Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2008, Síða 1
35. árg. I 38. tbl. I Vestmannaeyjum 18. september 2008 I Verð kr. 250 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
SAMFAGNA SYNINUM. ÍBV náði að endurheimta sæti sitt í efstu deildinni í fótboltanum á föstudaginn eftir sigur á KS/Leiftri á
Siglufirði. Meðal þeirra sem tóku á móti liðinu við heimkomuna voru sæmdarhjónin Guðbjörg Einarsdóttir og Hallgrímur Þórðarson
sem fögnuðu með syninum, Heimi, þjálfara meistarflokks IBV. Mynd Oskar Pétur.
Vestmannaeyjaskipin með
um þriðjung makrílaflans
-Aflaverðmæti Hugins um 700 milljónir króna frá sjómannadegi
Vestmannaeyjaskipin hafa veitt
rösklega þriðjung af heildar makríl-
afla íslensku skipanna í sumar og
haust. Alls nemur makrflafli allra
íslensku skipanna liðlega eitt hundr-
að þúsund tonnum og þar af eru
Vestmannaeyjaskipin með rúmlega
35 þúsund tonn. Stærstur hluti
aflans hefur farið í bræðslu og mjög
gott verð hefur verið fyrir mjöl og
lýsi. Þvf má segja að makrílinn hafí
verið drjúg búbót fyrir útgerðar-
fyrirtækin í Vestmannaeyjum.
Til samanburðar má geta þess að í
fyrra fengu íslensk skip um 36
þúsund tonn af makríl, en munurinn
á veiðunum er sá að aflinn hefur að
þessu sinni aðallega fengist í ís-
lenskri lögsögu, en ekki í þeirri
færeysku eins og í fyrra. Veiðar á
norsk-íslensku síldinni hafa einnig
gengið vel og eru Vestmannaeyja-
skipin búin að fá tæplega fimmtíu
þúsund tonn af síld.
Alls hafa skip Isfélagsins fengið
um um þrjátíu þúsund tonn af sfld
og um fimmtán þúsund tonn af
makríl. Makríllinn hefur í fyrsta
sinn í sögu ísfélagsins verið nýttur
til manneldis, en áhöfnin á
Guðmundi VE hefur náð góðum
árangri í því að frysta hausskorinn
og slógdreginn makríl.
Rekstur Isfélagsins í Vestmanna-
eyjum hefur verið með rólegra móti
í sumar, aðeins tvær landanir í FES í
júní og júlí, en bolfiskvinnsla var í
frystihúsinu fram að sumarfríi í lok
júlí. Bolftskvinnslan í frystihúsinu
er nú farin af stað aftur af fullum
krafti og starfsmenn FES eru í óða
önn að undirbúa verksmiðjuna fyrir
komandi veiðar á Islandssfldinni.
A Þórshöfn hefur aftur á móti verið
vertíð frá því eftir sjómannadag og
búið að framleiða rúmlega átta
þúsund tonn af mjöli og um 6.500
tonn af lýsi frá því í byrjun maí.
ísfélagið hefur verið með fjögur
skip að uppsjávarveiðum í sumar og
haust; Guðmund, Álsey, Þorstein og
Júpíter. Aflinn er frystur um borð í
Guðmundi, en afli hinna skipanna
hefur farið í bræðslu á Þórshöfn.
Síldar- og makrílafli tveggja skipa
Vinnslustöðvarinnar skiptist nánast
jafnt. Alls hafa skipin, Kap og
Sighvatur, fengið um 12.300 tonn af
síld og um 12.500 tonn af makríl.
Aflinn hefur nánast allur farið til
bræðslu, enda gerir fyrirtækið ekki
út neitt frystiskip. Farið er að
undirbúa vertíðina á Islandssíldinni,
sem hefst í næsta mánuði, en þá er
lagt kapp á að sem mest af sfldinni
fari í vinnslu til manneldis.
Huginn er nú að síldveiðum í
norsku lögsögunni og hafa veið-
arnar gengið vel síðustu daga. Síðan
á sjómannadag hefur Huginn fengið
um átta þúsund tonn af makríl og
um 6.500 tonn af síld. Af
makrflaflanum voru um 1.750 tonn
hausuð og fryst og unnin hafa verið
um þúsund tonn af sfldarflökum.
