Fréttir - Eyjafréttir - 03.04.2008, Blaðsíða 20
/ sun investments s.L FASTEIGNASALA A SPÁNI piús IM t?
UNDA RÓS UuYúOZ) J £/JUjVJ:
<0034)646930 757 HndjrðtgMuitmalUsm www.runlnvettmentil.com
Kirkjuvegi 10
Sími: 481-3666
FRÁ afhendingunni í síðustu viku.
Ometanlegar gjafir til Safnahúss
í lok marsmánaðar afhenti Helgi
Pálmarsson Saí'nahúsi góðar gjafir
til minningar um konu hans, Erlu
Guðnadóttur f. 8. apríl 1935 d. 19.
júlí 1999, foreldra hennar og dóttur,
Sigríði Sigurðardóttur sem lést 19.
nóvember 1972, aðeins 18 ára að
aldri. Erla var dóttir Guðna
Sigurðssonar (1899-1985) og konu
hans, Guðbjargar Guðvarðardóttur
(1894-1978). Erla og Helgi gengu
í hjónaband 1973 og bjuggu í
Reykjavík ásamt foreldrum hennar
en þau vildu ekki snúa aftur til Eyja
eftir eldgosið, þó hugurinn hafi
jafnan verið hér.
Helgi færði Safnahúsinu forláta
málverk eftir Axel Einarsson frá
1941. Myndin er af höfninni með
Heimaklett fyrir miðju. Flosmynd
af Heimakletti, Miðkletti og
innsiglingunni sem Helgi flosaði
sjálfur undir handleiðslu Þórunnar
Franz. Fjöldi mynda, allflestar af
Vestmannaeyingum. Ýmiss konar
handrit og skjöl, þeirra merkast
leyfisbréf Kristjáns 10. vegna
hjúskapar Guðna og Guðbjargar
dags. 7. des. 1925. Svipa, tóbaks-
baukur og signet, allt merkt Guðni
Sigurðsson, ásamt ýmsum öðrum
hlutum.
Að sögn forstöðumanns Bóka-
safnsins eru gjalirnar ómetanlegar
og vitnisburður um að fjölskyldan
hafi aldrei flutt héðan að öllu leyti.
Á næsta ári er áratugur liðinn frá
andláti Erlu og ætlunin að minnast
þess með því að efna til sýningar á
þeim gjöfum sem hér hafa borist.
Þessu til viðbótar er að nefna að
Kvenfélag Landakirkju og Kven-
félagið Líkn fengu kr. 200.000 frá
Helga til þess að aðstoða krabba-
beinssjúklinga. Helgi hefur áður
komið raunsnarhendi hingað, en
fyrir tæpum áratug gaf hann góða
fjárhæð til Kvenfélags Landakirkju,
Þetta er svakalegt ævintýri
-segir Eyjamaðurinn Siggi Gísla sem rekur Veisluturninn, 19. og T20
-ÚTSÝNIÐ úr Túrninum er óviðjafnanlegt og við höfum lagt gríðar-
lega mikið í innréttingar, lýsingu, hljóð og mynd, segir Siggi.
Veisluturninn er nýr og glæsilegur
veitingastaður á tveimur efstu
hæðunum í Turninum, sem er hæsta
bygging landsins, við Smáratorg í
Kópavogi. Á nítjándu hæð er 19.
sem er fyrsta flokks hádegis-
verðarstaður og tuttugasta hæðin
hýsir glæsilega veislusali með sex
metra lofthæð, bar og setustofu.
„Þetta er búið að vera svakalegt
ævintýri sem byrjaði fyrir ári síðan
og er stærsta veitingaverkefni sem
farið hefur verið í á Islandi,“ sagði
Sigurður Gíslason, matreiðslumeist-
ari og einn eigenda staðarins en
Siggi CTsla er einn af færustu mat-
reiðslumönnum landsins. Borgþór
Ágústsson er sölu- og markaðsstjóri
og auk þess vinna fleiri Eyjamenn
við staðinn.
„Við erum með hádegisverðarstað
sem er opinn alla daga vikunnar og
heitir 19. enda er hann á nítjándu
hæð. Svo erum við með veislusali á
tuttugustu hæð þar sem við verðum
með veislur, brúðkaup, árshátíðir og
allt sem viðkemur veislum. T20 bar
er líka á tuttugustu hæð en yfirheiti
starfseminnar er Veisluturninn,"
segir Siggi en eins og nærri má geta
er mikið lagt í mat, umgjörð og
þjónustu hjá fyrirtækinu.
„Við leggjum rosalega mikinn
metnað í þetta og við getum tekið
250 manns í veislu á tuttugustu hæð
og samanlagt getum við verið með
um 400 manns á báðum hæðum.
Útsýnið úr Turninum er óviðjafnan-
legt og við höfum lagt gríðarlega
mikið í innréttingar, lýsingu, hljóð
og mynd. Við þurfum ekki að hugsa
um tæknimál næstu fimmtán árin,“
segir Siggi og bendir á að lofthæðin
á tuttugustu hæð er 5 til 6 metrar og
það er ekkert til í líkingu við þetta á
Islandi. „Við fórum til Los Angeles
og London til að skoða staði þannig
að við vildum hafa þetta fyrsta
flokks og flest húsgögnin eru hönn-
uð og sérsmíðuð. Útsýnið úr Turn-
inum er óviðjafnanlegt."
Allir sem vilja geta mætt í há-
deginu á 19. þar sem gestir staðar-
ins ganga að hlaðborði og staðurinn
er öllum opinn. „Þar verður alltaf
nýbakað brauð í boði og hægt að fá
salat, nýlagaða súpu, sushi, fískrétt
og kjötrétt en verð á hádegisverð er
2.300 krónur. Barinn, T 20 er opinn
fimmtudaga, föstudaga og laugar-
daga og hann er öllum opinn. Ekki
skemmir fyrir að það er fullt af
Eyjafólki sem kemur að þessu
Borgþór Ágústsson er sölu- og
markaðsstjóri og Jói Henna er
húsvörður hjá okkur, “ sagði Siggi
og er að vonum ánægður með
Veisluturninn og viðtökurnar sem
staðurinn hefur fengið.
VIKUTILB0Ð
3. - 9. apríl
Corny Banana
verð nú kr 229,-
veró óáur kr 279,-
CT örbyglu pizza
verd nú kr 499,-
verð nður kr 699,-
Nóa Konfekt í k9
verð nú kr 2199,-
verá úáur kr 2799,-
AB marsipanbrauð u9
verá nú kr 89,-
verð aður kr 138,-
Búrf. Hamborgarar 4 stk
verð nú kr 399/"
verð óður kr 550,-
SS Beikonbollur
verð nú kr 399f-
verð dður kr 413,-