Fréttir - Eyjafréttir - 24.07.2008, Blaðsíða 1
Bílaverkstæðið BrACGINN sf. Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð - Réttingar og sprautun - Sími 481 3235 Sími 481 1535
35. árg. I 30. tbl. I Vestmannaeyjum 24. júlí 2008 I Verð kr. 250 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
STÁTINN stelkur Mynd Sísí.
Bjarnólfur
Lárusson
til ÍBV
Á miðvikudagsmorgun staðfesti
IBV að Bjamólfur Lárusson væri
genginn til liðs við félagið á ný.
Bjamólfi er ætlað að taka við
miðjuhlutverkinu af Brasilíu-
manninum Italo Jorge Maciel sem
fór frá félaginu vegna persónu-
legra ástæðna en hann spilaði á
köflum afar vel.
Bjamólfur sagði fyrir sumarið
að hann byggist ekki við að spila
j sumar en þegar forráðamenn
ÍBV báðu hann um að koma, brást
hann vel við og tók áskoruninni.
Bjarnólfur hefur leikið með KR
undanfarin ár.
Þessi 32 ára gamli leikmaður
þekkir vel til IBV en hann fór frá
IBV til KR haustið 2004. Bjarn-
ólfur ólst upp hér í Vestmanna-
eyjum og spilaði upp alla yngri
flokka félagsins. Hann hefur
spilað 123 leiki fyrir ÍBV og skor-
að í þeim sautján mörk. í viðtali
við vefmiðilinn fotbolti.net sagði
Bjarnólfur að hann hlakkaði til að
byrja í boltanum á ný og litist vel
á að geta rétt fram hjálparhönd í
Eyjum.
„Eg hef ekki snert fótbolta síðan
ég spilaði seinasta leik síðasta
sumar svo það verður bara að
koma í ljós hvemig formið er. Mér
líst vel á að geta rétt fram hjálp-
arhönd í Eyjum, þeir hafa verið að
missa leikmenn en hafa staðið sig
geysilega vel í sumar.“
Bjamólfur er kærkomin viðbót
við hið unga og efnilega lið Eyja-
manna og það verður gaman að
sjá Eyjapeyjann sýna hvað í
honum býr á Hásteinsvelli á ný.
/
Islandsmótið
í golfi hefst í
Eyjum í dag
íslandsmótið í höggleik í golfi
hefst í dag en það er að þessu
sinni haldið í Eyjum og er hluti af
hátíðahöldum Golfklúbbs Vest-
mannaeyja í tilefni af 70 ára
afmæli klúbbsins. Keppendur em
130 talsins, 113 í karlaflokki og
17 í kvennaflokki og flestir, ef
ekki allir, bestu kylfingar landsins
em mættir til leiks. Fimmtán
keppendur eru frá GV, allir í
karlaflokki. Leiknir verða fjórir
hringir, eða 72 holur og lýkur
mótinu á sunnudag. Allur undir-
búningur hefur gengið mjög vel
og völlurinn í sínu besta standi en
því miður er veðurspáin ekki hag-
stæð. Nánar verður greint frá mót-
inu í næstu Fréttum en þetta er
síðasta mótið í Eyjum fyrir
þjóðhátíð.
Lundinn ber síli í ungann en ekki drasl eins og undanfarin ár:
Veiðin aðeins brot af
því sem eðlilegt er
-Lítur þó betur út en áður - Það er hins vegar lítil veiði - Ungi
fuglinn sést varla ennþá - Vantar greinilega árganga inn í
Lundaveiðitímabilið hófst 10. júlí
og stendur til mánaðamóta en
hefðbundið lundaveiðitímabil var
stytt vegna þess hvað lundanum
hefur gengið illa að koma pysjunni
upp síðustu ár. Helsta skýringin er
skortur á æti fyrir pysjuna.
Lundastofninn var talinn í hættu
og allt bendir til þess að lundinn
hafi yfirgefið holuna áður en hún
komst á legg. Pysjur sáust varla
árin 2005 og 2006 en ástandið var
heldur skárra í fyrra. Þróun í þessa
átt getur hafa hafist fyrr, en litlar
rannsóknir hafa verið gerðar á
pysjustofninum og sflastofninum
fyrr en undanfarin ár og því lítið til
af rannsóknum til samanburðar.
Lundakarlar í úteyjum hafa góða
yfirsýn yfir ástandið og fylgjast
grannt með hegðun lundans og
pysjunnar. Þeim ber saman um að
ungfugl vanti, sem er í takt við
pysjudauða undanfarinna ára, en
þeir verða líka varir við að lundinn
er að bera sfli í pysjuna sem þeir
vonast til að beri vott um betri tíð
hjá stofninum. Rannsóknir á sand-
sfli í sumar benda til að mun meira
sé af eins árs sfli í ár en í fyrra.
„Ástandið er allt annað varðandi
sflið," sagði Halldór Sveinsson
þegar hann var spurður út í horfur
og veiði í Álsey. „Lundinn er að
bera sfli í ungann og ekki drasl eins
og undanfarin ár þannig að þetta
lítur betur út en áður. Það er hins
vegar lítil veiði, ungi fuglinn sést
varla ennþá og eins og vanti ár-
ganga inn í þetta eins og talað hefur
verið um. Veiðin er aðeins brot af
því sem eðlilegt er,“ sagði Halldór.
Ivar Atlason, Elliðaeyingur, sagði
mikið af fugli í brekkum en mjög
lítið á flugi við brún. „Það vantar
alveg ungfuglinn svo þetta verði
einhver magnveiði. Við veiddum
400 fugla einn daginn og hann var
aldursgreindur og yfir 300 fuglar
voru sex ára og eldri. Það vantar
tveggja, þriggja og fjögurra ára fugl
inn í þetta. Hins vegar virðist
fuglinn vera að bera í pysjuna og
við sáum ritu í brekkum sem segir
okkur að hún er að tína í sig sfli.
Við sáum líka kjóa en við höfum
ekki séð hann í nokkur ár. Það er
jákvætt og vonandi kemst stofninn í
jafnvægi eftir nokkur ár.
Omar Stefánsson, Bjamareyingur
tók í sama streng og sagði lítið um
ungfugl. Þetta á kannski eftir að
breytast, við höfum svo sem séð
þetta áður en útlitið er ekki gott.
Hann gæti komið upp en það hefur
lítið sem ekkert verið veitt hjá
okkur. Það vonlaust að sitja yfir
þessu þegar ungfuglinn er ekki,
menn eru þá bara að veiða byggð-
arfuglinn," sagði Ómar en lunda-
veiðimönnum, sem rætt var við, bar
öllum saman um að ungfuglinn
vantaði.
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA
VÉLA- OG BÍLAVIÐGERÐIR
nelÉhamar
VÉLA-OG BÍLAVERKSTÆÐI
<&) ÞJÓNUSTUAÐILI í EYJUM / VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI...!
FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM.864-4616