Fréttir - Eyjafréttir - 04.09.2008, Blaðsíða 11
Fréttir / Fimmtudagur 4. september 2008
11
Kristín Ósk Óskarsdóttir - Skyndibitar fyrir sálina:
Haltu áfram að læra svo lengi
sem þú
I þessum skrifuðu orðum var ég að
enda við að senda inn umsókn mína
á Sóknarbraut en námið er á vegum
Nýsköpunarmiðstöðvar Islands sem
verður kennt í Visku þetta haustið.
Fannst mér það skemmtileg tilviljun
þegar ég fletti upp geðorði númer 3
sem er: Haltu áfram að læra svo
lengi sem þú lifir.
Eg er einstaklega námsfús og lít
á hvert einasta námskeið, fyrirlestur
eða skólagöngu sem mikið sóknar-
færi í lífinu. Eg er líka mjög hlynnt
símenntun því öll getum við átt
hættu á að festast í þægilegu fari og
við það getur sköpunargleðin og
frumkvæði okkar glatast.
I bókinni góðu um geðorðin tíu
segir: „Það hefur jákvæð áhrif á
geðheilsuna að vilja læra meira og
halda áfram að þroskast. Með
opnum huga verður auðveldara að
sjá lausnir á vandamálum sem upp
koma. Með því að horfa á nýjungar
opnum huga skapast einnig tækifæri
til að þroskast og efla sterku hlið-
amar og það stuðlar bæði að vel-
gengni og vellíðan".
Jafnframt kemur fram, eins og ég
kom inná hér á undan: „Ekki þykir
eftirsóknarvert að staðna og þröng-
sýni telst síður en svo til kosta. Til
að koma í veg fyrir stöðnun er
mikilvægt að tileinka sér víðsýni og
takast á við lífíð með jákvæðum og
opnum huga.“
Ur bókinni Velgengni og vellíðan,
um geðorðin 10.
Eins og ég ræddi við góðan vin
minn um daginn, að skóli er svo
miklu meira heldur bara eitthvert
þurrt námsefni og kennarar. Maður
fær tækifæri til að kynnast nýju
fólki, nýjum hugmyndum og stund-
um myndast ævilöng vinabönd.
Þetta er eitthvað sem er ómetanlegt
og kannski það sem maður lærir
einna mest af. „Þeir sem hafa mikla
reynslu á einhverju sviði telja oft að
þeir geti lítið lært af öðrum.
Langskólagengið fólk telur til
dæmis oft að það geti lítið lært af
þeim sem eru minna menntaðir".
Reynsla verður seint ofmetin, það
Þröngsýni og
andstaða við að
temja sér nýj-
ungar hindrar
þroska og sá
sem þannig
hugsar forðast
yfirleitt að-
stæður sem
honum finnst
ögrandi og hann
missir þar af
leiðandi af tæki-
færi til að
þroskast.
er hægt að læra margt af fólki með
mikla reynslu. Einnig er hægt að
læra margt af bömum, þau em svo
einlæg og sjá oft hlutina í réttu ljósi.
Þau hjálpa okkur oft og tíðum að
koma auga á það sem mestu máli
skiptir í líftnu og kenna öðmm að
meta það. Sýn barna á heiminn er
oft bæði skýrari og betri en þeirra
sem eldri era og því mikilvægt að
vera opinn fyrir því sem þau segja
og læra af þeim.
„Viljinn til að vera betri í dag en
í gær er drifkraftur persónulegs
þroska. Þröngsýni og andstaða við
að temja sér nýjungar hindrar
þroska og sá sem þannig hugsar
forðast yfirleitt aðstæður sem
honum finnst ögrandi og hann
missir þar af leiðandi af tækifæri til
að þroskast."
Eg hef nánast verið skömmuð fyrir
að vera of dugleg að ögra sjálfri mér
en þetta er það sem mér fmnst gefa
líftnu aukið gildi. Þegar ég verð til
dæmis hrædd þá er það eitt af mott-
óum mínum að stíga einu skrefi
lengra en ég þori. Ef maður gerir
það þá er maður sigurvegari og þá
tilfmningu er svo gott að hafa í
hjartanu.
