Fréttir - Eyjafréttir - 09.10.2008, Page 15
Fréttir / Fimmtudagur 9. október 2008
15
Handbolti: Afturelding - ÍBV 32:17
Eyjamenn teknir í kennslustund
- Annar tapleikur ÍBV í 1. deild
Eyjamenn sóttu Aftureldingu heim á
laugardaginn seinasta með góðan
sigur á Þrótti í farteskinu.
Mosfellingum hafði ekki verið spáð
neinu sérstaklega góðu gengi í vetur
en fyrir leikinn höfðu þeir þó unnið
báða sína leiki.
Afturelding byrjaði leikinn betur,
náði fljótt yfirhöndinni og lagði
grunninn að góðri forystu.
Eyjamenn voru algerlega andlausir í
fyrri hálfleik og réðu ekkert við
frískt lið Aftureldingar. Vörn
Mosfellinga var firna sterk og
bakvið hana stóð Oliver Kiss sem
klettur í markinu. Oliver varði eins
og berserkur í fyrri hálfleik en
Eyjamenn létu mörg dauðafæri og
einnig víti fara forgörðum og gengu
Mosfellingar á lagið og juku forystu
sína til muna. Staðan í hálfleik var
18-7.
Slök skotnýting
I seinni hálfleik komu Eyjamenn
aðeins betur stemmdir en
Mosfellingar voru þó hvergi nærri
hættir og léku á alls oddi og gáfu
ekkert eftir. Eyjamenn héldu þó
LEIFUR JÓHANNESSON í áður óþekktum handboltastellingum sem
dugðu gegn Þrótti á dögunum en ekki gegn Aftureldingu.
áfram að fara illa með kjörin færi og hellur. Leikurinn endaði svo með
var skotnýting ÍBV fyrir neðan allar fimmtán marka sigri Aftureldingar
32-17.
Eiga aö geta betur
Eyjamenn þurfa núna að fara ræki-
lega yfir sín mál því liðið má ekki
við því að tapa mikið fleiri stigum.
Næsti leikur liðsins er gegn Fjölni á
útivelli laugardaginn ll.október.
Það er hins vegar Ijóst eftir þrjá sig-
urleiki að Afturelding kemur vel
undan sumri. Þeir ala þá von í
brjósti að vera meðal þeirra bestu
næsta vetur og er ekki annað hægt
en að vera bjartsýnn fyrir þeirra
hönd.
Varin skot: Kolbeinn Aron 7,
Friðrik Þór 8.
Staðan
ÍR 3 3 0 0 102:89 6
Afturelding 3 3 0 0 88:62 6
Selfoss 3 2 0 1 96:74 4
Grótta 3 2 0 1 85:75 4
Haukar U 3 1 0 2 85:74 2
ÍBV 3 1 0 2 79:94 2
Þróttur 3 0 0 3 64:95 0
Fjölnir 3 0 0 3 63:99 0
[Körfubolti yngri flokkar
Góður árangur Eyjaliðanna um helgina
KÖRFUBOLTASTRÁKAR á lokahófi síðasta vor.
Um helgina tók lO.flokkur þátt í sínu
fyrsta móti í vetur en flokkurinn spi-
lar í A-riðli. Aðeins voru sjö leik-
menn sem spiluðu með flokknum
um helgina og því varð róðurinn afar
þungur fyrir Iiðið. Fyrsti leikur
liðsins var gegn Keflavík en
Eyjamenn komu ekki alveg nógu vel
stefndir í þann leik og hafði þessi
slæma byrjun mikil áhrif á leikinn
sem fór 59-46 fyrir Keflavík.
Annar leikurinn var gegn
Islandsmeisturum Breiðabliks sem
eru með afar sterkt lið. Eyjamenn
réðu engan veginn við Blikana sem
unnu leikinn 90-38 en Blikar hittu úr
þrettán þriggja stiga skotum.
