Fréttir - Eyjafréttir - 09.10.2008, Síða 13
Fréttir / Fimmtudagur 9. október 2008
13
ELLIÐI segir að þeir sem annist fjárstýringu fyrir sveitarfélagið hafi orðið óþyrmilega varir við það í umhverfi seinustu daga að sveitarfélögin
hafa hvergi skjól fyrir stormi og því nauðugur sá kostur að vera á áhættumarkaði bankanna.
Fjárstýring Vestmannaeyjabæjar hefur verið árangursrík
Viljum að sveitarfélög fái
skjól í Seðlabankanum
-segir Elliði Vignisson sem segir fjármuni bæjarins ekki í hættu
Margar spurningar hafa vaknað um
stöðu einstaklinga, fyrirtækja, stofn-
ana og sveitarfélaga í því ölduróti
sem nú gengur yfir fjármálakerfi
heimsins. Hér á landi er Glitnir á
leið í faðm ríkisins og Fjármála-
eftirlitið hefur tekið yfir rekstur
Landsbankans. Komið hefur fram
að staða sveitarfélaga er tvísýn rétt
eins og staða annarra rekstraraðila
og íslendinga almennt. Elliði
Vignisson bæjarstjóri segir þó að sá
munur sé á sveitarfélögum og fyrir-
tækjum að sveitarfélög séu að sýsla
með fjármagn sem er í eigu íbúanna
og séu því, og eiga að vera,
áhættufælnari en aðrir aðilar.
Siglt milli skers og báru
Staða Vestmannaeyjabæjar á að vera
sterk ekki síst eftir sölu á hlut
bæjarins í Hitaveitu Suðumesja á
síðasta ári. Þá komu þrír milljarðar í
bæjarkassann sem voru í vörslu
Glitnis. Aðspurður um hvort
Vestmannaeyjabær hafi farið illa út
úr brimróti fjármálamarkaðarins sei-
nustu daga sagði Elliði svo ekki
vera. „Við embættismenn höfum í
samvinnu við pólitíska fulltrúa verið
vakin og sofin í fjárstýringunni og
okkur hefur tekist að sigla milli
skers og báru,“ sagði Elliði.
„Stundum hefur mátt litlu muna
eins og þegar við fórum út úr hluta-
bréfasjóðum og þegar við innleyst-
um peningamarkaðsbréf. Hvoru
tveggja er í miklu uppnámi í dag.
Þessi árvekni í bland við hreina
lukku hefur tryggt að hingað til
höfum við engu tapað og í dag eru
allir okkar sjóðir okkar í innlánum
og þannig varðir af Tryggingasjóði
innistæðueigenda," sagði Elliði.
Hann segir að þeir sem annist
fjárstýringu fyrir sveitarfélagið hafi
orðið óþyrmilega varir við það t'
umhverfi seinustu daga að sveitar-
félögin hafa hvergi skjól fyrir stormi
og því nauðugur sá kostur að vera á
áhættumarkaði bankanna.
„Enn sem komið er höfum við hjá
Vestmannaeyjabæ sloppið við áföll
og yfirlýsing ríkisstjómar ætti að
tryggja að innistæður okkar séu
öruggar. Hinsvegar veit ég sem er,
að sum sveitarfélög standa nú
frammi fyrir því að sjóðir þar sem
þau em með hundruð milljóna em
lokaðir, inneignir í peningabréfum
eru í tvísýnu og þannig mætti áfram
telja.“
Sveitarfélög hafi aðgengi
að Seðlabankanum
Elliði segir að Vestmannaeyjabær sé
vel rekið og sterkt sveitarfélag enda
tekjur þess fyrst og fremst fengnar í
gegnum sjávarútveg. „Slfkt ásamt
eignasölu býr til tekjur hjá okkur.
Þrátt fyrir að við séum opinberir
aðilar þá höfum við ekki haft neitt
sérstakt skjól seinustu daga. Velji
sveitarfélög eða aðrir að taka áhættu
með því að festa fé í hverskonar
sjóðum og bréfum þá fylgir því
áhætta, slíkt er eðlilegt. Það sem
mér hefur hinsvegar fundist vanta er
lágmarks innistæðuáhætta jafnvel
þótt slíkt þýði lægri ávöxtun," sagði
Elliði og sagðist óttast að vöntun á
slíku gæti komið niður á einhverjum
sveitarfélögum.
„Það er mitt mat og krafa Vest-
mannaeyjabæjar að sveitarfélögum
verði í framtíðinni búið ömggara
umhverfi til fjárstýringar en nú er. I
því samhengi tel ég afar brýnt að sá
möguleiki verði hugleiddur að sett
verði bráðabirgðalög sem heimila
sveitarfélögum að eiga innláns-
reikninga í Seðlabankanum, jafnvel
þótt ávöxtun væri í samræmi við
áhættustigið og þar með lægri en á
bankamarkaði. Einungis þannig
fæst jafnræði í meðferð ríkisfjár- og
fjármagns sveitarfélaga. Það er líka
erfitt að sjá af hverju Seðlabankinn
ætti undir núverandi kringum-
stæðum að gera greinarmun á opin-
beru fjármagni ríkisins sem fengið
er með skatttekjum og fjármagni
sveitarfélaga sem fengið er með
útsvari.
Náist ekki slík niðurstaða tel ég að
sveitarfélögin sem eru eigendur
Lánasjóðs íslenskra sveitarfélaga
eigi að skoða þann kost gera honum
kleift að taka við innlánum frá
sveitarfélögum.”
