Fréttir - Eyjafréttir - 04.09.2008, Side 8
8
Frcttir / Fimmtudagur 4. september 2008
Eyjamennirnir Jón Valgeirsson og Sigurður Jónsson eru sveitarstjór
Byggja afkomu sína á landbúm
Fréttir voru á ferð á
Suðurlandi fyrir
skemmstu og tóku
hús á tveimur
Eyjamönnum sem
stjórna sitt hvoru
sveitarfélaginu í
✓
Arnessýslu. Þeir
eru Jón Valgeirsson
sem er sveitarstjóri
í Grímsnes- og
Grafningshreppi og
Sigurður Jónsson,
sveitarstjóri í
Skeiða- og Gnúp-
verjahreppi. Báðir
láta vel af sér og
athyglisvert er að
bera saman búsetu
í sveit og það að
búa í Eyjum.
JÓN við sundlaugina á Borg sem er mjög vinsæl. Hana sækja um 30 þúsund gestir á ári og skartar hún snyrtilegu útisvæði og stórri renni-
braut.
/
„Elsti starfandi borgarstjóri á Islandi“
-segir Jón Valgeirsson að Borg í Grímsnesi þar sem hann hóf störf sem sveitarstjóri á síðasta ári, sem
með þessum orðum er að gera létt grín af því sem er að gerast í borgarstjórn Reykjavíkur
Vitöl
Ómar Garðarsson
omar@ eyjafrettir..is
Á Borg í Grímsnesi ræður Jón G. Valgeirsson
nlcjum sem sveitarstjóri Grímsnes- og Grafn-
ingshrepps. Skrifstofan er í sama húsi og
grunnskólinn þar sem líka er sundlaug og
íþróttaaðstaða. Þau starfa þrjú á skrifstofunni
auk þess sem oddvitinn kemur að starfi
sveitarstjórnar.
Pólitíkin öðru vísi
Jón segir að sveitarstjórnarumhverfið sé með
öðru sniði í sveitahreppum en því sem við
þekkjum héma í Vestmannaeyjum þar sem
stóru flokkarnir fara að mestu með ferðina.
„Hér eru listamir ekki pólitískir þó sumir á
listunum séu eflaust flokksbundnir en ég er
ekki að velta mér upp úr því,“ segir Jón
þegar hann var beðinn um að bera saman
fyrirkornulag sveitarstjóma hér í Vest-
mannaeyjum og hans nýju heimaslóðum.
Jón bjó með fjölskyldu sinni nógu lengi í
Vestmannaeyjum til að geta talist Eyjamaður
með fullum sanni en segja má að hann sé
kominn á nokkuð kunnuglegar slóðir í
Ámessýslunni því hann er frá Þverspymu í
Hrunamannahreppi. Að loknu námi í lög-
fræði starfaði hann í tvö ár á Selfossi. „Þá
var tekin ákvörðun um að opna lögmanns-
stofu í Vestmannaeyjum og Lögmenn
Vestmannaeyjum urðu til. Það kom í minn
hlut að hefja störf í Vestmannaeyjum og
tíminn varð nokkuð drjúgur því árin í Eyjum
urðu 11sagði Jón sem líkaði vel í Eyjum.
Viðbrigði að flytja til Eyja
„Já, okkur líkað mjög vel í Eyjum. Það hlýtur
að segja sitt að við vorum þama í 11 ár, það
er ekkert öðm vísi.“
Hvernig var að flytja til Vestmannaeyja frá
Selfossi. „Að vissu leyti voru það viðbrigði
en Eyjamenn eru opið og skemmtilegt fólk
og það voru engin aðlögunarvandamál. Enda
held ég að bæði ég og konan höfum dottið
KERIÐ í Grímsnesi er ein af perlum
Suðurlands en það er í ríki Jóns
Valgeirssonar. Þangað koma þúsundir á
hverju ári og hér eru tveir peyjar að kíkja
á dýrðina, Ómar Smári og Andri Þór.
inn í góðan félagsskap. Og núna þegar maður
horfir úl til Eyja er ekki annað að sjá en
að samfélagið sé á réttri leið og allt gangi
vel.“
Það er rúmt ár síðan Jón tók við
stjórnartaumunum íprímsness- og
Grafningshreppi. „Ég tók við starfinu 1.
mars en flutti með fjölskylduna í júlí þannig
að um tíma var ég farandsveitarstjóri. Jú, það
er rétt sveitarfélagið er landfræðilega stórt,
nær frá Hvítá í austri að Henglinum í vestri,
þvert yfir Þingvallavatn og í suðri í Brúará.
Nýjustu tölur um fbúa eru að hér eru skráðir
420 en um helgar eru hér um 10.000 manns.
Það eru fleiri en þessir 420 sem eru hér með
fasta búsetu þó þeir séu skráðir hjá okkur.
