Fréttir - Eyjafréttir - 04.09.2008, Page 16
Sun
Investments S.L
FASTEIGNASALA A SPÁNI
LINDA RÓS
(0034) 646 930 757
lindarosg@hotmail.com
www.suninvestmentsl.com
piús !M ™ SSm UMSOÐÍf'YJtM EyjafréttírJs - fréttir milli Frétta
r/ívttnnítt flnnbvyiBiw swiffcj-j ■\6bj4b-b-bm
TIL ÞJÓNUSTU reiðubúinn Jón hefur staðið vaktina við barinn á Lundanum í tíu ár.
Jón Ingi heldur upp á tíu ár á Lundanum um helgina:
Afrek að hafa þraukað í áratug
Það urðu margir hissa þegar fréttist
fyrir rúmum tíu árum að trillukarl
og fiskbúðareigandi ætlaði að
kaupa skemmtistaðinn Lundann við
Kirkjuveg af Sparisjóðnum sem
hafði fengið staðinn í hausinn eftir
gjaldþrot. Lundinn hafði lengi verið
aðalskemmtistaður bæjarins og þar
gerðust hlutirnir.
Það var því talsverð ábyrgð lögð á
herðar þess sem tæki við staðnum
og ekki öllum sem leyst á það
þegar heyrðist að Jón Ingi Guð-
jónsson, sjómaður, trillukarl og
fiskbúðareigandi ætlaði að söðla
um og fara í skemmtanabransann.
Það gerði hann og enn er Lundinn
við lýði tíu árum síðar í hans eigu.
Þó ekki hafi orðið róttækar breyt-
ingar á rekstrinum hefur Jóni Inga
tekist að gera þetta af snyrti-
mennsku og haldið úti pöbb og
ballstað þar sem fólk gengur að
ákveðinni þjónustu. En auðvitað
kallar staðurinn á andlitslyftingu en
það eitt að halda sjó í tíu ár er
kannski afrek út af fyrir sig.
„Ég keypti Lundann 1998 og hef
rekið hann óslitið síðan,“ sagði Jón
Ingi sem stökk frá borði á trillunni
og beint upp á Lunda. „Við opn-
uðum með dansleik 4. september
sama ár og það var hljómsveitin
Dans á rósum sem lék fyrir dansi.
Ég ætla að minnast tímamótanna á
laugardaginn með veislu fyrir okkar
helstu velunnara og samstarfsaðila.
Þar ætla Dans á rósum og Tríkót að
sjá um að skemmta fólki og eftir
miðnætti hefst dansleikur þar sem
þessar sveitir munu sjá um fjörið."
Þegar Jón Ingi lítur yfir farinn veg
segir hann að kannski sé stærsta
afrekið að hafa lifað af í heilan
áratug. „Þegar ég tók við var
Lundinn bara dansstaður en ég
breytti honum í pöb á virkum
dögum og áfram var hann dans-
staður um helgar. Það var oft
fámennt á pöbbnum fyrstu mánuð-
ina en svo fór fólk að líta inn og nú
á ég nokkuð fastan kúnnahóp og
svo líta ferðamenn við til að fá sér
einn kaldan. Sem skemmtistaður
hefur Lundinn alltaf staðið undir
nafni og fólk kann að meta það
þegar maður býður upp á hljóm-
sveitir og þá þjónustu sem við
bjóðum upp á.“
Jón Ingi segir að á Lundanum sé
fyrsta flokks eldhús og býður hann
upp á veisluþjónustu. „Svo eru það
jólahlaðborðin sem verða vinsælli
með hverju árinu.“
Þegar talið berst að starfsumhverfi
og rekstrarskilyrðum í veitinga-
rekstri í Vestmannaeyjum segir Jón
Ingi að því miður sé markaðurinn
of lítill fyrir marga skemmti- og
veitingastaði. „Samstarf eða sam-
eining gæti skilað hagnaði fyrir
alla. T.d. dæmis gengur varla að
halda dansleiki á tveimur stöðum
og á ég þar við Lundann og
Höllina. Ég á alltaf mína tæplega
100 gesti þó ball sé í Höllinni. Ef
rekstur beggja væri á sömu hendi
eða samstarf í gangi mætti beina
fólkinu á böllin í Höllinni þar sem
ég gæti mætt með mitt fólk. Þetta
væri öllum til góðs og kannski
verður þetta einhvern tímann
veruleikinn.
