Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2008, Síða 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 21. ágúst 2008
Þrjú tilboð í nýjan Herjólf - Afhending 9. júlí og 30. nóvember 2010:
Ekkí lægri en tilboð Eyja-
manna sem var hafnað
TÖLVUGERÐ mynd af ferjunni sem Simek ætlaði að smíða fyrir Eyjamenn. Gera má að ferjurnar sem
Simek og Fassmer bjóða verði ekki ósvipaðar.
Á fimmtudaginn voru opnuð tilboð í
smíði á nýrri ferju sem ætlað er að
halda uppi siglingum milli Eyja og
Landeyjahafnar sem verður tilbúin
2010. Þrjú tilboð bárust frá tveimur
skipasmíðastöðvum, Fassmer í
Þýskalandi sem sendi inn tvö tilboð
og Simek í Noregi. Simek var sam-
starfsaðili Eyjamanna sem einir
lögðu inn fullgilt tilboð í smíði ferju
og rekstur hennar til 15 ára fyrr á
árinu. Því tilboði var hafnað og var
smíðin boðin út aftur.
Tilboð Fassmer hljóðaði upp á
tæpa 3,7 milljarða og annað upp á
tæpa 3,4 milljarða. Ekki kemur fram
í hverju frávikstilboðið er fólgið.
Afhendingartími fyrir bæði skipin er
30. nóvember. Fassmer gerir ráð fyr-
ir svartolíubrennslu eins og kveðið
er á um í útboðsgögnum. 1 tilboði
Simek er afhendingartíminn 9. júlí
og er gert ráð fyrir að nota hefð-
bundna skipaolíu en ekki svartolíu.
Tilboð Eyjamanna, Vestmanna-
eyjabæjar og Vinnslustöðvarinnar,
fyrr á árinu var upp á rúmlega 3,3
milljarða. Þar var bæði smíði og
rekstur skips boðið út.
Hvorki kemur fram hjá Fassmer
eða Simek hvernig skip eru í boði en
í útboðsgögnum er gert ráð fyrir 62
m langri ferju sem taka á 250 far-
þega og 50 fólksbíla. Miðað er við
30 mfnútna siglingu milli lands og
Eyja og gert ráð fyrir 5 ferðum á dag
að jafnaði sem er breytilegt eftir
árstíðum. Þá er gert ráð fyrir að ferj-
an geti siglt til Þorlákshafnar ef þörf
krefur.
Heildarkostnaður við verkefnið
allt, höfn, ferju og vegagerð, er áætl-
aður kringum 5,6 milljarðar króna.
Af hverju annað útboð?
Þegar smíðin var boðin út í síðara
skiptið var það gert á þeim for-
sendum að tilboð Eyjamanna væri
of hátt en það virðist ekki vera
raunin þegar tilboð Fassmer og
Simek eru skoðuð. Norðmennimir
ætla að afhenda skipið 9. júlí og
virðist sem samstarfið við Eyja-
menn í fyrra tilboðinu gefí þeim
ákveðið forskot. Verði öðm hvom
tilboði Þjóðverjanna tekið mun það
seinka komu nýrrar ferju sem að
mati kunnugra er mjög óheppilegt,
að fá skipið afhent þegar hávetur er
að ganga í garð.
Af hverju svartolía?
Krafan um svartolíu vekur spum-
ingar og hefur blaðið undir höndum
upplýsingar sem benda til þess að
hún muni ekki henta á svo stuttri
siglingaleið. Eins hefur verið bent á
að það skjóti skökku við að ríkið,
sem hefur það á stefnuskrá sinni að
minnka útblástur skipaflotans skuli
sjálft láta smíða skip sem knýja á
með svartolíu sem mengar
umtalsvert meira en venjuleg
skipaolía. Þá eru á lofti háværar
kröfur um að notkun svartolíu til
brennslu verði bönnuð í Evrópu.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins er
það m.a. ástæðan fyrir því að Simek
býður ekki upp á svartolíubrennslu í
tilboði sínu.
Ætlað er að ný samgönguleið milli
Bakkafjöru og Heimaeyjar hafi
margvísleg áhrif á samskipti fbúa
Vestmannaeyja og Suðurlands,
ferðaþjónustu og aðra atvinnuvegi,
húsnæðismál, vinnumarkað og
skóla. Nýir möguleikar opnast í
samstarfi sveitarfélaga og stærra
atvinnu- og markaðssvæði getur
aukið fjölbreytni í atvinnulífi Vest-
mannaeyja.
Skip Eyjamanna
Skipið sem Vestmannaeyingar buðu
átti að vera 69 metra langt, 16
metrar á breidd og hámarksdjúprista
3,3 metrar. Fjöldi bíla, ef einungis
bflar eru fluttir, eru 52 á bflaþilfari
og möguleiki að hafa auk þess 16
bíla á lyftu, alls 68 bflar. Hámarks-
fjöldi um borð, farþegar og áhöfn,
verður 399 manns en gert ráð fyrir
átta í áhöfn. Kojur verða 24. Hægt
verður að flytja sex fjórtán metra
flutningavagna með stórum dráttar-
bflum og þá er pláss fyrir 18 fólks-
bíla á bíladekki. Möguleiki er að
hafa auk þess 16 bfla á lyftu, sem er
frávik og þá yrðu bflarnir samtals
34. Einnig er hægt að hafa fjórar
raðir af flutningavögnum í skipinu,
samtals tíu fjórtán metra flutninga-
vagna með stórum dráttarbflum en
þá án bílalyftu.