Þriðji leikur liðsins var á móti
Skallagrími en Eyjamenn mættu ein-
beittir til leiks, staðráðnir í að vinna
sinn fyrsta sigur og leiddu á tímabili
23-5. Peyjarnir spiluðu vel en hleyp-
tu þó Skallagrími heldur mikið inn í
leikinn en fóru þó með sigur af
hólmi 60-48.
I síðasta leik mætti liðið Fjölni en
þá voru leikmenn liðsins orðnir
aðeins sex. Þannig að róðurinn varð
ennþá þyngri því leikmenn voru
orðnir þreyttir og náðu ekki að halda
í við sterkt lið Fjölnis og töpuðu
leiknum 42-57. Þrátt fyrir slakt
gengi munu strákamir í lO.flokki
halda áfram keppni í A-riðli en þess-
ir drengir eiga ennþá margt inni og
munu væntanlega sýna það á næstu
mótum.
Stig IBV um helgina: Ingvi Rafn
43, Pálmi Geir 41, Hlynur 36,
Alexander 32, Gulli 13, Elvar Geir
13, Blómi 6.
7. flokkur áfram í A-riðli
Um helgina héldu ellefu hressir
strákar úr 7.flokki til Grindavíkur til
að keppa í A-riðli Islandsmótsins.
Þessi flokkur hefur verið afar sig-
ursæll og í flokknum leynast margir
efnilegir körfuboltamenn.
^ Fyrsti leikur Peyjana var gegn
Islandsmeisturum Hauka en liðið var
staðráðið í því að hefna fyrir úrslitin
á síðasta tímabili þegar Haukar stálu
af þeim íslandsmeistaratitlinum.
Leikurinn var afar jafn og fór alla
leið í framlengingu þar sem
Eyjamenn reyndust sterkari og fóru
með sigur af hólmi 34-32.
Næsti leikur var gegn sterku liði
gestgjafanna í Grindavík. Eyjamenn
höfðu yfirhöndin frá byrjun og eftir
þrjá leikhluta var staðan orðin 27-8.
Eyjamenn kláruðu svo leikinn með
ellefu stiga sigri 36-25.
Daginn eftir léku Eyjamenn við
KR sem hafði eins og IBV unnið
báða sína leiki. Leikurinn var mjög
jafn framan af en staðan í byrjun
fjórða leikhluta var 28-30 fyrir KR.
KR-ingar reyndust síðan sterkari á
loka sprettinum og unnu 36-47.
Síðasti leikur liðsins var síðan gegn
Stjömunni en sá leikur var einnig
afar jafn og réðust úrslitin ekki fyrr
en á lokamínútunum þegar
Stjömumenn skoruðu fimm síðustu
stig leiksins og fögnuðu sigri 28-
35. Strákamir í 7.flokk munu halda
áfram keppni í A-riðli en þeir eiga
svo sannarlega heima á meðal þeirra
bestu.
Getraunirnar
af stað
Jæja, þá er komið að haustlauk-
unum og þá fer getraunastarfið hjá
ÍBV á fullt. Gunnar Karl er
kominn í gírínn, og úr tipp-
æfingabúðunum á Kýpur, og
boðar tii upphafs 10 vikna get-
raunaleiks núna á laugardaginn.
Að vanda verður tippað í Týs-
heimilinu, húsið opnar kl. 10 og
verður strax tekið til við hópa-
leikinn. Þeir sem vilja skrá sig og
tippa símleiðis geta hringt í 481
1260, en það hefur nú löngum
þótt langskemmtilegast að mæta
bara í Týsheimilið.
Spilaðar verða sem sagt 10
vikur, 8 bestu gilda, þátttökugjald
verður kr. 5000,-
Heyrst hefur að íris Sæm kennir
Heimi á tippið, að Tottarar komi
úr felum, að Huginsmenn dusta
rykið af tippinu.
- Fréttatilkynning
[Kynning á fimleikakrökkum
Nafn og aldur: Agnes Stefánsdóttir 9 ára.
Nafn foreldra: Andrea og Stefán.
