Fréttir - Eyjafréttir - 07.08.2008, Qupperneq 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 8. ágúst 2008
Úr bloggheimum:
Um viðurnefni,
uppnefni og
einelti
Eða bara skítkast,
eins og ég kalla
það oft og tíðum.
Þar sem ég hef
verið mikið uppi í
fjöllum að undan-
förnu og kannski
ekki mikið fylgst
með umræðunni hér í bæ, þá hefur
það vakið athygli mína hörð gagn-
rýni á bók Sigurgeirs Jónssonar,
sem hann kallar Viðurnefni í
Vestmannaeyjum.
Eg verð að viðurkenna alveg eins
og er, að ég hef aldrei haft neina
ánægju af því að uppnefna eða
kalla fólk einhverjum öðrum
nöfnum, heldur en það er skírt. Mér
hefur þó fundist ágætt, til að valda
ekki misskilningi og rugla saman
fólki, að kalla það eftir t.d.
fjölskyldum, ættum, við hváð það
starfar eða eftir því hvað heimili
þeirra heitir. Sjálfur hef ég fengið
mörg nöfn á mig um ævina og hef
svo sem ekkert velt þessu mjög
mikið fyrir mér og ætla alveg
örugglega ekki að kaupa eða iesa
þessa bók Sigurgeirs (mér skilst
reyndar að það sé búið að taka bók-
ina úr sölu), en til mín hringdi
manneskja áðan, sem hafði frétt af
nokkrum nöfnum í bókinni, m.a. er
mér sagt að ég sé nafngreindur í
bókinni og það nafni sem að ég hef
aldrei nokkum tímann heyrt og
leyfí mér því að flokka það sem
einfaldlega skftkast í minn garð.
Sama skilst mér að gildi um nokkra
af ættingjum mínum hér í bæ og
þykir mér það bara dapurt og fyrst
og fremst Sigurgeiri ekki til fram-
dráttar, en tek það fram, að margt
af því efni sem hann hefur geftð út
og tengist sögu Vestmannaeyja, er
mjög vel unnið í alla staði, en
þama held ég að Sigurgeir haft
skotið langt yfir markið.
Meira á:
littp://georg. blog. is
Brekkusöngs-
holið!!
Þá fer síðasta
kvöldið að hefjast
hjá þjóðhátíðarges-
tum og alltaf það
besta. Við félagar-
nir sem erum
saman á djúpu
vatni erum ekkert
öfundsjúkir, eða hvað? Þorsteinn
var að hífa með alla nema rauða.
Strákarnir eru að gera okkar troll
klárt til að kasta því í hafið . Að því
loknu verður örugglega hlustað á
beina lýsingu af brekkusöng á lang-
bylgjunni, fengið sér popp og kók
og kannski smá kmðerí frá Sigga
sjoppu!!. Verður örugglega ein-
hver með tár undir augum við að
hlusta á það. Annars fengum við
heimsókn í dag frá sjólöggunni,
sennilega halda þeir að Oli hafi
verið að koma úr Dalnum, hann
þurfti samt ekki að blása í blöðru.
Voru löggumar ánægðar með allt
bókhald að undanskildu því að
kokkurinn var ekki með sorpdag-
bók. Var þá kokkurinn í slæmum
málum og tóku þeir hann því með
sér. Nei ekki var það svo slæmt, en
hann verður framvegis kallaður
Helgi glæpur. Læt hér fylgja
nokkrar myndir af sjólöggunum.
http://www.123.is/alseyve2/
Meira á:
h ttp ://ellidiv. blog. is/blog
Eyjamaður vikunnar:
Ekki hrædd við að brjðta spegla
Söngvakeppni bama er árlegur
viðburður á Þjóðhátíð en það er
hljómsveitin Dans á rósum sem
stendur fyrir keppninni. Margir
efnilegir söngvarar hafa stigið sín
fyrstu skref í þessari keppni á
Þjóðhátíð og engin undantekning á
í ár. Keppt var í tveimur flokkum
en í yngri flokki sigraði Isey
Sævarsdóttir en hún söng sumar-
smellinn Bahama. I eldri flokki
sigraði Sandra Dís Sigurðardóttir
en hún söng lagið Orðin þín sem á
frummálinu heitir More than words
sem bandaríska rokksveitin
Extreme gerði frægt. Sandra Dís er
Eyjamaður vikunnar.
Nafn: Sandra Dís Sigurðardóttir.
Fæðingardagur: 26. apríl 1996.
Fæðingarstaður: I Vestmanna-
eyjum.
Fjöiskylda: Mamma mín heitir
Sólrún og pabbi minn Sigurður.
Systur mínar heita Sylvía Dögg og
hin systir mín hét Svandís Unnur
en hún er dáin.
DraumabíIIinn: Svartur blæjubíll.
Alveg sama hvaða tegund.
Uppáhaldsmatur: Heimatilbúin
pizza hjá mömmu.
Versti matur: Mér fínnst t.d.
mexíkósúpa ekki góð.
Uppáhalds vefsíða: www.fm957.is
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Tónlist á FM 957.
Aðaláhugamál: Fótbolti.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Eg myndi vilja hitta Cristiano
Ronaldo, leikmann Manchester
United.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Það er bara Vestmanna-
eyjar.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Uppáhalds iþrótta-
maðurinn er Hermann Hreiðarsson
og uppáhaldsfélagið mitt er auð-
vitað IBV.
