Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2008, Side 16
/sun
' . investments S.L
FASTEIGNASALA A SPÁNI
LINDA RÓS
(0034) 646 930 757
lindarosg@hotmail.com
www.suninvestmentsl.com
NÝR ALTARISDÚKUR Við messu síðasta sunnudag var tekinn í notkun nýr altarisdúkur í
Landakirkju sem Helgi Pálmarsson saumaði. Helgi gaf dúkinn og skírnarkjól, sem hann saumaði
einnig, til kirkjunnar. Helgi er 74 ára og eru gjafirnar til minningar um konu hans, Erlu Guðna-
dóttur frá Miðbæ í Eyjum og fjölskyldu hennar. Bæði dúkur og kjóll þykja listavel gerðir.
Páll Scheving, oddviti Vestmannaeyjalistans:
Vonandi fáum við höfn
sem stenst kröfur
-Þurfum að gæta hagsmuna okkar þegar kemur að smíði ferjunnar
Páll Scheving, oddviti Vestmanna-
eyjalistans, segist vissulega fagna
því að nú skuli loks hilla undir að
framkvæmdir hefjist við Landeyja-
höfn sem á að verða tilbúin sumarið
2010.
„Tilboð Suðurverks var hagstætt
og við verðum að vona að tíma-
áætlun standist," sagði Páll. „Nú er
allt klárt til að byrja og vonandi
fáum við almennilegt mannvirki
sem stenst þær kröfur sem Eyja-
menn hljóta að gera til þess. Og
frátafir mega ekki vera meiri en þær
eru í dag.“
Páll sagði aftur á móti vera meiri
óvissu með skipið en þrjú tilboð
bárust í smíði þess í síðustu viku.
„Við höfum engar upplýsingar
fengið um hvernig skip tilboðs-
gjafarnir ætla að bjóða okkur. Það
skrýtna er að tilboðin eru á svip-
uðum nótum og tilboð Vestmanna-
eyjabæjar og Vinnslustöðvarinnar
sem buðu upp á mjög öflugt skip.
Það þótti of dýrt en nú er annað
komið á daginn. Annars getur maður
lítið sagt fyrr en maður hefur fengið
upplýsingar um skipin sem nú eru í
boði. Eins og þetta lítur út í dag er
ekki annað að sjá en að ákvörðun
um að bjóða smíðina út aftur verði
til þess eins að tefja að við fáum
nýja ferju."
Að öðru leyti sagðist Páll ekki
vilja tjá sig frekar að sinni nema að
hann telur miklu skipta að skipuð
verði smíðanefnd vegna nýrrar ferju
þar sem Vestmannaeyingar eigi
öfluga fulltrúa. „Mörg álitamál eiga
eftir að koma upp á smíðatímanum
og þá verðum við að eiga fulltrúa
sem standa vaktina fyrir okkur. Gæti
hagsmuna okkar í einu og öllu, komi
í veg fyrir að menn stytti sér leið í
smíðinni og tryggi að við fáum
fyrsta flokks skip sent veiti okkur
fyrsta flokks þjónustu," sagði Páll.
Tröllin ætla
á Ljósanótt
Á milli 20 og 25 tröll frá
Vestmannaeyjum ætla að leggja
land undir fót því þau eru
staðráðin í að mæta á Ljósanótt í
Reykjanesbæ þann 4. - 7. septem-
ber. Tilefnið er að þar hefur verið
útbúinn hellir fyrir tröllskessu en
þema Ljósanætur byggir á
sögunum um Siggu og skessuna,
eftir Herdísi Egilsdóttur. Skessan
kemur til með að sofa í hellinum
og tröllin frá Eyjum ætla að
kveðja hana áður en hún fer að
sofa.
Jóhann Jónsson, heimildar-
maður blaðsins í tröllamálum,
segir talsverða fyrirhöfn fyrir
þau að ferðast milli landshluta.
Hins vegar muni Reykjanesbær
gera vel við tröllin og þá gefist
tækifæri til að endurnýja ýmsan
búnað og svigrúm skapist til að
hugsa aðeins stærra í því sem
snýr að tröllum í framtíðinni.
LUNDAPYSJA í 108 REYKJAVÍK
Eyjamaðurinn Hlöðver Guðnason var á leiðinni heim úr vinnu á föstu-
daginn þegar hann rakst á þessa lundapysju í Klettagörðum. Þar var
hún að spóka sig á miðri götu og auðvelt fyrir lundakall og fyrrverandi
pysjusafnara að ná henni. Hún var mjög spræk, lítill dúnn var á henni
og var hún nokkuð vel gerð. Sennilega villst úr Lundey eða Akurey.
Fór með hana heim þar sem hún vakti mikla lukku hjá krökkunum
sem fengu að gefa henni ýsubita. Um kvöldið var svo farið og pysjunni
gefið frelsi úti á Viðeyjarsund.
piús (44 ™ SSm UMBOÐÍEYJiJM Eyjafréttir.is - fréttir milli Frétta
s/töjlrirJLr' JÍJjJjt
VIKUTILBOÐ
21. - 27. ógúst
Bergtoppur skógarberja 0,si
verá nú kr 68,-
verð aður kr 128,-
Smjörvi soog
verð nú kr 168,-
verð óður kr 218,-
SS beikonbollur
verð nú kr 358,-
verð úður kr 430,-
NY Ungnoutohakk
verð nú kr/kg 1198,-
verð óður kr/kg 1558,-