Fréttir - Eyjafréttir - 24.04.2008, Síða 1
Bílaverkstæðið
BrAGGINN sf.
Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð - Sími 481 3235
Réttingar og sprautun - Sími 481 1535
35. árg. I 17. tbl. I Vestmannaeyjum 24. apríl 2008 I Verð kr. 200 I Sími48l-l300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
LUNDINN er kominn. Mynd Sísí.
Rúm 42 prósent atkvæðisbærra í
Vestmannaeyjum á móti Bakkafjöru
Undirskriftalistar, sem Magnús Kristinsson útgerðar-
maður og fleiri stóðu fyrir, voru afhentir samgöngu-
ráðherra í síðustu viku.
Þar er höfn í Bakkafjöru mótmælt og þess krafíst að
áfram verði siglt til Þorlákshafnar með nýrri og
hraðskreiðari ferju. Þetta framtak hefur fengið mikla
athygli í fjölmiðlun og nú gætir áhrifa þess á alþingi.
Alls skrifuðu 3172 undir mótmælin þar af 1542 bú-
settir í Vestmanneyingar eða 38,2% íbúanna. A
kosningaaldri voru 1289 einstaklingar sem telst vera
42,8% kosningabærra manna í Vestmannaeyjum.
Magnús hefur látið hafa eftir sér að hann sé ánægður
með þessi viðbrögð og telur að þau muni hafa áhrif á
hvort af Landeyjahöfn verður eða ekki.
Málþing um lunda og síli - Vantar tvo
árganga inn í til að halda uppi veiði:
Hefur Græn-
landsiðan áhrif
á viðkomuna?
-Ekki einhugur í veiðiráðgjöf - Menn þó
sammála um að eitthvað verði að gera
Á sunnudagskvöldið stóð Þekk-
ingarsetur Vestmannaeyja fyrir opnu
málþingi um ástand lunda og sand-
sílastofnanna við Vestmannaeyjar.
Þar kom m.a. fram að þrjá árganga
vantar orðið í lundastofninn í Vest-
mannaeyjum vegna lélegrar nýlið-
unar árin 2005, 2006 og 2007. Lagt
er til að vegna þessa verði veiði mjög
takmörkuð í ár og jafnvel að algjört
veðibann verði sett á. Þetta eru
aðeins tillögur og þó ekki hafi allir
fundarmenn verið sáttir við þessar
hugmyndir er greinilegt að lunda-
karlar taka niðurstöður vísindamanna
mjög alvarlega og eru tilbúnir að fara
í samstarf um aðgerðir til vamar
lundanum.
Vísbendingar um betra
ástand sílisins
Um 80 manns sóttu fundinn sem
haldinn var í Akóges. Frummælendur
voru Valur Bogason, hjá Hafrann-
sóknastofnun í Vestmannaeyjum,
sem fjallaði um ástand sílis við
Vestmannaeyjar 2006 og 2007,
Freydís Vigfúsdóttir, hjá Nátturu-
stofnun íslands, sem ræddi um tengsl
lundaveiði og hafstrauma og loks
Erpur Snær Hansen sem nýlokið
hefur skýrslu um nýliðun lunda árin
2005 til 2007 og veiðiráðgjöf fyrir
árið í ár. Erpur segir þrjá árganga
vanta í lundastofninn og vill hann
takmarka veiðina í sumar, jafnvel
verði sett á algjört veiðibann.
Valur sagði að ljóst hefði verið strax
árið 2005 að eitthvað var að með
sílastofninn og viðkomubrestur hefði
orðið við Vestmannaeyjar og Vík árin
2006 og 2007 en þó hefði mátt greina
að sflið á þessum svæðum hefði verið
að ná sér á strik síðasta haust.
Hann sagði margar tilgátur vera á
lofti um ástæðuna en hafi hrygning
tekist vel síðasta haust gæti ástand
stofnsins verið fljótt að snúast við.
Á öðrum svæðum sem rannsökuð
voru var ástand sílis mun betra.
Hver eru áhrif hafstrauma?
Freydís sagði að þetta lélegt ástand
einskorðaðist ekki við lundann í
Vestmannaeyjum, sjófuglar við
Norður-Atlantshaf væru í vanda.
Mörg dæmi væru um það.
Hún sagði að sveiflur í lundaveiði
milli eyja í Vestmannaeyja fylgdust
að, það sýndu veiðiskýrslur. Hún
nefndi nokkur atriði í umhverfmu
sem gætu haft áhrif á viðkomu lund-
ans og veiði í Vestmannaeyjum en
ekkert hefði komið í ljós um að teng-
ing væri þar á milli. Það eina sem
hefði komið í ljós eru áhrif haf-
strauma og nefndi hún svokallaða
Grænlandsiðu í því sambandi. Hafi
fundist samsvörun milli styrks henn-
ar og þess sem gerist í lundaveiði
fjórum til fimm árum síðar. Freydís
sagði þetta ekki einfalt mál og enn
væri þetta vinnutilgáta.
Erpur fór yfir skýrslu sína, sem er
mjög athyglisverð, og nefndi hug-
myndir um um algjört veiðibann eða
takmarkaða veiði, t.d. hundrað fugla
á hvern veiðimann, sagði þær settar
fram sem grundvöll að umræðu um
viðbrögð við lélegri nýliðun í lunda-
stofninum í Vestmannaeyjum síðustu
þrjú ár. Hann væri frekar að höfða til
veiði manna en að setja þeim reglur.
I pallborðsumræðum á eftir kom í
ljós að það er mat manna að veiði
hafi minnkað í Vestmannaeyjum með
minni áhuga og sagði Magnús
Bragason að þar réðu mestu stjórn-
samar eiginkonur sem vilja hafa sína
karla heima og þegar þeir svo
kæmust út í eyju færi meiri tími í að
drekka bjór en veiða.
Ekki mjög vísindalegt en örugglega
er í þessu sannleikskorn. Meðal
hugmynda, sem fram komu á fund-
inum, var að stytta veiðitímabilið og
spurt var hvort ekki væri í lagi að
veiða varpfugl við þessar aðstæður.
Bragi Steingrímsson, í Hellisey,
sem fer með forræði í Félagi bjarg-
veiðimanna, sagði að fljótlega yrði
boðað til fundar þar sem farið yrði
yfír stöðuna.
Valur sagði enga ástæðu til að
ákveða veiðiráðgjöf strax, lunda-
tímabilið hæfist ekki fyrr en I. júlí og
þá gæti legið fyrir hvernig ástand
sflisins verður sem gæti haft áhrif á
afkomu lundans í sumar.
En stóra spurningin sem þarna kom
fram, er hvort þessi þrjú síðustu ár
eru eðlileg niðursveifla eða eru þau
upphafið að ástandi sem getur varað í
30 ár. Þannig hefur það verið í
Noregi og í nokkur ár hefur lundinn
átt undir högg að sækja í Færeyjum.
Aftur á móti hefur haldist eðlilegt
ástand í Skotlandi.
Annars var málþingið vel heppnað
og upp úr stendur að spurningar sem
eftir standa eru fleiri en svörin sem
þama fengust.
VIÐ LÁTUM BÍLINN GANGA...
...SVO ÞÚ ÞURFIR ÞESS EKKI
nelÉhamar
VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / <^> ÞJÓNUSTUAÐILITOYOTA í EYJUM
FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM.864-4616