„Mikilvægt er að láta ekki stolt eða
þrjósku koma í veg fyrir að við
höldum áfram að læra og þroskast.
Það ber vott um hugrekki, lítillæti
og sjálfsöryggi að geta tekið við
ábendingum frá hverjum sem er og
veitir okkur tækifæri til að
þroskast."
Ur bókinni Velgengni og vellíðan,
um geðorðin 10.
Þetta var einna erfiðast fyrir mig að
ná tökum á og stundum dett ég jafn-
vel í gamla farið og fer í vörn þegar
einhver gagnrýnir mig. Þarna er
samt sem áður oft besta tækifærið.
Að taka eitthvað inn, læra af því og
tileinka sér það.
Jæja ætla að láta þetta duga um
lærdóminn, jafnt skólalegan sem og
lærdóm lífsins. Haldið áfram að
njóta þess að læra og vera til.
Kœr kveðja ykkar Kristín Osk
kristino @ vestmannaeyjar. is
Horfum til framtíðar
- Hugsum stórt
Mismunun í skilta-
Cjrein.................
Sigurður Jóns. skrifar:
Höfundur er sveitarstjóri í
Skeiða og Gnúpverjahreppi.
og Eyjamaður.
Allt stefnir í að meistaraflokkur IBV
leiki í efstu deild á næsta ári. Allt
stuðningsfólk IBV fagnar þessu því
Eyjamenn eiga hvergi heima nema
meðal þeirra bestu.
Til hamingju Heimir þjálfari og
allir í liðinu,til hamingju með glæsi-
legan árangur.
Nú heyrir maður og sér að KSI
gerir auknar kröfur til áhorf-
endastúku og eflaust fleiri atriða
eigi liðið að fá að leika heimaleiki
sína á Hásteinsvelli.
Að mörgu leyti fmnst mér skiljan-
legt að Eyjamönnum finnist óþarfi
að vera að setja fjármuni í þennan
aðbúnað, völlurinn sé glæsilegur og
það ætti bara að vera nóg. Jú, ósköp
var nú þægilegt að sitja norðan
megin í grasinu með sitt teppi og
horfa á leikina. Ekki fannst manni
neitt að þessu.
En tímarnir breytast og kröfurnar
aukast. Þetta sér maður á öllum
sviðum. Það er gífurlega mikið
atriði fyrir sveitarfélag að eiga
afreksmenn eins og meistaradeildar-
lið IBV. Þar skapast fyrirmyndin hjá
unga fólkinu. Það sýndi sig best
núna á dögunum hvers konar víta-
mínsprauta árangur íslenska hand-
boltaliðsins er fyrir allt íþróttalíf í
landinu.
Knattspymulið í efstu deild eflir
samstöðu og samhug Eyjamanna,
ekki bara í Eyjum heldur urn allt
land.
Mér frnnst að það verði að horfa til
framtíðar, ekki bara næstu tveggja
eða þriggja ára. Eyjamenn eiga að
horfa til framtíðar. Horfa á til næstu
20 eða 30 ára. Framundan er bylting
í samgöngumálum, sem getur orðið
mikil lyftistöng fyrir samfélagið í
Vestmannaeyjum. Það á að hugsa
stórt. Bæjarsjóður er nú í allt annarri
stöðu heldur en áður. I mínum huga
er það ekki nokkur spuming að það
á að gera alla umgjörð um
Hásteinsvöllinn sem glæsilegasta
þ.m.t. yfirbyggðri stúku. Stefnan
hlýtur að vera tekin á að meist-
araflokkur karla í ÍBV leiki sem
lengst í efstu deild. Það em líka til
fleiri lið í Eyjum en karlaliðið.
Kvennaboltinn á örugglega eftir að
eflast ásamt yngri flokkunum.
Eyjamenn, horfið vel til framtíðar
og hugsið stórt. Notið tækifærin sem
blasa við.
málum
Grein
Bergur Sigmundsson
skrifar:
Höfundur er bakari og hlut- hafi í Sœporti ehf.
Þann 23. júlí síðastliðinn var tekin
fyrir umsókn frá Sæsporti ehf. um
leyfi fyrir upplýsingaskilti sem setja
átti upp í grjótbeði við enda
Bárustígs. Átti það að auðvelda
ferðamönnum sem ekki þekktu til
staðhátta í Vestmannaeyjum að
finna sprotafyrirtæki sem er að
reyna að hasla sér völl á ört vaxandi
sjóstangveiðimarkaði Evrópu.
