Fréttir - Eyjafréttir - 04.09.2008, Page 13
Fréttir / Fimmtudagur 4. september 2008
13
LÖGREGÍ4N
Sæbjörg Logadóttir hljóp heilt maraþon, 42 km, fyrst Eyjamanna:
Ekki stoppa - drullaðu þér áfram
Opið hús hjá Island studios:
Fullkomið hljóðver í Betel við Faxastíg
Korta-
þjófur og
bruni
Lögreglan hafði ýmsum verkum
að sinna í vikunni sem leið þrátt
fyrir að engin alvarleg mál hafi
komið upp.
Einn þjófnaður var kærður til
lögreglu í vikunni og átti hann sér
stað aðfaranótt 31. ágúst sl. Um
var að ræða þjófnað á veski og
misnotkun á greiðslukorti sem
var f veskinu. Sá er þarna var að
verki var handtekinn sama dag og
hefur viðurkennt verknaðinn.
Mun hann hafa náð að taka út um
kr. 13.000,- af kortinu áður en
upp komst um athæfið. Málið
telst að mestu upplýst.
Ein kæra liggur fyrir vegna
skemmdarverks. Um er að ræða
skemmdir á girðingu við Heima-
götu. Þama mun hluti girðingar
hafa verið fjarlægður án heim-
ildar. Ekki er vitað hver þarna
var að verki.
Að morgni síðasta fimmtudags
var lögreglu tilkynnt um reyk frá
húsi við Höfðaveg. Reyndist
pottur hafa gleymst á hellu
þannig að töluverður reykur barst
frá húsinu. Náðist að ráða niður-
lögum eldsins áður en tjón hlaust
af. Hins vegar varð eitthvað tjón
af völdum reyks og sóts.
Sigldi á
Básaskers-
bryggju
Að kvöldi föstudagsins sl. var
lögreglu tilkynnt um að flutn-
ingaskipið Arnarfell haft keyrt
utan í Básaskersbryggju þegar
verið var að snúa skipinu.
Mun stjómkerfi skipsins ekki
hafa látið af stjórn með fyrrgrein-
dum afleiðingum. Ekki varð um
alvarlegt tjón að ræða og engin
slys á fólki.
Af umferðarmálum er það helst
að frétta að tveir ökumenn fengu
sekt fyrir of hraðan akstur á
Hamarsvegi, annar fyrir að aka á
70 km/klst en hinn á 93 km/klst.
Þá fengu tveir ökumenn sekt fyrir
ólöglega lagningu ökutækja
sinna.
-hugsaði ég en hefði ég séð einhvern sem ég þekkti hefði ég bara farið að grenja
Opið hús verður hjá Island studios á
föstudag en þá gefst bæjarbúum
kostur á að skoða aðstöðuna við
Faxastíg, þar sem Betel var áður til
húsa. Olafur Guðjónsson, Arni Oli
Guðjónsson og Védís Guðmunds-
dóttir standa að stúdíóinu en miklar
breytingar hafa verið gerðar á hús-
næðinu og nánast búið að byggja
nýtt hús inn í húsið sem var fyrir.
Útkoman er fyrsta flokks hljóðver.
Ólafur og Ámi Óli hófu fram-
kvæmdir í október í fyrra og unnu
að þeim fram í mars. Hófust handa
aftur í júlí og luku þá verkinu. Húsið
er nú allt hljóðeinangrað og þar em
nú þrjú upptökuherbergi og upp-
tökusalur. Hljóðverið er búið öllu
því nýjasta í tækjabúnaði sem við-
kemur hljóðblöndun. Auk þess er
íbúð í húsinu fyrir þá sem vilja búa
þar á meðan þeir vinna í hljóðver-
inu.
Island studios vinnur nú að tveimur
verkefnum en í október er von á
þekktri hljómsveit sem ætlar að taka
upp „live“ en stúdíóið mun henta vel
fyrir það sem hjómsveitin leitar
eftir, sem er topp upptökuver í
aflöppuðu umhverfi. Eitthvað sem
tónlistarmenn leita eftir.
Ólafur mun vera hugmyndasmið-
urinn að því að byggja hljóðverið og
hann segir að oft hafi verið öflugt
hljómlistarlíf í Eyjum. Með þessu
vilji þau sem standa að Island stu-
dios stuðla að því að hér verði meiri
ISLAND STUDIO Hljóðverið stenst allar kröfur og hafa þekktir tónlistarmenn sýnt því áhuga. Óli, Árni ÓIi
og Védís eru tilbúin að taka á móti þeim.
gróska en undanfarin ár. Védís
bendir á að fólk hafi oft gælt við að
taka upp tónlist og nú verði allt
auðveldara með tilkomu stúdíósins.