Tilboðin
Fassmer
EUR. 30.500.000,-
Frávikstilboð
EUR. 27.700.000,-
Simek
Frávikstilboð
NOK. 224.000.000,-
Umhverfís-
ráðherrar í
heimsókn
Þórunn Svcinbjarnardóttir
umhvcrflsráðherra og Marthinus
van Schalkwyk umhverfisráð-
herra Suður Afríku hcimsóttu
Eyjarnar á mánudag ásamt fríðu
föruneyti. Hópurinn fékk höfð-
inglegar móttökur í Eyjum og
var m.a. boðið í siglingu og
skoðunarferð um Heimaey.
Veðrið lék við gesti og gestgjafa
en á myndinni eru Þórunn
Sveinbjarnardóttir, Marthinus,
Elliði Vignisson og dóttir hans
Bjartey Bríet sem var sérstakur
sendifulltrúi Eyjanna í þessari
hcimsókn. Framkvæmdastjóri
stofnunar um orkumál í Suður
Afríku var afskaplega hriflnn af
ungu dömunni og bauðst til að
flétta Ijósa hárið þegar hún ætti
leið til Afríku.
Sr. Kristján
sækir um
Mosfells-
prestakall
Séra Kristján Björnsson, sóknar-
prestur Landakirkju hefur sótt um
Mosfellsprestakall.
Umsóknarfrestur er til 28. ágúst
og má búast við niðurstöðu í byrj-
un september.
Prestakallið er eitt það feitasta á
landinu og gera má ráð fyrir að
margir verði um hituna. Hver
hlýtur hnossið kemur í ljós á
næstu vikum.
Sr. Kristján vígðist á Hólum í
Hjaltadal 9. júlí 1989 og var
sóknarprestur í Breiðabólsstaðar-
prestakalli í Húnavatnssýslu frá
1. júlí 1989 til 31. ágúst 1998.
Hann hefur verið skipaður sókn-
arprestur í Vestmannaeyjum frá 1.
sept. 1998. Sr. Kristján var rit-
stjóri Kirkjuritsins í níu ár, í full-
trúastjórn Hjálparstarfs kirkj-
unnar í 6 ár og sat í héraðsnefnd
Kjalarnessprófastsdæmis 1999-
2001. Hann hefur setið á kirkju-
þingi fyrir Kjalarnessprófasts-
dæmi síðan 2002 og í kirkjuráði
Þjóðkirkjunnar frá 2006.
SUS-arar
þinga í Eyjum
Dagana 19. til 21. september
verður milliþing SUS haldið í
Vestmannaeyjum og má búast við
miklum fjölda gesta til Eyja af
þessu tilefni. Ungir Sjálfstæðis-
menn héldu síðast þing í Eyjum
1999 og nú á að endurtaka
leikinn.
Á vef SUS segir að ungir sjálf-
stæðismenn séu langstærsta og
öflugasta stjórnmálahreyfing
ungs fólks á Islandi. I gegnum
árin hafi ótrúlega margar góðar
hugmyndir kviknað í SUS sem
svo hafa orðið að veruleika.
Yfirskrift þingsins er: Nýtum
tækifærið. „I Eyjum ætlum við að
kynna hugmyndir unt þau mál
sem við viljum að sett séu á odd-
inn hjá sjálfstæðismönnum í
ríkisstjórn. Með því að setja fram
hugmyndir okkar á skýran og
lifandi hátt getum við haft mikil
áhrif,“ segja ungliðarnir.
Rannsókn á
viðkvæmu
stigi
Lögreglan á Hvolsvelli vinnur
enn að rannsókn máls er varðar
ólöglegan llutning á farþegum
milli Bakkafjöru í Landeyjum og
Vestmannaeyja um verslunar-
mannahelgina. Búið er að tala við
vitni og munu nokkrir boðaðir í
yfirheyrslur á næstunni.
Lögreglan lítur málið alvar-
legum augum og segir að það
liggi ljóst fyrir að fólk var flutt á
milli án nauðsynlegra leyfa og
haft það verið lagt í stórfellda
hættu.
eyjar.net
(Jtgefandi: Eyjasýn chf. 480^78-0549 - Vcstmajmaeyjum. Ritetjóri; Ómar Gardarssoa
Blaðamenn: Gudbjörg Sigurgcirsdóttir og Júlíus Ingason. Iþróttir: Jiilius lugason.
Ábyrgdarmenn: Ömar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: llyjasýn/ Eyjaprent. Vcstmannacyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47.
Símai: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstnr frettir@eyjafrcttir.is.
Veffang: http/Avww.eyjafrettir.is
FRÉTTER koma út alla fimmtudaga lilaðið erselt í áskrift og einnig i lausasölu á Kletti,
Tvistinum, Toppnum, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni, Isjakanum,
verslun 11-11 og Skýlinu i Friðarhöfn.. FRÉTiTK eru prentaðar i 2000 eintökum.
FRÉTTIK eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Bftirprenhm, hljóðritnn,
notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé gehð.