Ráðið hafnaði erindinu með þeim
skýringum að það, skiltið, væri utan
þess svæðis sem fyrirtækinu hefði
verið ákveðinn staður og að það
væri skýrt brot á reglum þar sem
aðeins mættu fyrirtæki auglýsa sína
starfssemi innan sinnar lóðar.
Ég undirritaður er alls ekki sáttur
við þessa ákvörðun ráðsins og finnst
hún í raun og vem sýna algjört
þekkingarleysi og og vankunnáttu á
eðli sölu og viðskipta og að koma
skilaboðum til væntanlegra við-
skiptavina.
Eg átti líka von á því að þar sem
þessir sömu aðilar sem höfnuðu
erindinu eru alltaf rausandi um
nauðsyn þess að fjölga beri ferða-
mönnum hingað til Eyja byggju yfir
þeirri vitneskju að til þess að sjást
verður þú að vera sýnilegur.
Ég vill í framhaldi benda aðilum
ráðsins á að skilti það sem stendur
við ilugvöll Vestmannaeyjabæjar.
Þar er auglýst bifreiðategundin
Toyota sem er töluvert langt frá því
svæði sem Toyota er að selja sínar
vörur og enn lengra frá fram-
leiðslusvæði þeirra. Hlýt ég sem
löghlýðinn borgari og skattgreið-
andi hér í Vestmannaeyjum að fara
fram á að skiltið verði flutt á þann
stað þar sem sala eða önnur starf-
semi fyrirtækisins fer fram.
Ég ætlast til þess að þessu fyrirtæki
verði veittur sami frestur til að
fjalægja skiltið og Sæsporti var
veittur til þess að fjarlægja sitt skilti
eða eins og sagði í úrskurði ráðsins
Að skilti Sæsports verði íjarlægt
inna 14 daga. Þannig að þetta skilti
verði farið inna 14 daga.
Virðingarfyllst,
Bergur M Sigmundsson
Hluthaji í Sœsport ehf.
Margrét
Lára
marka-
drottning
-Stefnir á að leika
erlendis á næsta tímabili
- Stór lið haft samband
Enn heldur Margrét Lára Viðars-
dóttir sig við efnið f markaskorun.
Á laugardaginn skorðaði hún
þrennu fyrir Val gegn Fylki í
Landsbankadeild kvenna. Þar með
er ljóst að hún verður marka-
drottning deildarinnar eitt árið enn.
Margrét Lára, sem hefur gert 29
mörk í 17 leikjum í ár, sagði við
Morgunblaðið eftir leikinn að hún
væri farin að hugsa sér til hreyfings
og hygðist fljótlega reyna fyrir sér
erlendis.
„Ég einbeiti mér fyrst og fremst
að Val í dag en held að minn tími á
Islandi sé að verða búinn og stefni
á að fara ulan í haust. Það gerist
bara þegar það gerist og það eru
spennandi tímar framundan.
Umboðsmaður minn segir að stór
lið úti í heimi hafi haft samband en
ég hrindi því öllu frá mér fram yfir
Islandsmót og reyndar fram yfir
árið, læt bara umboðsmanninn sjá
um þetta,“ sagði Margrét Lára við
Morgunblaðið.
www.mhl.is greindi frá.
Botninn er
dottinn úr
síldar- og
makríl-
veiðum
Botninn er dottinn úr sílrlar- og
makrílveiðunum og eru
veiðiskipin nær öll á landlcið.
Eftir árangurslausan lcitarleið-
angur nokkurra skipa norður
undir Jan Mayen um helgina og
trega veiði annarra skipa austur
af landinu á meðan, fóru skipin
að halda heimleiðis í gær og nótt.
Þrjú skip eru þó enn út í regin-
hafi í grennd við norsku
lögsögulínuna.
Sjómenn og útgerðarmenn ætla
nú að endurmeta stöðuna, því
vegna ntikils olíukostnaðar er
dýrt að lialda skipum úti, ef ekki
er á vísann að róa.
www.visir.is greindi frá.