Ámi Óli segir réttilega að tónlist lifi
alltaf, kreppa breyti þar engu um.
Bæjarbúar em hvattir til að skoða
húsakynnin hjá Island studios á
föstudag en húsið verður opið frá
klukkan 16.00 til 19.00.
Sæbjörg Logadóttir gerði sér lítið
fyrir og hljóp heilt maraþon í
Reykjavíkurmaraþoni Glitnis 23.
ágúst sl. Hún byrjaði að hlaupa úti í
byrjun sumar og skráði sig í hlaupið
þremur dögum áður en það fór fram.
Sæbjörg var að vinna austur á landi
í sumar og keyrði í bæinn, daginn
fyrir hlaup og stóðst ekki mátið og
borðaði súkkulaðirúsínur á leiðinni.
Undirbúningurinn var því ekki ker-
fisbundinn og Sæbjörg er ömgglega
eini maraþonhlauparinn sem tók
þjóðhátíð með trompi. Hún æfði
ekki í þrjá daga fyrir hlaup og segir
það hafa skipt miklu því hún hafi í
raun verið komin í mikla þörf fyrir
að hlaupa þegar stóra stundin rann
upp.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer
heilt maraþon en ég fór hálft
maraþon 2005 og 2006, “ segir
Sæbjörg þegar hún er spurð út í
hlaupið en hún hljóp á tímanum
3.48 og var þriðja af íslenskum
kvenkeppendum og í 9. sæti af
kvenkeppendum í hennar aldurs-
flokki, 18 til 39 ára. Núna er hún í
24 sæti yfir besta árangur kvenna á
árinu.
Sæbjörg byrjaði að hlaupa úti í
júlímánuði og tók ákvörðun um að
hlaupa heilt maraþon stuttu eftir
þjóðhátíð. „Ég átti barn í september
á síðasta ári og mátti byrja að æfa
sex vikum seinna en ég byrjaði ekki
að hlaupa úti fyrr en í júlíbyrjun, “
segir Sæbjörg þegar hún er spurð út
í undirbúninginn.
Hún segir hlaupið vissulega hafa
verið í erfitt og að hún hafi fengið
hnút í magann þegar hlaupið var um
það bil að byrja. „Ég hljóp hægt til
að byrja með og mér fannst ég eigin-
lega vera að drolla. Eftir um 25
kílómetra hlaup kom veggur og ég
stoppaði á næsta stoppi og fékk mér
tvö vatnsglös. Ekki stoppa núna -
drullaðu þér áfram, hugsaði ég en ef
ég hefði séð einhvem sem ég þekkti
þá hefði ég bara farið að grenja. Ég
hélt áfram og held að 70 % af því
sem drífur mann áfram sé viljinn.
Sæbjörg var ekki með neinn hlau-
pafélaga en segist hafa farið framúr
nokkrum hlaupurum og þeir svo
Komið í mark eftir 42 km. Eftir því sem Fréttir komast næst er Sæbjörg fyrst Eyjamanna til að hlaupa heilt
maraþon enn margir hafa spreyt sig á hálfu maraþoni.
framúr henni og þannig hafi þetta
gengið fyrir sig. Ég fann ekki fyrir
að þolið var neitt að plaga mig og ég
var ekkert móð en ég var að drepast
í liðum í fótum og í tánum. Það eina
sem angraði mig eftir hlaupið á voru
tærnar þó svo að ég hafi verið með
teip þá eru neglurnar svartar. Ég var
fín að öðru leyti, ekki með harðsper-
rur en aðeins stíf í öxlum en ekkert
annað. Það sem er kannski erfiðast
við svona hlaup er að stoppa alveg,
því þá kemur smá skjálfti í lap-
pimar, annað ekki, “ segir Sæbjörg
sem er greinilega með hlaupagenið í
sér.
Vestmannaeyingar hafa verið
duglegir að taka þátt í Reykjavíkur-
maraþoni Glitnis. Adda Sigurðar-
dóttir, Guðmunda Bjarnadóttir, Jó-
hanna Magnúsdóttir, Gyða Arnórs-
dóttir og Sigrún Logadóttir, systir
Sæbjargar, hlupu hálfmaraþon.
Ágústa Guðnadóttir, Björk Elías-
dóttir og dóttir hennar Ánna Fríða
Stefánsdóttir, og Baldvin Johnsen
hlupu 10 kílómetra. Ólöf Aðal-
heiður Elíasdóttir og Ester Haf-
steinsdóttir 3 kílómetra.
Þá hljóp Eyjamaðurinn Vilhjálmur
Bjamason sitt 20. hálfmaraþon í
röð.