Fréttir - Eyjafréttir - 09.10.2008, Qupperneq 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 9. október 2008
Úr bloggheimum:
Allt að frétta
Eyjamaður vikunnar:
Hippatónlíst höfðar til unga fólksins
Góðan dag gott
fólk, það er allt
gott að frétta hjá
okkur, frysting og
veiðar ganga vel
og góður gangur í
flökun, og er það
allt Grími BAAD-
ER á Felli að þakka. Við erum
búnir að fylla aftur lestina og erum
byrjaðir á fremri og fyrsta lagið er
langt komið og við ættum að
verða langt komnir með þennan
túr á þriðjudag - miðvikudag ef
allt gengur vel. I seinasta hífi hjá
okkur komu gestir að kíkja á okkur
og þessa flottu mynd hérna tók
Gylfi skipstjóri meðan á hífingu
stóð og sumir segja að hann eigi að
fá ljósamyndaverðlaunin 2008 fyrir
þessa mynd, eða hvað finnst ykkur?
En það er ekki meiri i bili biðjum
að heilsa, kveðja Huginsmenn
http://www.huginn.is/
Oohhh....
Þá var kátt í
Hellisey
BÞað var mikil
vinna að sjá um
Lundaballið, en
mikið ofboðslega
var það gaman.
Fólkið sem kom,
500 manns í mat,
var mætt til þess að
skemmta sér. Allir svo fínir og það
sá varla vín á manni. Allt gekk upp,
enda komu margar hendur að. Eg
vil fá að þakka þeim fjölmörgu sem
lögðu okkur Helliseyingum lið kær-
lega fyrir.
Kvöldið áður var ég með kynningu
á lundalifrapaté niðri í Miðstöð.
Fékk ég Sigurjón Ingvars, Helga
bróður og Kalla Haralds til að hjál-
pa mér. Mari hafði keypt rauðvín
og gos til að hafa með. Var ákveðið
að ég skildi vera með kynninguna
um leið og Jóhann Óli Hilmarsson
væri búinn að kynna bók sína
Lundann.
Þegar það var komið að okkur þurf-
tum við að hafa hraðar hendur. Ég
var búinn að skera niður paté, setja
á ristað brauð og raða á bakka.
Helgi og Siguijón voru inní eldhúsi
og gerðu næsta bakka kláran, en
við Kalli buðum gestum að gjöra
svo vel. Sá ég þá að við höfðum
gleymt rifsberjasultunni.
Segi ég þá við Kalla; "Kalli, sultan!
Kalli lftur á mig og stekkur inn í
eldhús og kemur til baka í rósóttri
svuntu af Marý.
http.V/maggibraga. blog. is
Skynsamleg
ákvörðun
Tek hatt minn ofan
fyrir stjórnar-
mönnum míns liðs
í körfunni ef að
þetta er ákvörðunin
sem tekin hefur
verið. Menn hafa
enga heimild til að
steypa félagi sfnu í ótakmörkuð
peningavandræði, í mínum huga á
það við um Snæfell alveg eins og
öll önnur lið. Tel þetta því skyn-
samlega ákvörðun og í raun það
eina rétta í stöðunni. Bíð svo frétta
af þessum íbúafundi. Held að við
gætum átt eftir að sjá svona
ákvarðanir hjá fleiri liðum.
Áfram Snæfell.
http://fosterinn. blog. is
Guðmundur Arnar Alfreðsson er Eyjamaður vikunnar
Bergur- Huginn fékk frábæra
viðurkenningu á Sjávarútvegs-
sýningunni í síðustu viku.
Fyrirtækið hlaut fslensku sjávar-
útvegsverðlaunin í flokknum
„Framúrskarandi íslensk útgerð“.
Það hlýtur að vera mikilvægt að fá
slíka viðurkenningu og góð land-
kynning fyrir Vestmannaeyjar,
innan- og utanlands. Fyrirtækið
hefur á að skipa úrvali starfsmanna
bæði í landi og á sjó. Þeirra á
meðal er Guðmundur Alfreðsson,
útgerðarstjóri sem er Eyjamaður
vikunnar að þessu sinni:
Nafn: Guðmundur Arnar
Alfreðsson.