Ertu hjátrúarfull: Nei ég er til
dæmis ekki hrædd við að brjóta
spegla.
Stundar þú einhverja íþrótt: Já,
ég stunda fótbolta og handbolta.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
Simpsons
Varstu að taka þátt í söng-
vakeppninni í fyrsta skipti: Nei,
ég hef eiginlega alltaf tekið þátt
síðan ég var sex ára.
Varstu ekkert smeyk um að stíga
á svið og syngja: Nei, nei.
Var gott að spila með strákunum
í Dans á rósum: Já, það var fínt.
Við æfðum svolítið saman fyrir
Þjóðhátíð en þurftum bara að æfa
þrisvar, æftngarnar gengu mjög vel.
Ætlarðu að verða söngkona
þegar þú verður stór: Já, örugg-
iega.
Eitthvað að lokum: Áfram ÍBV.
Matgazðingcir vikunnar:
Vel mér meistarakokka í
Daði Garðarsson, matgæðingur
Frétta í síðustu viku, skoraði á
Gísla Magnússon íþróttakennara
sem matgæðing vikunnar. Gísli
er reyndar staddur í sumarfríi en
gat engu að síður ekki skorast
undan og leggur fram himneska
uppskrift af sínum uppáhalds
rétti.
Búrfellsbjúgur
Eg verð reyndar að viðurkenna það
að ég er ekkert sérstakur í eldhús-
inu og læt yfirleitt eiginkonuna um
að sinna því hlutverki heimilis-
haldsins. Það er þó einn réttur sem
stendur bragðlaukum mínum nærri
og ég gríp iðulega til þegar
eiginkonan er fjarverandi. Börn
okkar eru farin að þekkja þetta og
segja frekar niðurdregin: „Jæja, nú
er mamma farin, þá eru bjúgur í
matinn."
Ég er mikið fyrir bjúgur og umfram
allt Búrfellsbjúgur því þær eru
bestar. Mér er í raun alveg sama
hvort það eru hrossabjúgur eða
þessar hefðbundnu, bara svo lengi
Gísli Magnússon
er matgceðingur vikunnar
sem það eru frá Búrfelli þá er ég
sáttur. Ef það er eitthvað þá var ég
alltaf sérstaklega hrifinn af svo-
kölluðum U-bjúgum, kofareyktum
en það er minna um þær nú í seinni
tíð.
Uppskriftin er nú ekki flókin og
kannski óþarfi að vera tíunda hana
félagsskap
eitthvað sérstaklega. Eitt ráð er þó
gott og það er að setja bjúgumar
upp á endann í pottinn, þá kemurðu
fleirum fyrir.
Svo er auðvitað nauðsynlegt að
hafa hvíta sósu og Ora baunir með
og ef bjúgumar eru ekki nógu feitar
þá er ágætt að geta gripið í smá
smjörklípu líka. Ég geri nú sósuna
alltaf sjálfur og er orðinn nokkuð
laginn við sósugerðina. Hún var
reyndar stundum dálítið kekkjótt í
eina tíð en bragðið var gott og það
er það sem skiptir máli.
Sem næsta matgœðing œtla ég að
skora á algjöran meistarakokk,
Sigurð Ragnarsson mág minn. Við
erum saman í veiðifélaginu Haltur
leiðir blindan og Sigurður er það
góður að hann getur vel veitt með
annarri og eldað með hinni. Eg er
reyndar svo séður að velja mér
gœðakokka íþeim félagsskap sem
ég er í, því ég er í öðrum hópi og
þar er snillingurinn Grímur kokkur.
Eg læt þá yfirleitt um að elda
matinn en ég séfrekar um að borða
hann ásamt fleirum.
Gamla myndin:
Brúðkaups-
mynd
Þessi fallega brúðkaupsmynd er
ómerkt í safni Kjartans Guð-
mundssonar. Þó er vitað að um er
að ræða brúðkaup í Hvítasunnu-
kirkjunni en hvenær myndin er
tekin er ekki vitað. Luma
lesendur Frétta á upplýsingum
um brúðkaupið og brúðkaups-
gesti?
Sem fyrr er vinsamlcgast beðið
um að haft sé samband við
Bókasafnið í síma 481 1184 eða
litið við hjá okkur.
MYNDIN er tekin í Hvítasunnukirkjunni.
Nýfazddir
Vastmannaayingar:
Þann 30.maí eignuðust Birna Ósk
Óskarsdóttir og Ingi Þór
Þórisson stúlku. Hún fæddist á
Landspítalanum og var 17,5
merkur og 53 cm.
Fjölskyldan býr í Reykjanesbæ.
Kirkjur bazjarins:
Landakirkja
Laugardagur 9. ágúst:
Kl. 10.30. Útför Guðfmnu Bjarna-
dóttur.
Kl. 14.00. Útför Albínu Elísu
Óskarsdóttur.
Sunnudagur 10. ágúst:
Kl. 11.00. Guðsþjónusta á 12.
sunnudegi eftir þrenningarhátíð.
Kór Landakirkju syngur undir
stjóm Guðmundar H. Guðjóns-
sonar. Sr. Guðmundur Öm
prédikar og þjónar fyrir altari.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur
Biblíulestur kl. 20.30
Laugardagur
Brauðsbrotning kl. 20.30
Sunnudagur
Samkoma kl. 13.00
Allir hjartanlega velkomnir. Guð er
góður og miskunn hans varir að
eilífu.
Aðventkirkjan
Laugardagur
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.