Hjá okkur er stærsta sumarbústaðabyggð
landsins, milli fimmtungur og fjórðungur af
öllum sumarbústöðum á íslandi," segir Jón
og þarf ekki að efast um þá fullyrðingu
hans eftir að hafa ekið um víðáttumiklar
lendur Jóns Valgeirssonar.
Bæði íbúar og þeir sem nýta bústaðina
sækja mikið þjónustu á Selfoss en Jón segir
að mikil starfsemi sé í hreppnum sem tengist
sumarbústöðunum.
„Það er verktakastarfsemi við uppgröft og
gerð grunna, lagningu veitna, byggingu
sumarhúsa og svo er endalaust viðhald. Auk
þess höfum við mikil samskipti við félög
sumarbústaðaeigenda og vinnum með þeim
að því að þróa hér framúrskarandi sumar-
húsabyggð."
Þó sumarhúsabyggðin skipti máli fyrir
sveitarfélagið segir Jón það misskilning að
þeir lifi af henni. „Þetta er virkjanasamfélag
lfka því innan okkar marka eru Nesjavalla-
virkjun og Sogsvirkjanirnar þrjár og höfum
við verulegar tekjur af fasteignagjöldum af
virkjununum og starfsfólki sem vinnur við
þær.“
Þorp að rísa að Borg
Þegar talið berst að Borg þar sem er að rísa
þéttbýliskjarni með flestri grunnþjónustu
segir Jón að markvisst sé unnið uppbygg-
ingunni þar. Margir kannast við, við Borg,
litlu verslunina við þjóðveginn og einhverjir
hafa farið á dansleiki að Minniborg þar sem
haldin voru sveitarböll hér á árum áður. Þar
er nú risinn nýr skóli eins og áður er getið og
þar á bakvið eru nokkur nýleg einbýlishús.
„Þetta er að verða töluvert þorp þó ég segi
ekki borg,“ segir Jón og hlær að samlíking-
unni.
„Hér erum við að byggja upp höfuðstöðvar
sveitarfélagsins með skrifstofu, grunnskóla,
leikskóla, íþróttaaðstöðu og sundlaug. Þetta
er skemmtilegt verkefni að fá tækifæri til að
byggja upp þorp og spuming hvenær Borg
fer að standa undir nafni. Það verður kannski
einhvem tímann en í dag segi ég stundum í
gríni að ég sé elsti starfandi borgarstjóri á
Islandi," segir Jón og hlær við tilhugsunina
um síðustu hremmingar í Reykjavík."
Þegar talið berst að landbúnaði sem ásamt
sjávarútvegi var undirstöðuatvinnuvegur
þjóðarinnar segir Jón að vissulega fari hann
halloka, bændum hafi fækkað og enn eru
menn að hætta búskap. „Það er alveg rétt að
landbúnaður er á undanhaldi, búum fækkar
og verið er að leggja jarðir undir sumarhúsa-
byggðir. En sem betur fer er hér öflugur
búskapur og við stöndum enn undir nafni
sem sveit. Hér eru fá kúabú en meira um
sauðfjárbúskap og hrossabú en flestir stunda
bændur aðra vinnu með búskapnum
þannig að þeir eru ekki eins varnarlausir
þegar sviptingar eru í afurðaverði."
Hollt að breyta til
Jón segir framtíðina bjarta í Grímsnes- og
Grafningshreppi og það hafi verið skemmti-
leg reynsla að breyta til eftir 13 ár í lög-
mennskunni. „Það er alltaf hollt að breyta til
þó það skjóti kannski svo lítið skökku við að
hætta að starfa sem lögfræðingur um leið og
ég öðlaðist réttindi sem hæstaréttarlögmaður.
Það er gott að kynnast einhverju nýju og
þetta er mjög skemmtilegur vettvangur og
gaman að fá að kynnast sveitarstjómarstiginu
í víðustu merkingu þess orðs.“
Að lokum berst spjallið aftur út í Eyjar og
segir Jón að þaðan sé margs að sakna en aðrir
kostir komi á móti. „Það var erfitt að taka sig
upp eftir 11 ár því auðvitað þótti okkur og
þykir mjög vænt um Vestmannaeyjar og fólk
sem við kynntumst þar. En við áttum allt
okkar fólk uppi á landi og þegar samgöng-
umar eru eins og þær eru í dag getur það
verið erfitt. Vonandi verður framþróun með
tilkomu Landeyjahafnar og þá komum við
kannski aftur. Énginn veit ævina fyrr en öll
er,“ segir Jón sem setur veðrið í Eyjum ekki
fyrir sig. „Vestmannaeyjar eru einstakar og
það getur víðar blásið. Hér blæs hann jafnt í
öllum áttum því skjólið er ekkert hér á slétt-
lendinu og slæmt veður í Eyjum er bara
mýta,“ sagði Jón sem að lokum bað um
kveðju til vina og kunningja í Eyjum.