Fæðingardagur: 30 apríl 1952.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Giftur Sigurbimu
Árnadóttur og eigum við tvö börn,
Ólaf, Elku og dóttursoninn
Guðmund Óla.
Draumabfllinn: Land Cruiser 200
Uppáhaldsmatur: Hrossakjöt með
kartöflum og íslensku smjöri.
Versti matur: Hætti að vera mat-
vandur eftir að ég fór til náms í
Reykjavík og þurfti að sjá um mig
sjálfur.
Uppáhalds vefsíða:
www.google.com.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Bubbi.
Aðaláhugamál: Vinnan og ýmis-
legt tæknigrúsk.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Isaac Newton.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Kartluzy í Póllandi.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Margrét Lára,
Liverpool.
Ertu hjátrúarfullur: Nei.
Stundar þú einhverja íþrótt:
Akstursíþrótt.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
Tækniþættir.
Hvað hefur þú starfað lengi hjá
fyrirtækinu: Alla mína starfsævi
eða tæp 40 ár.
Er alltaf jafn spennandi að vera
við útgerðina: Já, þú veist aldrei
hvað gerist á morgun.
Hverju má þakka þennan
árangur: Frábærum starfsmönnum.
Matgazðingur vikunnar:
Meirihánar mexíkósk matarveisla
Sigrún Alda Ómarsdóttir er matgœðingur vikunnar
Ég vil byrja á að þakka Salome
fyrir áskorunina. Ég ákvað að
velja mexíkóskan mat sem er í
miklu uppáhaldi hjá mér, mexí-
kósk súpa og mexíkósk brauð-
terta.
Mexíkósk súpa fyrir 4 - 6
2 laukar.
4 hvítlauksbátar, pressaðir.
2 msk. olía.
2 dósir niðursoðnir tómatar.
1 teningur kjúklingakraftur + '/2 lítri
vatn.
1 teningur nautakjötkraktur + '/2
lítri vatn.
1 lítri tómatdjús.
I msk kórianderduft.
I V2 tsk chiliduft.
1 V2 tsk cayanne pipar.
I grillaður kjúklingur eða tvær
stórar steiktar kjúklingabringur.
Laukur skorinn og steiktur í olíunni
í stórum potti, öllu hinu blandað
saman við.
Látið malla í u.þ.b. 2 klst.
Kjúklingurinn tekinn af beinunum
eða kjúklingabringurnar skornar í
bita og sett útí u.þ.b. V2 klst fyrir
framleiðslu.
Sýrður rjómi, muldnar nachoflögur
(Doritos) og rifinn ostur borið fram
með súpunni.
Súpan er enn betri upphituð.
Mexíkósk brauðterta
4 stórar tortilla hveitikökur.
4 tómatar.
8-10 skinkusneiðar.
Svarta ólívur (má sleppa).
'/2 krukka niðursoðin paprika.
1 dós mexíkósk ostasósa. Nachos
flögur (Doritos).
Rifinn ostur.
Tómatar eru saxaðir smátt. Skerið
skinkuna og grilluðu paprikuna
(svartar ólívur) í bita og blandið
saman við ostasósuna. Setjið fyrstu
tortilla kökuna á bökunarpappír á
bökunarplötu. Smyrjið 'A hluta
blöndunnar á kökuna og myljið
u.þ.b. lófafylli af nachos yfir.
Leggið síðan aðra tortilla köku
ofaná og endurtakið þetta með
restina af kökunum og endið með
blönduna efst. Dreifið að síðustu
rifna ostinum yfir. Bakið í um 30
mín. við 170 gráður.
Gott er að bera fram með þessu
hrærðan sýrðan rjóma og/eða
guacamole og salsasósu.
Flott er að setja nachos (Doritos) í
kringum kökuna þegar hún er borin
fram.