Kvíðir ekki komandi tíð
Elliði segir að þau skref sem
forsætisráðherra hefur kynnt í dag
og í gær séu vissulega þung en mik-
ilvæg. „Það var orðið algerlega
nauðsynlegt að höggva á þann
ósvissuhnút sem upp var kominn og
það gerði forsætisráðherra af
myndarskap. Þjóðfélagið allt var
lamað af hræðslu og engin vissi í
hvom fótinn hann átti að stíga. Ég
treysti forsætisráðherra til að leiða
íslenskt fjármálalíf út úr þeim brim-
sköflum sem það nú er í.”
Elliði segir að vissulega komi til
með að harðna á dalnum hjá öllum.
„Staða sveitarfélaga er auðvitað
missterk rétt eins og fyrirtækja og
einstaklinga. Þau tóku mismikinn
þátt í góðærinu og því er hætt við að
kreppan komi mishart niður á
þeim.“ sagði Elliði og bætti við að
sveitarfélögin muni á næstu dögum
nýta vettvang Sambands íslenskra
sveitarfélag til fara yfir stöðuna fyrir
sveitarfélögin.
„Ég kvíði ekki komandi tíð og lít á
þetta sem enn eitt verkefnið. Við
erum vel undir þetta búin og eigum
áfram að geta veitt fyrsta fiokks
þjónustu við íbúa. Undirstöðu-
atvinnugreinin er sterk og mikilvægi
hennar fyrir þjóðarbúið nú ríkara en
áður. Við Eyjamenn erum ekki óvön
því að hafa fyrir hlutunum og líður
best þannig."
Alþjóðleg ráðstefna
um Tyrkjaránið:
MEISTARAKOKKUR
Einar Björn mun sjá um mat-
seldina og undirbýr sælkera-
kvöldið
Þekktir
erlendir
fyrirlesarar
mæta
Sögusetrið 1627 stendur fyrir
alþjóðlegri ráðstefnu um
Týrkjaránið í Vestmanna-
eyjum helgina 17.til 19. októ-
ber. Bæði innlendir og erlendir
fyrirlesarar munu fjalla um
atburðina frá ýmsum sjónar-
hornum á ráðstefnunni sem
ber yfirskriftina Sjóræningjar
í Norðurhöfum.
í tengslum við ráðstefnuna
verður síðan staðið fyrir
Matargöngu í Höllinni á laug-
ardagskvöldinu. Sigurður E.
Vilhelmsson, Þórður Svansson
og Einar Björn Arnason hafa
séð um undirbúning og eiga í
rauninni hugmyndina að
Matargöngunni sem er vissu-
lega spennandi og nýstárlcg.
Einar Björn, meistarakokkur
Einsa kalda mun sjá um mat-
seldina og undirbýr sælkera-
kvöldið sem verður með ó-
venjulegu sniði. „Borðhaldið
fer fram í efri sal Hallarinnar
og gert ráð fyrir 17. aldar
stemmningu, salurinn skreytt-
ur og ýmislegt gert til að
magna upp andrúmsloftið.
Maturinn verður að sjálfsögðu
í aðalhlutverki þar sem í boði
verða ýmsir réttir frá löndum
sem sr. Olafur Egilsson fór um
þegar hann ferðast frá Alsír til
Islands,“ sagði Einar Björn en
sr. Olafur, einn þeirra
herteknu, var scndur til
Kaupmannahafnar til að
freista þess að fá lausnargjald
fyrir þá sem sátu eftir í
Algersborg.
„Ymsir þjóðarréttir með nú-
tímalegu ívafi verða á borðum
t.d. frá Alsír og ítalskir, hollen-
skir, franskir og danskir réttir.
Þetta er virkilega spennandi og
ég veit að salurinn verður
flottur og heilmikið í lagt, til
að gera aðstæður óvenjulegar.
Fánar þjóðlanda verða á
borðum og hver réttur kynnt-
ur á þjóðtungu hverrar þjóðar,
Lögreglan í önnum:
Sýndu fölsuð skírteini
LÖGRECL4N
Lögreglan hafði
í ýmsu að
snúast í vikunni
sem leið m.a.
við að aðstoða
fólk til síns
heima eftir
skemmtana hald helgarinnar.
Þá komu upp tvö tilvik þar sem ungmenni
voru að reyna að komast inn á skemmtistaði
bæjarins með skilríkjum annarra, en slíkt er
óheimilt.
Þá voru nokkur útköll hjá lögreglu vegna
ósættis í heimahúsum og eins var eitthvað um
stympingar við skemmtistaði bæjarins. Engar
kærur liggja hins vegar fyrir.
St. Ola gengur og gengur ekki:
Á aðeins einni vél af íjórum
Farþegaferjan St. Ola fór
aðeins eina ferð á
þriðjudaginn, enga á
mánudaginn en hélt áætlun
á sunnudaginn þrátt fyrir
brælu, einkum um kvöldið.
Vitlaust veður var á
mánudaginn en vélarbilun
olli því að aðeins var ein
ferð á þriðjudag. Um tíma
gekk aðeins ein aðalvél af
fjórum.
Herjólfur er væntanlegur
í lok vikunnar en hann er
í slipp á Akureyri
Baldur Dýrfjörð tók þess mynd af Herjólfi á Akureyri.
físmundur meindýraeyðir:
Minkur enn á ferð?
Svo virðist sem
enn sé minkur á
ferð í Eyjum.
Ásmundur,
meindýraeyðir
fann einkennileg
spor í snjónum á
Kleifarbryggju, þar sem nýja frystigeymsla
Vinnslustöðvarinnar er. Líklega voru það
spor eftir mink.
Minkurinn virðist hafa stokkið af nótaskip-
inu Sighvati Bjamasyni VE og þaðan yfir
bryggjuna, áfram með grjóthleðslu sem þar er
en slóðin endaði svo þar skammt hjá.
Líklega hefur minkurinn skotið sér inn á milli
í grjóthleðslunni.