmenn litið
til baka með stolti á þetta ár. Arang-
ur liðsins hefur verið hreint út sagt
frábær.
Yngri liðin hafa staðið sig virki-
lega vel og eiga þjálfarar hrós skilið
fyrir vel unnin störf með yngri
flokkana. Til að mynda var Alex-
ander Jarl, ungur og efnilegur leik-
maður, valinn í U-15 landsliðið sem
sýnir enn og aftur hversu gott starf
er unnið í körfuboltanum.
KFS stelnlá
KFS lék um helgina annann leik
sinn í Lengjubikamum gegn Hvöt.
KFS var dæmdur sigur í fyrsta
leiknum gegn Gróttu vegna ólög-
legra leikmanna hjá Gróttu.
Hvöt fékk mikinn liðstyrk fyrir
stuttu þegar fyrrum leikmaður
Breiðabliks, Kristján Óli Sigurðs-
son, ákvað að ganga til liðs við
félagið. Kristján er spilandi þjálfari
og verður þeim mikilvægur.
KFS sá aldrei til sólar gegn Hvöt
og tapaði leiknum með fimm
mörkum 6:1. Mark KFS skoraði
Davíð Egilsson. Hvöt situr því sem
stendur í efsta sæti riðilsins og hefur
unnið báða sína leiki.
Næsti leikur KFS er gegn
Aftureldingu og verður líklega
hörkuslagur.
KFS segist vanta mannskap og em
allir velkomnir á æfingar hjá þeim.
FRA leik IBV fyrr í vetur Flestir bjuggust við að sterkt lið eins og
Fram myndi rífa sig upp í scinni hálfleik en það gerðist ekki.
sér þó stað þegar um tíu mínútur
voru eftir af leik. Brotið var mjög
gróflega á Jóhanni Gunnari
Einarssyni þegar hann var rifinn
niður aftan frá er hann reyndi að
stökkva upp í skot. Eftir mikið þóf á
vellinum gáfu dómarar leiksins vit-
lausum manni tveggja mínútna
brottvísun sem hljóp í skapið á þjál-
fara Fram, Ferenc Bunday, sem fékk
að líta rauða spjaldið fyrir harkaleg
mótmæli. Eftir þetta atvik má segja
að Framarar hafi loks vaknað og
náðu þá að minnka muninn lítillega
en komu ekki í veg fyrir frábæran
sigur Eyjamanna. Það var að venju
fyrirliðinn Sigurður Bragason sem
bar uppi leik Eyjamanna en Sergey
Trotsenko átti einnig mjög góðan
leik.
Ekki er annað hægt að segja en að
ÍBV hafi sýnt gríðarlegan karakter í
þessum leik og Ijóst er að á góðum
degi geta þeir strítt hvaða liði sem
er.
Það sem er þó aðdáunarvert við
þennan sigur að ÍBV hefur tapað
tvisvar á heimavelli fyrir Fram á
þessari leiktíð, er í neðsta sæti deild-
arinnar og hefur tapað síðustu
tveimur leikjum sínum mjög illa en
nær samt að rífa sig upp úr því og
gjörsigra eitt besta lið deildarinnar.
Markaskorarar ÍBV
Sergey Trotsenko 11, Sigurður
Bragason 8, Zilvinas Grieze 7,
Leifur Jóhannesson 3, Sindri
Haraldsson 2, Nikolaj Kulikov 2,
Grétar Þór Eyþórsson I.
| Víðir Þorvarðarson í heimsókn hjá KV Mechelen
Frábær aðstaða þarna úti
í seinustu viku fór Víðir Þor-
varðarson út til reynslu til belgíska
liðsins KV Mechelen sem spilar í
úrvalsdeildinni í Belgíu.
Víðir hefur lengi þótt mikið efni og
einungis tímaspursmál hvenær hann
færi út til reynslu. Víðir er virkilega
metnaðarfullur drengur og á sann-
arlega framtíðina fyrir sér. Fréttir
hittu hann á dögunum og spurðu
hann um ferðina og sumarið fram-
undan.
Hvernig kom það til að þú fórst
þarna út?
-Þetta byrjaði allt þegar ég fékk að
spila tvo leiki með öðrum flokki
ÍBV á móti KFR og Njarðvík. Mér
gekk mjög vel í þeim og þá sagði
Reinaldo þjálfari annars flokks að
hann gæti sent mig út. Hann þekkir
mann í Briissel sem er í sambandi
við KV Mechelen og þá fór boltinn
að rúlla.
Hvernig gekk?
-Mér gekk mjög vel, ég spilaði leik
með U-16 ára liðinu og þar skoraði
ég mark. í heildina er ég mjög
ánægður með ferðina.
Er mikill munur á íslenskum og
belgískum knattspyrnumönnum ?
VÍÐIR , enn of ungur til að fara
út.
-Já, þeir belgísku eru hraðari, mun
teknískari og hafa góðan ryþma.
íslenskir leikmenn eru mjög sterkir
og hraðir en eru mjög stirðir.
Hvernig er aðstaðan?