Hversu lengi hefur þú æft: Ég hef æft í fimm ár.
Uppáhaldsgrein: Trampólín og tvíslá.
Leiðinlegast: Slá.
Markmið í fimleikum: Ég ætla að komast í 1. þrep og
keppa á Ólympíuleikum.
Uppáhalds fimleikastjarna: Nastia Lukin.
Hefur þú önnur áhugamál: Tónlist, dans og fótbolti.
Nafn og aldur: Steiney Ama 11 ára
Nafn foreldra: Sigurveig og Jarl.
Hversu lengi hefur þú æft: Ég hef æft í sex ár.
Uppáhaldsgrein: Plankar.
Leiðinlegast: Slá.
Markmið í fimleikum: Ég veit það ekki.
Uppáhalds fimleikastjarna: Nastia Lukin.
Hefur þú önnur áhugamál: Tónlist og margt fleira.
íþróttir
íslandsmótið í skák:
Eyjamenn
efstir í
2. deild
Taflfélag Vestmannaeyja leiðir 2.
deildina eftir góðan árangur í
fyrstu fjóram umferðum. Sveitin
hafði 19 vinninga af 24 mögu-
legum sem er mjög góður árangur.
Björn ívar Karlsson og Luis
Galego sigruðu í öllum sínum
skákum en Páll Agnar Þórarins-
son sigraði í báðum sínum
skákum. Árangur Björns ívars
þykir þó standa upp úr en hann
tefldi alltaf með svart og vann
sínar skákir af miklu öryggi.
Árangur liðsmanna: Luis
Galego 4/4, Jan Johansson 2,5/4,
Þorsteinn Þorsteinsson 3/4, Páll
Agnar Þórarinsson 2/2, Sævar
Bjarnason 2,5/4, Björn ívar
Karlsson 4/4, Lárus Ari Knútsson
1/1, Einar Kr. Einarsson 0/1.
Gunnar á
spjöld
sögunnar
Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur
skráð nafn sitt á spjöld sögunnar
en hann er annar knattspyrnu-
maðurinn sem hefur skorað í efstu
deild í Danmörku, Svíþjóð,
Noregi og að sjálfsögðu á íslandi.
Gunnar náði þessum áfanga þegar
hann skoraði sigurmark Esbjerg
gegn AGF í dönsku úrvalsdeildin-
ni. „Það var eins og við hefðum
unnið bikarúrslitaleik í kvöld. Ég
hef alltaf sagt að við ættum meira
inni og við höfum ekkert verið
síðri aðilinn í þessum síðustu
leikjum og vonandi er þessi sigur
bara byrjunin á einhverju stærra,"
sagði Gunnar Heiðar í samtalið
við Morgunblaðið.
Hermann á
leið frá
Portsmouth?
Hermann Hreiðarsson mun að
öllum líkindum fara frá enska
úrvalsdeildarliðinu Portsmouth
þegar félagsskiptaglugginn opnar
í janúar. Hermann hefur ekki
fengið mörg tækifæri í vetur,
hefur aðeins einu sinni verið í
byrjunarliðinu og þrisvar komið
inn á sem varamaður.
„Ég hef alltaf verið byrjunarliðs-
maður hjá þeim félögum sem ég
hef verið hjá og ég er því óvanur
þessari stöðu sem upp er komin
og ég kann henni satt best að segja
ekki vel. Ef heldur sem horfir mun
ég klárlega skoða mín mál þegar
félagsskiptaglugginn opnar í
janúar og sjá til hvað verður í
boði. Ég verð að gera það því ég
vil spila fótbolta og hef ekki
áhuga á því að vera bara einhver
klappstýra," sagði Hermann í
samtali við vefinn Vísi.is.
Framundan
Laugardagur 11. október
Kl. 15.00 Fjölnir-ÍBV, 1. deild
karla, handbolti.
Kl. 16.00 ÍBV-HK 2. deild karla,
körfubolti.
KI. 17.00 ÍBV-Víkingur 2. deild
kvenna, handbolti.