Aflaverðmæti Hugins á vertíðinni
nemur nú tæplega 700 milljónum
króna.
Bæjarstjórn Götu í heimsókn
Hluti bæjarstjómar í Götu í Færeyjum er í heimsókn í Vestmannaeyjum en
bæirnir tóku upp vinarbæjarsamband fyrir nokkrum árum.
Bæjarstjórinn, Hans Mourits Foldbo, sagði í stuttu samtali við blaða-
mann að tilgangur ferðarinnar væri fyrst og fremst að skoða rekstur skóla
hér og allt sem að þeim snýr. Um næstu áramót verður Göta sameinað
Leirvík og verða fbúar um tvö þúsund. Hluti af undirbúningi
sameiningarinnar er einmitt heimsóknin hingað til Eyja.
Skemmti-
legasta fólk-
ið fær miða
Helliseyingar sjá um Lundaballið
sem verður haldið laugardaginn
27. september og er Sigurður
Bragason, einn þeirra.
Sigurður segir segir undirbúning
ganga vel og mikið lagt upp úr
skemmtiatriðum og allri umgjörð
ballsins. Tvö svið verða í Höllinni
til þess að koma á móts við þarfir
ákveðinna úteyjakarla og ekkert
til sparað. Þátttaka er góð og allt
bendir til þess að Helliseyingar
velji inn á ballið.
„Það eru flottar tölur úr öllum
eyjum og við vitum um fjórar
eyjur sem eru yfir meðaltali.
Árgangur 44 og 48 hafa boðað
komu sína auk hópa af fastaland-
inu þannig að það er góð þátttaka.
Hellisey verður með yfir 100
manns, sem er met úr einni eyju
og ekkert nýtt því sláum met í
öllu s.s. veiði, drykkju o.s.frv. Við
slógum met þegar við héldum
fyrsta lundaballið í Höllinni, þá
komu 550 manns og uppselt. Nú
verða tvö svið þannig að það er
allt eins líklegt að við þurfum að
fækka gestum frá því sem verið
hefur þannig að þeir sem eru að
spá ættu að hafa samband sem
fyrst,“ sagði Sigurður þegar leitað
var frétta af þátttöku á ballið.
Sigurður sagði að eins og fram
hefði komið á spjallsíðum yrðu
tvær hjómsveitir á ballinu. „Við
verðum með tvö svið og gömlu
dansana á litla pallinum. Hann er
aðallega hugsaður fyrir Bjamar-
eyinga og Elliðaeyinga enda eru
þeir lítið fyrir breytingar og aðal-
lega í gömlu dönsunum. Litli
danspallurinn verður lfka nær
klósettunum og þá er styttra fyrir
þá að fara,“ segir Sigurður og Ijóst
að Helliseyingar hugsa fyrir öllu
við undirbúninginn.
„Dagskráin veður glæsileg og
við höfum undirbúið hana sl. 9
mánuði. Við ætlum að nýta okkur
tæknina og verðum með frábær
skemmtiatriði. Maturinn hjá
Einari Birgi verður spennandi og
margar nýjungar í gangi. Hann
þurfti t.d. að kaupa mörg tæki til
að koma til móts við okkar kröfur
en við verðum með suðrænan mat
enda erum við sunnarlega. Hann
hefur mikið eldað hangikjöt fyrir
Bjarnareyinga og er þakklátur
fyrir þetta tækifæri enda fer þetta
allt í reynslubankann.
Sigurður sagði að þar sem þátt-
taka á ballið væri óhemju góð þá
færu Helliseyingar þá leið að láta
skemmtilegasta fólkið fá miða.
„Það er Ijóst að við verðum að
sortera inn. Við ætlum að taka 44
árganginn fram yfir sumar eyjar.
Það á sérstaklega við þá sem
halda úti heimasíðum, “ sagði
Sigurður og var ófáanlegur til að
skilgreina það nánar.
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA
VÉLA- OG BÍLAVIÐGERÐIR
netjáhamar
VÉLA- OG BlLAVERKSTÆÐI
<50 ÞJÓNUSTUAÐILI í EYJUM / VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI...!
FLATIR2I / S.481-1216 / GSM.864-4616