Að lokum vil ég skora á Agnesi
Guðlaugsdóttur góðvinkonu mína
ogframku. Húnlumar alveg
örugglega á einhverju svakalegu
góðu sem hún getur sagt okkur frá í
nœstu viku.
Nýfozddir Vestmannaeyingar:
Þann 29 júní fæddist drengur á
sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum.
Hann var tæpar 17 merkur og 53
cm. Foreldrar hans eru Berglind
Ósk Sigvardsdóttir og Eiríkur
Ingvi Jónsson
Með honum á myndinni er
Thelma Rós stóra systir.
Una Rakel fæddist þann 6. júlí
kl. 02:47 í Vestmannaeyjum. Hún
var 52 cm og 3414 gr. við fæðin-
gu. Foreldrar hennar eru Anna
Margrét Kristinsdóttir og Victor
Leifur Ævarsson.
Litla fjölskyldan er búsett í
Reykjavík.
Kristinn Snær fæddist þann 7. júlí
kl. 07:00 í Reykjavík. Hann var 55
cm og 4165 gr. við fæðingu. For-
eldrar hans eru Ingibjörg Perla
Kristinsdóttir og Jóhann Sveinn
Sveinsson. Með honum á mynd-
inni er 10 ára systir hans, Jenný.
Fjölskyldan býr í Reykjavík.
Kirkjur bazjarins:
landakirkja
Fimmtudagur 9. október
Kl. 10.00. Foreldramorgunn, kaffi
og spjall.
Kl. 20.00. Fundur hjá æskulýðs-
félaginu í KFUM&K-húsinu.
Kl. 20.00. Æfing hjá kirkjukór
Landakirkju.
Föstudagur 10. október
Kl. 13.00. Æfing hjá Litlu læri-
sveinunum, yngri hópur.
Kl. 14.00. Æfing hjá Litlu læri-
sveinunum, eldri hópur.
Sunnudagur 11. október
Kl. 11.00. Barnaguðsþjónusta.
Söngur og gleði eru allsráðandi.
Mýsla og Músapési kíkja í heim-
sókn og skoðað verður í fjársjóðs-
kistuna. Litlu lærisveinamir koma
og syngja nokkur lög undir stjóm
Védísar Guðmundsdóttur.
Kl. 14.00. Messa. Kór Landakirkju
syngur. Sr. Guðmundur Örn Jóns-
son prédikar og þjónar fyrir altari.
Fermingarbörn lesa ritningarlestra.
Kaffi og spjall í safnaðarheimili
eftir messu.
Kl. 15.30. NTT-starf í fræðslu-
stofunni.
Kl. 17.00. ETT-starf í fræðslu-
stofunni.
Kl. 20.30. Fundur hjá æskulýðs-
félaginu í safnaðarheimili Landa-
kirkju.
Mánudagur 13. október
Kl. 19.30. Vinir í bata, andlegt
ferðalag fyrir konur og karla á
öllum aldri. Opinn kynningarfundur
í fræðslustofunni.
Kl. 20.00. Vinnufundur hjá Kven-
félagi Landakirkju.
Þriðjudagur 14. október
Kl. 14.30. Fermingarfræðsla í
fræðslustofunni.
Kl. 20.00. Fundur hjá æskulýðs-
félagi Landakirkju.
Miðvikudagur 15. október
Kl. 11.00. Helgistund á
Hraunbúðum.
Kl. 13.00, 13.45 og 14.30.
Fermingarfæðsla í fræðslustofunni.
Viðtalstímar prestanna eru
þriðjudaga til föstudaga milli 11.00
og 12.00.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur 9. október
Kl. 20.30 Bænaganga, allir á
plóginn.
Laugardagur 11. október
Kl. 20.30 Brauðsbrotning, Jesús er
sigurhetjan.
Sunnudagur 12. október
Kl. 13.00 Samkoma, ræðukona
Guðbjörg Guðjónsdóttir, það hefur
enginn yfirtekið Guðsríki. Vertu
velkomin(n).
Aðventkirkjan
Laugardagur
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.