Þangað til verður maður að berjast
og svo horfir maður til bættra sam-
gangna með Landeyjahöfn. Þá sé
ég fyrir mér að Lundinn verði,
pöbb, fyrsta flokks veitingastaður
og skemmtistaður urn helgar. Það
er framtíðarsýnin en um helgina
ætlum við að skvetta úr klaufunum
og minnast þess með glæsibrag að
tíu ár eru síðan ég tók við
Lundanum," sagði Jón Ingi að
lokum.
Viðkomubrestur
Ljóst er að viðkomubrestur hefur orðið í lundastofninum
í Vestmannaeyjum fjórða árið í röð. Útlit er fyrir að mjög
lítið verði um pysju í ár og að hún komi mjög seint. Þær
pysjur sem enn eru lifandi í holununt eru mjög litlar og
óvíst hvort þær lifa.
Ástæðan er sú að lundinn hefur fundið mjög lítið af síli
til að fóðra ungana og hafa þeir því verið í svelti. Sem
dæmi má nefna að vaxtatími pysjunnar er 39 dagar við
eðlilegar kringumstæður, en er nú um fimmtíu dagar.
Innan við tíu pysjur hafa skilað sér í pysjueftirlitinu og
voru þær allar undir vigt. Erpur Snær Hansen, nát-
túrufræðingur hjá Náttúrustofu Suðurlands, segir að of
snemmt sé að spá fyrir um hve mikið að pysju skili sér,
en útlitið nú sé afskaplega dapurt og það stefni óðfluga í
mjög rýrt pysjutímabil.
Nokkurrar bjartsýni gætti í vor. I upphafi varptímans
var varpárgangur, klakárangur eggja og afkoma unga
þokkalegt. Aðeins bar á smávægilegum afföllum, þ.e.
ekki stöðugum dauða úl allan varptímann eins og í fyrra.
Vonir stóðu því til að nýliðun yrði í meðallagi. Þegar leið
á varptímann fór hins vegar að halla undan fæti og nú er
ljóst að um viðkomubrest er að ræða í ár, eins og þrjú
síðustu ár.
Aldurssamsetning veiði á þessu ári sýnir að tveggja og
þriggja ára árgangamir frá 2005 og 2006 eru næstum
horfnir úr veiðinni. Dræm aflabrögð í veiðinni endur-
spegla 76% minnkun veiðistofnsins. Um 58% veiðinnar
nú eru fjögurra ára fuglar sem hefðu hafið varp á næsta
ári. Varpfuglar, fimm ára og eldri, eru 38% veiðinnar.
fjórða árið í röð
0,4
a? • ao o .
RaufS.H.
Höfdavik S.H.
Malarkórar S.H.
Ellidaey
Stórato S.H.
Lambhilla S.H.
Álsey
i ■
□ gl
maí jun. jun.
júl. ágú. ágú. sep.
Hér má sjá afdrif 226 virkra hreiðurhola í 2008. Hver
punktur táknar eina heimsókn í allar tilraunaholur á
hverjum stað. Aföll meðan álegu eggja stendur eru lítil
sem engin (maí-11. júlí). Fljótlega eftir klak eggja sem
náði hámarki um 11. júlífór að bera á örum pysjudauða
sem hélt áfram til loka ágúst ogfœkkaði pysjum um 80%
á þessum tímabili. Svo virðist sem verulega hafi hœgt á
dauðanum um mánaðamótin ágúst-september en þœr
pysjur sem enn eru í hreiðrum eiga flestar enn eftir að
taka út meiri vöxt svo þœr geti yfirgefið holuna. Hafa þœr
þá verið í 53 daga í hreiðri þegar þetta er ritað en eðlile-
gur vaxtartími liggur á bilinu 34 til 44 dagar, um 39
daga. Lítið hefur borið á bœjarpysjum og hafa þœr verið
magrar (undir 260 g) og þar af leiðandi ólífvœnlegar.
Fylgst verður áfram með afdrifum holupysja sem œttu
að öllu jöfnu að láta sjá sig á nœstu vikum, hve tnargar
mun ráðast af því að hve miklu leyti pysjudauðinn muni
halda áfram.
VIKUTILB0Ð
4.-10. september
Góu Hraun bitar
verð nú kr 199/"
verð óður kr 298,-
Lu Bubba byggir kex
verð nú kr 218,-
verð óður kr 298,-
Socceroid 500 ml
verð nú kr 158,-
verð úður kr 198,-
Lu Prince 2pk <2.1759)
verð nú kr 228,-
verð dður kr 298,-
NY beikonborgarar 2* 125g
verð nú kr 478,-
verð úður kr 570,-
Danskar kjúklingabringur
verð nú kr 1198/"
verð úður kr 1968,-