-Aðstaðan þarna úti er frábær, þeir
eru með ótal grasvelli og þeir æfa á
grasi allan ársins hring. Ég fór
reyndar líka í knattspyrnuskóla þar
sem æft var á gervigrasi. Við í
Eyjum þurfum alvarlega að fara að
bæta aðstöðuna okkar.
Heldurðu að þeir vilji fá þig aftur?
-Já, það gæti vel verið. Þeir geta
auðvitað ekki boðið mér samning
strax þar sem ég er enn of ungur.
Það sem þeir sögðu við mig var að
ef ég væri hjá þeim þá gætu þeir gert
mig að betri leikmanni.
Hvernig gengur hjá þriðja flokki
núna ?
-Það gengur bara vel hjá okkur,
reyndar er auðvitað alltaf erfitt að
æfa í Vestmannaeyjum á vetuma.
Malarvöllurinn er erfiður og er í
raun handónýtur. En Sigurlás þjálf-
ari hefur verið mjög góður og hefur
komið okkur í gott form.
Ertu bjartsýnn á sumarið?
-Ég er tiltölulega bjartsýnn
Heldurðu að meistaraflokkur komist
upp í sumar?
-Já ég hef trú á því, þeir hafa lið í
það.
| Handbolti yngri flokkar
Þrjú töp og einn sigur
Um helgina lék annar flokkur karla
tvo leiki á sama degi gegn sterku liði
FH.
Eyjamenn töpuðu báðum leikj-
unum, fyrri leikurinn var mjög jafn
framan af en Hafnfirðingar komust
yfir á seinustu mínútunum og
tryggðu sér fjögurra marka sigur
17:13. Seinni leikurinn var einnig
mjög jafn en FH náði að sigra á
lokamínútunum þegar Eyjamenn
gáfust hreinlega upp og töpuðu með
sjö mörkum 25-18. Óttar Stein-
grímsson átti góðan leik og var
markahæstur í báðum leikjum.
Um helgina spilaði IBV í ung-
lingaflokki kvenna tvo leiki hér
heima á móti Gróttu. Fyrri leikurinn
var á föstudaginn og lauk með sigri
IBV 28:23.
Markaskorarar Elísa 9, Anna M.
5, Kristrún 4, Sædís 4, Aníta 3, Eva
2 og Lovísa 1. Heiða Ingólfsdóttir
varði vel í markinu.
Seinni leikurinn tapaðist 27:31.
ÚR leik 4. flokks kvenna um helgina.
Markaskorarar Sædfs 6, Aníta og Lovísa, Anna M. og Rakel 1 mark
Eva 5, Elísa 4 Kristrún 2, Bylgja, hver.
Iþróttir
Guðbjörg
Guðmanns
á heimleið
Samkvæmt heimildum handbolti-
.is mun Guðbjörg Guðmanns-
dóttir vera á leiðinni heim frá
Danmörku og hefur áhuga á að
spila með ÍBV ef félagið teflir
fram kvennaliði á næsta timabili.
Ljóst er að það yrði gríðarlegur
styrkur fyrir Eyjastelpur enda
Guðbjörg ein besta handboltakona
landsins og hefur síðastliðin ár
spilað í sterkustu kvennadeild í
heimi, þeirri dönsku.
ÍBV vann
íslands-
meistarana
Meistaraflokkslið ÍBV í knatt-
spymu gerði sér lítið fyrir og
sigraði Islandsmeistarana í Val í
fyrsta æfingaleik liðsins í Tyrk-
landsferðinni.
Það var Bjarni Rúnar Einarsson
sem skoraði eina mark leiksins í
fyrri hálfleik. Það sem var þó leitl
við þennann sigur var að báðir
Brasilíumennirnir meiddust í
leiknum. Alex tognaði aftan í læri
og Italo meiddist í nára.
Ekki með í
æfinga-
ferðinni
Andrew Mwesigwa og Augustine
Nsumba komust hvorugir með
ÍBV til Tyrklands sökum þess hve
lengi þeir voru á leiðinni til
landsins.
Andrew og Augustine eru báðir
mikilvægir leikmenn fyrir IBV
liðið og munu hefja æfingar með
liðinu þegar það kemur aftur frá
Tyrklandi.
Framundan
Föstudagur 4. apríl
Kl. 21.00 ÍBV-Haukar, 2. fl karla
Laugardagur 5. apríl
Kl. 14.00 ÍBV-Fylkir, unglinga-
flokkur kvenna.
Kl. 15.00 ÍBV-Grótta, unglinga-
flokkur karla.
Kl. 15.00 ÍBV-Haukar, meistara-
flokkur karla.
Kl. 17.00 ÍBV-Haukar, 2. fl. karla
Kl. 18.00 ÍBV-Fjölnir, 4. fl.
kvenna.
Sunnudagur 6. aprfl
Kl. 11.00 ÍBV-Fjölnir, 4. fl.
kvenna.
Kl. 12.00 ÍBV-Grótta, 4. fl. karla.
Kl. 15.00 ÍBV-Afturelding.